Fréttablaðið - 05.10.2001, Page 11
FÖSTUDAGUR 5. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
n
Giuliani, borgarstión
New York:
Mun ekki
sitja þriðja
kjörtímabilið
NEW york.ap Rudolph Giuliani,
borgarstjóri í New York, ætlar
ekki að sitja þriðja kjörtímabilið
við völd þrátt fyrir fjölmargar
áskoranir af hálfu borgarbúa.
Hann hefur hins vegar boðist til
þess að sitja þremur mánuðum
lengur í embætti en hann var kos-
inn til að gera. „Fólk grátbað mig
um að vera áfram. En nú veit ég
ástæðuna fyrir því. Það var hræðs-
la,“ sagði Giuliani í sjónvarpsþætti
Larry King á CNN. ■
ÞINGMENN RÍFAST
Umræður á þingi geta oft orðið ansi heitar.
Samkvæmt rannsókninni hafa rifrildi
manna um stjórnmál skaðleg áhrif á
stjórnkerfi Bandaríkjanna.
Bandarísk rannsókn:
Rifrildi
stjórnmála-
sérfræðinga
skaðleg
stjórnmál Stjórnmálaumræður í
sjónvarpi þar sem gestirnir
hækka róminn og grípa hver
fram í fyrir öðrum hafa slæmar
afleiðingar fyrir stjórnmála-
kerfi Bandaríkjanna. Þetta kem-
ur fram í nýlegri rannsókn sem
birt var á árlegum fundi Banda-
rísku stjórnmálafræðisamtak-
anna. í rannsókninni voru áhorf-
endur látnir horfa á tilbúinn
spjallþátt í sjónvarpi með
stjórnmálaumræðum þar sem
gestirnir rifust mikið og voru
dónalegir. Kom í ljós að viðbrögð
áhorfendanna við þættinum leid-
du af sér neikvæða afstöðu
gagnvart bandaríska þinginu,
stjórnmálamönnum og meira að
segja öllu stjórnmálakerfi lands-
ins. Slík viðbrögð var hins vegar
ekki að finna hjá þeirn áhorfend-
um sem látnir voru horfa á
spjallþátt þar sem umræðurnar
voru á rólegu nótunum. Þeir sem
horfðu á fyrri spjallþáttinn áttu
auk þess erfiðara með að muna
þau rök sem borin voru fram í
þættinum sem studdu afstöðu
þeirra til ákveðinna málefna. ■
LAUGARDALSHÖLL 5. - 7. OKTÓBER 2001
r erða-og ú fjölsky rivisrarsýning Idunnar
60 bosr úrbúnu
jeppar landsins
og einn uppi
í srúku!
Fylgsru moö leiknum:
4 í bíl í 44 ríma
á Bylgjurtni 98.9
Fyriplesrrar og myndasýningar alla helgina.
Eitrhvað fyrir alla í öölskyldunni!
Þraurabraur fyrir krakka
Hjalri Úrsus og
Andrés Guðniudsson
Krakka kassabílar
Rarieikur meö Terra
Sigæfingar fyrir krakka
Slysavarnarrélagiö Landsbjörg
IVIagnús Ver reynir viö heimsmer
/Xögöngumiöi gildir sem
happadrærrismiöi
Meira aö segja mamma
skemmrir sér!!!
OPNUNARTIMI
Föstudag 19-22 • Laugardag 10-22 • Sunnudag 10 - 20
Miðaverð kr. 750 frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.