Fréttablaðið - 05.10.2001, Síða 14
FRETTABLAÐIÐ
5. október 2001 FÖSTUDAGUR
KNATTSPYRNA
Þjálfaramál:
Willum Þór
ráðinn þjálfari KR
Landsleikir íslands
og Danmerkur
HM 2000: Ísland-Danmörk 1-2
VL 1991: Ísland-Danmörk 0-0
VL 1998: Danmörk-lsland 1-0
VL 1981: Danmörk-ísland 3-0
VL 1978: Ísland-Danmörk 0-0
VL 1974: Danmörk-ísland 2-1
VL 1972: Island-Danmörk 2-5
VL 1970: Ísland-Danmörk 0-0
VL 1967: Danmörk-ísland 14-2
VL 1965: Ísland-Danmörk 1-3
ÓL 1959: Danmörk-ísland 1-1
ÓL 1959: Ísland-Danmörk 2-4
VL 1957: fsland-Danmörk 2-6
VL 1955: Ísland-Danmörk 0-4
VL 1953: Danmörk-lsland 4-0
VL 1949: Danmörk-ísland 5-1
VL 1946: Ísland-Danmörk 0-3
HM: Undankeppni Heimsmeistara
keppninnar
VL: Vináttulandsleikur
ÓL: Undankeppni fyrir Ólympíuleika
KNflTTSPYRNA Willum Þór Þórsson,
þjálfari Hauka og fyrrum leik-
maður KR, hefur verið ráðinn
þjálfari meistaraflokks KR til
næstu 5 ára, en hann hefur störf 1.
nóvember. Að sögn Jónasar Krist-
inssonar, formanns stjórnar KR-
Sport, voru nokkrir þjálfarar í
sigtinu, en hann sagði að menn
væru mjög ánægðir með að samn-
ingar hefðu tekist við Willum Þór,
sem þekkti vel til hjá KR.
„Við teljum að framganga Will-
ums á knattspyrnuvellinum fyrir
KR á sínum tíma og þjálfarastörf
hans undanfarin ár séu vel til þess
fallin að hann taki við KR-liðinu,“
sagði Jónas.
Varðandi hugsanlegar breyt-
ingar á leikmannahópi KR sagði
Jónas að menn væru ekki farnir
að velta þeim málum fyrir sér,
enda væri tímabilinu nýlokið.
KR-ingar hafa verið duglegir
við að skipta um þjálfara síðustu
mánuði því á miðju sumri sagði
Pétur Pétursson upp störfum og
David Winnie, fyrrum leikmaður
og aðstoðarmaður Péturs, tók við
liðinu og stjórnaði því út tímabil-
KR-INGUR
Willum Þór Þórsson skrifaði í gær undir 5
ára samning við KR.
ið. Jónas sagðist ekki vita hvað
David Winnie hygðist taka sér
fyrir hendur. Willum Þór hefur
nokkra reynslu af þjálfarastörf-
um en hann þjálfaði Þrótt um tíma
og síðan Hauka, sem hann kom
upp í 1. deild í sumar. ■
1. deild:
Stjarnan sigraði
HANDKNflTTLEiKUR Stjarnan sigraði
IBV 27-25 í Vestmannaeyjum í
gærkvöld og komst þar með í 6.
sæti deildarinnar.
1. DEILP KARLA
Lið L u T Mörk Stig
Valur 3 3 0 89:67 6
Haukar 3 3 0 91:73 6
Grótta KR 3 3 0 76:65 6
Þór 3 2 1 85:80 4
Stjarnan 3 2 1 78:75 4
UMFA 3 1 1 63:62 3
ÍR 2 1 1 39:42 2
FH 3 1 2 75:79 2
ÍBV 3 1 2 82:92 2
Selfoss 3 1 2 78:91 2
KA 3 O 2 77:80 1
Fram 3 O 2 61:64 1
HK 3 0 2 81:88 1
Vikingur 2 0 2 43:60 O
7AFFI
RE Y ivJAVÍ K
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Oljóst með byrjunarliðin:
Michaelsen í liðið
fyrir Gronkjær
knattspyrna Ekki er ljóst hvenær
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari
íslands og Morten Olsen, landsliðs-
þjálfari Danmerkur tilkynna byrj-
unarlið sín. Líklega verður það gert
en þó er það ekki víst og í gærkvöld;
sagði Halldór B. Jónsson, varafor-
maður KSÍ, að vel gæti farið svo að
íslenska liðið yrði ekki tilkynnt fyrr
en á morgun.
Helsti höfuðverkur Atla snýr að
vali miðvallarleikmanna því nú eru
Brynjar Björn Gunnarsson og Rún-
ar Kristinsson báðir til í slaginn eft-
ir að hafa átt í meiðslum. Jóhannes
Karl Guðjónsson, Arnar Grétarsson
og Pétur Marteinsson hafa staðið
sig vel í síðustu leikjum og því á Atli
erfitt val fyrir höndum.
Búast má við einhverjum breyt-
ingum á danska hópnum þar sem
Jesper Grpnkjær er frá í nokkra
mánuði vegna meiðsla og einnig
eiga Jon Dahl Tomasson, leikmaður
Feyenoord og Marc Nygaard hjá
Roda við smávægileg meiðsli að
JAN MICHAELSEN
Michaelsen hefur staðið sig mjög vel með
Panathinaikos í Meistaradeildinni.
stríða. Danskir fjölmiðlar telja
mjög líklegt að Jan Michaelsen,
sem hefur staðið sig mjög vel með
Panathinaikos í grísku deildinni og
Meistaradeild Evrópu, taki sæti
Grpnkjær á hægri kantinum og þá
telja þeir einnig næsta víst að
Thomas Gravesen, leikmaður Ev-
erton, verði í byrjunarliðinu. ■
„Danir spila Suður-
Evrópskan bolta“
íslendingar mæta Dönum í Parken á morgun. Leikurinn skiptir litlu fyrir íslenska liðið en lykil-
máli fyrir það danska. Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari segir góða stemmNingu í hópnum og að
liðið fari í leikinn með sigur í huga.
knattspyrna íslenska landsliðið í
knattspyrnu mætir Dönum í þrið-
ja riðli í undankeppni HM 2002, í
Parken í Kaupmannahöfn, á
morgun klukkan 18. Atli Eðvalds-
son landsliðsþjálfari segir
stemmninguna í íslenska hópnum
vera góða eins og alltaf.
„Það er búið að rigna mikið og
ATLl
EÐVALDSSON
vellirnir eru þungir og blautir,"
sagði Atli. „En það eru allir heilir
eins og hægt er að kalla en við
erum að fara yfir stöðuna."
Atli sagði að honum litist vel á
leikinn.
„Þetta er sá leikur sem við
erum búnir að hlakka mest til að
spila. Danirnir eru jú efstir í riðl-
inum, með sterkasta liðið þannig
að þetta er ákveðinn lærdómur og
það verður gaman
að spila við þá.“
Hjá danska
landsliðinu eiga
nokkrir lykilmenn
við meiðsli að
stríða. Jesper
Grönkjær, leik-
maður Chelsea, og
Per Frandsen,
samherji Guðna
Bergssonar hjá
Bolton, eru báðir
meiddir. Atli segir það breyta litlu
fyrir danska liðið.
„Þeir eru með gífurlega góða
leikmenn, hraða og tekníska. Þeir
eru með betri Evrópuþjóðum og
spila svona Suður-Evrópskan
bolta. Ef við lítum á okkar hóp þá
er Ríkharður Daðason meiddur,
Rúnar Kristinsson og Brynjar
Björn Gunnarsson voru meiddir.
Ég held að það sé meiri blóðtaka
fyrir okkur en ef það væru fimm
eða sex meiddir hjá þeim.“
Byrjunarlið Islands verður
líklega tilkynnt seinni partinn í
dag.
„Maður veit aldrei fyrr en á
síðust stundu hvernig menn eru
stemmdir, hvort þeir finna sig og
þess háttar," segir Atli um byrj-
unarliðið en útilokar ekki að Rún-
ar Kristinsson komi á ný inn í lið-
ið.
Möguleikar íslenska landsliðs-
ÁFRAM ÍSLAND!
Danir lögðu Islendinga að velli á Laugardalsvellinum í fyrra með tveimur mörkum gegn
einu. Brynjar Björn Gunnarsson fékk rautt spjald í þeim leik en hann er nýstiginn upp úr
meiðslum.
ins á sæti í lokakeppninni í Suð-
ur-Kóreu og Japan eru úti. Sama
hvernig leikurinn fer endar liðið
í fjórða sæti. Danir sitja hinsveg-
ar í efsta sæti riðilsins með
nítján stig, tveimur stigum meira
en Tékkar og Búlgarar sem eru í
öðru og þriðja sæti. Þeir geta
tryggt sér sæti í lokakeppninni í
Suður-Kóreu og Japan með sigri
á morgun og skiptir leikurinn því
sköpum fyrir liðið. Ef Danir
lenda í öðru sæti í riðlinum þurfa
þeir að fara í umspil um laust
sæti.
Atli segist vilja sjá Dani í loka-
keppninni en mun íslenska liðið
gefa eftir til að koma frændum
okkar að?
„Ég óska þess innilega að Dan-
irnir komist áfram eftir að þeir
hafa spilað við Belga eða Skota í
umspili. Það er mín ósk.“
Stefnir ísland þá að sigri á
morgun?
„Það er aldrei hægt að fara út í
keppni nema ætla sér sigur og við
munum allavega gera þeim lífið
leitt og nota okkar möguleika. Ef
við fáum færi á að sigra ntunum
við nýta okkur það. En það verður
bara að koma í ljós. Stemmningin
er hinsvegar alltaf þannig að við
höfum trú á sigri þar til dómarinn
flautar leikinn af.“
kristjan@frettabladid.is
Ymislegt
Flugslysið Skerjafirði.
Söfnunarsímar
Ef hringt er í eftirtalin númer
gjaldfærist af reikningi sím-
ans, sem hringt er úr, sem
hér segir:
Sími 907 2007 -1.000,- kr
Sími 907 2008 - 2.500,- kr
Sími 907 2009 - 5.000,- kr
Bankar. erno. 1175-05-409940
Pétur Yngvi Gunn^^s^^^fgfffíðl
2? 562 4866 Tek að mér
822 4865 smiði ýmis konar
petyng@isi.is prentgripa