Fréttablaðið - 05.10.2001, Qupperneq 13
AP/ CZAREK SOKOLOWSKI
FÖSTUDACUR 5. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
FORSETINN OC VERÐANDI FORSÆT-
ISRÁÐHERRA
Aleksander Kwasniewski forseti (t.v.) af-
hendir flokksbróður sinum, Leszek Miller,
stjórnarmyndunarumboð. Báðir eru þeir
fyrn/erandi félagar í pólska Kommúnista-
flokknum.
Formaður Vinstri-grænna:
• •
Ograndi
lækkun há-
tekjuskatts
stjórnmál „Það eina sem maður
getur tekið undir og er virkilega
ánægður með er afnám skatta á
húsaleigubætur," segir Steingrím-
ur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
grænna, um skattalækkanirnar
sem ríkisstjórnin hefur kynnt.
„Það er mjög ögrandi að hækka
frítekjumark fyrir þennan óveru-
lega hátekjuskatt sem á að heita að
hér sé í gildi en byrjar ekki að telja
fyrr en komið er á fjórða hundrað
þúsund hjá einstaklingi og á sjö-
unda hundrað þúsund hjá hjónum.
Hins vegar er ekki hróflað við
skattleysismörkum. Með öðrum
orðum: Skattbyrðin á að hvíla á
herðum láglaunafólks. Fólk er að
borga skatta af launum eða bótum
alveg niður í 65 þúsund krónur.
Þeir sjá enga ástæðu til að koma til
móts við þetta fólk,“ segir Stein-
grímur.
Steingrímur segist hafa miklar
efasemdir um réttmaeti skatta-
lækkana á fyrirtæki. „Ég hef efa-
semdir um að það sé góð ráðstöfun
að lækka tekjuskattinn en hækka
tryggingagjaldið á móti því það er
flatur skattur sem ekki er afTomu-
tengdur og leggst þyngst á þær
greinar þar sem launakostnaður er
hlutfallslega mikill. Það væri
miklu nær að verja þessum pening-
um til að styrkja nýsköpun og þró-
un í atvinnulífinu," segir hann. ■
--4--
Sverrir Hermannsson:
í cindstöðu við
Seðlabanka
stjórnmál „Það er auðvitað allt gott
að segja um skattalækkanir í sjál-
fu sér þó mér finnist að þeir hafi
átt að byrja á einhverju öðru en að
hækka frítekjutekjumark hálauna-
manna. Auðvitað er allt gott að
segja um skattalækkanir á húsa-
leigubætur og fleiri bætur.
Ákvörðun um skattalækkun núna
gengur hins vegar þvert á baráttu
Seðlabankans með háum vöxtum,"
segir Sverrir Hermannsson, for-
maður Frjálslynda flokksins.
Sverrir bendir á lækkun skatta
sé þensluhvetjandi. „En Seðla-
bankinn berst um á hæl og hnakka
og beitir okurvöxtum gegn þensl-
unni. Á þessum tímum þurfa menn
að gá að afkomu ríkissjóð sem
aldrei fyrr. En það er ekki von að
menn sem vilja ekki játa þann
háska sem framundan er bregði
v\ð. Allt er málað ljósum litum og
forsætisráðherrann heimtar að
enginn skuggi falli á góðærið og
stöðugleikann sem er rokinn út í
veður og vind,“ segir Sverrir.
Að sögn Sverris er meginhluti
skattalækkananna geymdur til
ársins 2003 því þá eigi að gera þær
að kosningabeitu. Hann telur hins
vegar að þau áform falli um sjálf
sig þar sem þau gangi í þveröfuga
átt við baráttu Seðlabankans gegn
þenslunni. ■
| STUTT |
Bílvelta varð á Hafnavegi þeg-
ar ökumaður missti vald á
bifreið sinni í beygju sem þarna
er í gær. Að sögn lögreglunnar í
Keflavík skemmdist bifreiðin en
ökumaður meiddist ekki. Þá datt
erlendur ferðamaður á höfuðið
við Krísuvík. Var konan flutt á
sjúkrahúsið á Keflavík með heila-
hristing.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
Reykjavíkur lögðu til á borg-
arstjórnarfundi í gær að Orku-
veita Reykjavíkur hætti við fyr-
irhuguðu kaup á fyrirtækinu
Tetralínu og hluta Landssímans í
fyrirtækinu Stiklu. Hart var deilt
um málefni Línu.Nets. RÚV
greindi frá.
Fjolskylduhelgi
í Blómavali
Allir krakkar fá túlipanalauk
Bömin setja niður sinn eigin haustlauk
og uppskera litríkt vor.
Þessir glæsilegu páfagaukar eru frá hitabelti Ameríku, svokallaðir grænvængjaarar
(Ara chloroptera). Þetta eru gáfaóir fuglar sem velja sér maka fyrir lífstíð.
Þeir geta lært að tala og finnst gott aó boróa
harðar hnetur og maískólfa.
Grænvængjaarar geta orðið
allt að 1 m á lengd og
100 ára gamlir.
Hvaó eigum '
við aó heita?
Við erum komnir
í Blómaval og
þar finnst okkur
gott að vera. Það
eina sem okkur
vantar eru falleg
nöfn. Ef þú hjálpar
okkur við aó finna
nöfn þá færðu
ókeypis ís.
Upplýsingasími 5800500
Blómaverslun á netinu www.blomaval.is