Fréttablaðið - 10.10.2001, Page 10
FRETTABLAÐIÐ
10
FRÉTTABLAÐIÐ
10. október 2001 MIÐVIKUDAGUR
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjórí: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Kari Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalslmi: 515 75 OO
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladíd.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra hamila
á hðfuðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið
blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar;
kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskílur sér nétt til að birta allt efni
blaðsins f stafrænu formi og I gagnabönkum
án endurgjalds.
OPIÐ HÚS
í dag verður opíð hús hjá ýmsum félögum:
Geðhjálp og Geðrækt, Túngötu 7, Dvöl,
Reynihvammi 43 í Kópavogi, Geðverndar-
félagi fslands, Álfalandi 15, Klúbbnum
Geysi, Ægisgötu 7, Vin, Hverfisgötu 47 og
hjá Geðverndarfélagi Akureyrar og Laut
Þingvallastræti 32.
Alþjóða geðheilbrigðis-
dagurinn:
Gullstjarn-
an veitt í
fyrsta sinn
GEÐHEILBRIGÐI5PAGUR í dag er al-
þjóða geðheilbrigðisdagurinn og
er yfirskrift dagsins Vinna og geð-
heilbrigði. í tilefni dagsins verður
opið hús hjá ýmsum félögum sem
að undirbúningi dagsins hafa stað-
ið. í Iðnó verður hátíðardagskrá
undir yfirskrift dagsins. Jónína
Benediktsdóttir flytur framsögu,
umræður verða í pallborði, tónlist
verður flutt og Gullstjama Geð-
ræktar verður afhent í fyrsta sinn.
Geðrækt er samstarfsverkefni
Landlæknisembættisins, Geð-
hjálpar, geðsviðs Landspítala Há-
skólasjúkrahúss og Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík. Það er for-
varna- og fræðsluverkefni sem
hefur að megimarkmiði að efla
geðheilsu og draga úr tíðni geð-
raskana. Verkefnið hefur nú staðið
í eitt ár. Af því tilefni var ákveðið
að veita Gullstjörnu Geðræktar.
Hún verður veitt árlega á Alþjóða
geðheilbrigðisdeginum 10. októ-
ber. Stjaman er veitt einstaklingi
eða samtökum sem þykja hafa
unnið óeigingjarnt og fórnfúst
starf í þágu geðræktar og geðheil-
brigðis á Islandi. ■
—*—
Verðmat:
Býður Qórð-
ung uppsetts
verðs
SVEITARSTjórnir Eigendur Hrauns-
holtslands í Garðabæ hafa hafnað
tæplega 70 milljóna króna tilboði
bæjaryfirvalda í landið. Það er að-
eins fjórðungur þess verðs sem ber
í milli hugmynda að söluverð jarð-
arinnar því eigendurnir vilja fá ná-
lega 280 milljónir fyrir þessa eign
sína.
Um er að ræða um 22 hektara
spildu en aðeins þriðjungur hennar
mun vera talin byggingarhæfur.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur hug
á að nýta afgang jarðarinnar sem
útivistarsvæði fyrir bæjarbúa.
Hraunsholtsland er sunnan vest-
asta hluta Flatahverfsins í Garðar-
bæ og nær þaðan að bæjarmörkum
Hafnarfjarðar. ■
r
Island x gíslingu hryðjuverkamanna
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra brá upp mynd af
þeim möguleika að hryðjuverka-
hópur tæki heila smáþjóð eins og
íslendinga í gíslingu. Ögnin, sem
af starfsemi alþjóð-
legs nets hryðju-
verkamanna stafar,
snýr því að okkur
„Hvernig
myndi frið-
elskandi þjóð
eins og öðrum, að
bregðastvið?"—Si
*.. ljóst hvaða ferli
þeir hafa hugsað sér í ráðuneyt-
inu, og varla er eins auðvelt að
taka landið í gíslingu eins og á
dögum Jörundar hundagakon-
ungs. Við höfum hér þó altént
bandaríska NATÓ-herstöð.
En hugsum okkur eitt andartak
að hér hefði verið gerð sýklaárás
á lítið samfélag og 400 manns
lægju í valnum, svo tekinn sé sá
fjöldi sem rænt var í svokölluðu
Tyrkjaráni 1627. Enginn lýsti
verknaðinum á hendur sér en það
lægi í loftinu að höfuðborgin væri
næsti höggstaður. Stjórnvöld
teldu sig hafa sterkar vísbending-
ar um að hryðjuverkin væru
skipulögð í fjarlægju landi í skjóli
þarlendra yfirvalda.
Hvernig myndi vopnlaus og
friðelskandi þjóð bregðast við?
Ekki veit ég það, en engu að síður
verður ekki hjá því komist að
glíma við slíka spurningu í ljósi
síðustu atburða. Væntanlega
myndu stjórnvöld setja almanna-
varnar- og heilbrigðiskerfið í
hæsta gír, og krefjast aðgerða af
M-áJ...manna
Einar Karl Haraldsson
spyr spurninga í tilefni ummaela
utanrlkisráðherra
Varnarliðinu, NATÓ og Banda-
ríkjastjórn okkur til varnar.
Myndum við krefjast þess að bak-
hjarl hryðjuverkamannanna yrði
upprættur hvað sem það kostaði
eða láta okkur nægja kröfuna um
að ábyrgðaraðilar yrðu dregnir
fyrir alþjóðlega dómstóla?
Myndu forystumenn Vinstri
flokksins græns framboðs krefj-
ast þess að málið yrði tekið fyrir í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,
og ekkert yrði gert fyrr en niður-
staða væri fengin þar? Og hæfist
hér umræða um það að í Ijósi þess
að við erum samábyrg fyrir ýms-
um hörmungum sem dunið hafa á
fátækum þjóðum, þá hefðum við í
raun kallað yfir okkur manntjón
og öryggisleysi? Svari nú hver
fyrir sig. ■
FBI rannsakar
miltisbrandssýkingu
Starfsfólk útgáfufyrirtækis sent í læknisrannsókn. Grunur leikur á að
um hryðjuverk sé að ræða.
FBI RANNSÓKN
Fulltrúar FBI-alríkislögreglunnar rannsaka kringumstæður við útgáfufyrirtækið f Flórída.
Byggingin hefur verið girt af vegna rannsóknarinnar.
sÝklahernaður Bandarfska alríkis-
lögreglan, FBI, rannsakar nú ann-
að tilfelli miltisbrandssýkingar
sem greindist hjá vinnufélaga
manns sem lést af völdum bakter-
íunnar í síðustu viku í Miami á
Flórída. Mennirnir voru báðir
starfsmenn hjá útgáfufyrirtækinu
American Media sem gefur út
slúðurblöð eins og The National
Enquirer, Globe, Star og The Sun.
Lögreglan hefur enn ekki fundið
neinar sannanir fyrir því að
miltisbrandssýkingin tengist
glæpa-eða hryðjuverkastarfsemi,
en grunur leikur þó á um að bakt-
erían hafi borist af manna völdum
en ekki vegna umhverfisþátta.
Maðurinn sem sýktist af bakterí-
unni hefur ekki veikst af sjúk-
dómnum sem getur fylgt henni, en
leifar bakteríunnar fundust bæði í
nefi mannsins og á lyklaborði tölv-
unnar sem hann vinnur við. Alrík-
islögreglan girti bygginguna af í
gær vegna rannsóknarinnar til að
reyna að komast að því hvernig
miltisbrandurinn komst þar á
kreik. Auk þess var þeim 300
manns sem vinna í byggingunni og
öðrum sem störfuðu þar um tíma
ráðlagt að láta rannsaka sig vegna
mögulegrar sýkingar.
Heilbrigðisyfirvöld f landinu
segja að almenningi stafi engin
hætta af tilfellinu en mikil hræðs-
la hefur gripið um sig í Bandaríkj-
unum frá því að hryðjuverkaárás-
SKERJAFJARÐARSLYSIÐ EgUl Stephen-
sen, saksóknari hjá lögreglunni í
Reykjavík, segir að Flugmála-
stjórn hafi verið sent bréf þar
sem óskað sé eftir upplýsingum
sem varpa eiga ljósi á flugslysið í
Skerjafirði í fyrra.
Bréfið var sent fyrir fáum vik-
um. „Það er óskað svara við ýms-
um spurningum sem snerta málið.
Þetta er liður í rannsókninni til
þess að upplýsa tiltekinn atriði,“
segir Egill.
Að sögn Egils hefur Flugmála-
stjórn ekki verið gefinn tiltekinn
tímafrestur til að svara erindi sak-
sóknara. „En þeir eru beðnir að
svara þessu eins fljótt og þeir
mögulega geta. Þetta er þannig
upplýsingar, sem fást vonandi með
þessu, að þær hafa mikla þýðingu
fyrir málið,“ segir hann.
Egill segir að þegar svar Flug-
málastjórnar hefur borist fari að
draga nær endalokum í rannsókn
Skerjafjarðarslyssins og nær því
að ákvörðun verði tekin varðandi
in átti sér stað vegna mögulegrar
sýklaárásar á landið. Búist er við
að niðurstöður rannsóknanna taki
allt frá nokkrum dögum til nokk-
urra vikna í sumum tilfellum.
Maðurinn sem lést í síðustu
viku er sá fyrsti sem deyr af völd-
um militisbrandssýkingar síðan
árið 1976, en aðeins 18 slíkar sýk-
ingar voru greindar í Bandaríkj-
unum á síðustu öld. Maðurinn bjó
rúman kflómetra frá flugbrautinni
þar sem talið er að Mohammed
Atta, sem grunaður er um að hafa
það hvort ákært verður í málinu.
„Ætli það sé ekki óhætt að orða það
þannig að þá fari að styttast í loka-
ákvörðun,“ segir saksóknari. ■
rænt annarri af flugvélunum sem
flugu á World Trade Center-bygg-
ingarnar í síðasta mánuði, hafi
leigt flugvélar.
Að sögn fréttamanns hjá blað-
inu National Enquirer, sem gefið
er út í byggingunni í Flórída, sendi
lærlingur sem vann þar undarleg-
an tölvupóst til starfsmanna fyrir-
tækisins í lok ágústmánaðar. Þar
stóð: „ Ég skfldi eftir dálítið óvænt
handa ykkur svo þið gætuð minnst
mín. Ha, ha, bara að grínast.“
freyr@frettabladid.is
FLAK TF-GTI KOMIÐ A LAND
Flugmálastjórn hefur nú 1 höndum bréf frá
saksóknara sem vill fá mikilvægum spurn-
ingum varðandi Skerjafjarðarslysið I fyrra
svarað.
Bakterían sem veldur
miltisbrandi:
Auðlæknan-
leg greinist
hún snemma
sýklahernaður Bakterían sem veld-
ur militisbrandi heitir bacillus
antracis og blossar sjúkdómurinn
reglulega upp í landbúnaðarhéruð-
um í Afríku og Asíu. Erlendur
Helgason er líffræðingur í Oslo og
vinnur ásamt félögum sínum að
rannsóknum á bakteríunni. Hann
segir ástæðu þess að baktería er
vinsæl í sýklavopn sé sú að hún sé
banvæn. „Það sem skiptir ekki síður
máli varðandi vinsældir hennar er
að hún myndar gró og í því ástandi
getur hún geymst í óratíma, þangað
til hún kemst í kjöraðstæður sínar.“
Erlendur segir dæmi um mörgþús-
und ára gró sem voru virk.
Hann segir að það sé mikilvægt
að koma því til fólks að bakterían er
næm fyrir sýklalyfjum. „Vandinn er
hins vegar sá að fyrstu einkenni
smits í lungum séu svipuð vægri
lungnabólgu eða kvefi og því hætta
á að meðferð hefjist of seint.“ Annað
sé líka vandamál, en það er skortur
á sýklalyfjum ef margir veikjast í
einu. Erlendur segir að síðustu daga
hafi þrýstingur á þá sem rannsaka
bakteríuna aukist. „Við erum í sam-
starfi við bandaríska vísindamenn
og við finnum fyrir miklum þrýst-
ingi frá þeim um að hraða rannsókn-
um.“ Vandinn með þróun bóluefnis
sé hins vegar sá að þekki hryðju-
verkamenn byggingu bóluefnis, geti
þeir breytt genum bakteríunnar,
þannig að bóluefnið virki ekki. ■
—♦—
Leiðtogar múslíma:
Vara við
árásum
POHA.OATARAP Leiðtogar araba og
múslíma vöruðu í gær Bandaríkin
við því að auka árásir sínar á
Afganistan. Sögðu þeir að allar
árásir sem gerðar væru á arabíska
þjóð væru „óásættanlegar“ og
„myndu hafa alvarlegar afleiðingar
í för með sér.“
Leiðtogarnir, sem sumir hverjir
ætluðu að vera viðstaddir fund
ararbaráðsins sem hófst í gær, hafa
lýst yfir stuðningi við baráttu
Bandaríkjamanna gegn hryðjuverk-
um. Óttast þeir samt sem áður að
árásirnar breiðist út til annarra
arabarikja. ■
INNLENT
Haraldur Briem, sóttvarna-
læknir segir að miltisbrands
hafi orðið vart hér á landi. Grun-
ur leikur á um að sýkingar í Flór-
ída í Bandaríkjunum tengist
hryðjuverkastarfsemi. „Miltis-
brandur kom hingað í lok 19. ald-
ar með hertum húðum frá Afríku
og sýkti einhverjar hjarðir Suð-
vestanlands. Þá bar eitthvað á að
menn sýktust, en síðasta tilfellið
kom upp 1965 þegar verið var að
grafa þar sem sýktar skepnur
höfðu verið urðaðar,“ sagði Har-
aldur.
Logreglumeðferð Skerj afjarðaslyssins á lokastigi:
Saksóknari í biðstöðu eftir
svörum frá Flugmálastjórn