Fréttablaðið - 18.10.2001, Side 2
KJÖRKASSINN
NÝLENDUR f CEIMNUM
Netverjar eiga von á því að
nýlendur verði stofnaðar í
geimnum áður en yfir lýk-
ur. Nokkuð sem Stephen
Hawking telur forsendu
þess að maðurinn deyi
ekki út.
Verða einhvem tíma stofnað-
ar nýlendur í geimnum eins
og visindamaðurinn Stephen
Hawking leggur til?
Niðurstöður gærdagsins
á mrnmiú
Spurning dagsins í dag:
Er ástæða til að hafa áhyggjur af
miltisbrandssendingum hérlendis?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
PÉTUR
SIGURÐSSON
FORMAÐUR
ALÞÝÐUSAM-
BANDS VEST-
FJARÐA
Segir suma launa-
taxta svo lága að
atvinnurekendur
skammist sín fyrir
að fara eftir þeim
Kjarasamningar:
Uppsögn
launaliðar
blasir við
VERKALÝÐSMÁL Pétur Sigurðsson for-
maður Alþýðusambands Vestfjarða
segir að það sé borðleggjandi að
verðlagsforsendur
kjarasaminga hafa
ekki staðist vegna
verðbólgunnar. Af
þeim sökum blasir
við uppsögn á
launalið þeirra eft-
ir áramótin að öllu
óbreyttu. Hann
gagnrýnir stjórn-
völd og einstök
ráðuneyti fyrir það
að sniðganga
samningana með
því að hækka álög-
ur sem ekki hafa
áhrif á vísitölur. í
því sambandi
bendir hann m.a. á
að þegar heilbrigð-
isráðuneytið hækkaði kostnaðar-
hlutdeild fólks vegna röntgen-
myndatöku hefði ráðherra sagt að
það hefði ekki verðlagsáhrif.
Hann segist þó vera fegnastur
því ef hægt yrði að koma til móts
við láglaunafólkið með hækkun á
launatöxtum svo að það geti lifað af
þá kjararýrnun sem verðbólgan
hefur haft á kjör þess. Hann segir
að ef atvinnulífið telji sig ekki hafa
efni á því þá verða stjórnvöld að
koma til aðstoðar. I þeim efnum sé
þá nærtækast að hækka skattleys-
ismörkin sem gagnast mest þeim
sem minnst hafa. Staðan og horfur í
kjarasamningunum verður eitt að-
almálið á fyrsta ársfundi Starfs-
greinasambandsins sem hefst í dag,
fimmtudag á Hótel Loftleiðum. ■
Sjúkraliðar:
Landlæknir
hefur
áhygg)ur
verkalýðsmál Sigurður Guðmunds-
son landlæknir lýsti yfir áhyggjum
sínum um ástandið innan heilbrigð-
isþjónustunnar á fundi sínum með
forystu Sjúkraliðafélags íslands í
gær. Kristín Á. Guðmundsdóttir
segir að þetta sé í fyrsta sinn sem
yfirmaður úr röðum heilbrigðisyf-
irvalda hafi þótt ástæða til að ræða
um ástandið við sjúkraliða eftir að
þeir neyddust til að fara í verkfall
til að knýja á um betri kjör. Hún
segir að ástandið sé alveg hryllilegt
og því sé eðlilegt að landlæknir hafi
áhyggjur af því hvernig það bitnar
á sjúklingum.
Hún bendir einnig á að heil-
brigðisnefnd Alþingis hafi ekki þótt
ástæða til að ræða mönnunarmál á
sjúkrahúsum við sjúkraliða þótt
þeir hafi boðist til þess sl. vor.
Sáttafundur verður haldinn í deilu
sjúkraliða viö ríkið í dag og einnig
munu þeir ræða við borgina. Síðasti
hluti af þrisvar sinnum þriggja
daga verkfalli sjúkraliða skellur
svo á dagana 29.,30. og 31 þ.m. hafi
ekki samist fyrir þann tíma. ■
FRÉTTABLAÐIÐ
18. oktober 2001 FIMMTUDAGUR
Afganistan:
Talibanar gera gagnsókn
gegn Norðurbandalagi
kabúl. ap Talibanar gerðu í gær
gagnsókn gegn Norðurbandalag-
inu, stjórnarandstöðunni í Afganist-
an, í grennd borgarinnar Mazar-e-
Sharif, sem staðsett er á hernaðar-
lega mikilvægum stað í norður-
hluta Afganistan. Heimildir BBC
frá báðum aðilum segja ekki rétt að
Norðurbandalagið sé við það að ná
stjórn borgarinnar á sitt vald, eins
og það hefur haldið fram undanfar-
ið. Norðurbandalagið mun vera óá-
nægt með hversu takmarkaða að-
stoð það hefur fengið úr lofti frá
Bandaríkjamönnum en talið er að
þeir vilji ekki að Kabúl, höfuðborg
Afganistan, falli í hendur Norður-
bandalagsins fyrr en búið er að
mynda ríkisstjórn sem nýtur víð-
tæks stuðnings í Afganistan. Liðs-
menn Norðurbandalagsins koma
einkum úr þjóðflokkum sem búa í
norðurhluta landsins.
Bandaríkjamenn héldu uppi
hörðum árásum á Kabúl og
Kandahar, höfuðvígi talibana, í all-
an gærdag. Olíutankur í grennd
Kabúl varð fyrir sprengingu og
sást reykurinn af honum langar
leiðir. Að sögn íbúa í Kandahar, sem
AP hafði símasamband við, dreifðu
hermenn talibana vopnum til
óbreyttra borgar í gær. íbúarnir
sögðu að um 150 vopnaðir menn
gættu bústaðar Mullah Mohammed
Omar, leiðtoga talibana, en bústað-
urinn hefur orðið fyrir mörgum
sprengjum undanfarna daga.
Avarpi Omars til hermanna var út-
varpað í gær og sagði hann sigur
þeirra vísan í baráttunni við trú-
leysingjanna. ■
ÚR SKEIÐARÉTTUM
Katrin Andrésdóttir, héraðsdýralæknir, segir lltinn mun á því þegar bændur syngja yfir sauðfénu I réttunum og þegar múslimar biðja í
sláturhúsréttinni.
, ,Halal-slátrun‘ ‘
á Selfossi
Formaður Félags múslima á Islandi segir að venjulegir slátrunarhættir
fullnægi kröfum sem múslimar gera til kjöts sem þeir leggja sér til
munns. Sláturfélag Suðurlands á Selfossi hefur engu að síður komið til
móts við óskir einhverra hópa og leyfa þeim að koma og slátra eftir
kúnstarinnar reglum hjá sér.
landbúnaður Einhverjir múslimar
hér á landi hafa fengið að beita
svonefndri „halal“ slátrun í Slát-
urfélagi Suðurlands á Selfossi.
Katrín H. Andrés-
. dóttir, héraðsdýra-
„Halal slatrun iæknjr á Selfossi,
gangi út á að segir að ekki sé
skepnurnar gengið að fullu til
séu skornar móts við óskir
en múslimar þeirra heldur sé
megi ekki þeim mætt miðja
borða það vegu.
sem hann „Við höfum
kallaði „dautt" gert þetta í SS, en
kjöt. við stöndum yfir
—«— þeim og þetta er
kannski ekki gert
nákvæmlega á sama hátt og þeir
hefðu helst viljað. Þeir vilja skera
á háls lifandi en við deyfum með
rafmagni. Þannig er skepnan
meðvitundarlaus þegar hún er
skorin," sagði Katrín og taldi ekki
að krafan um „halal-slátrun“ gæti
orðið til að auka á heimaslátrun
enda tryði hún því ekki að nokkur
bóndi gæti horft upp á það að
skepnur með fullri meðvitund
væru skornar á háls. „Þeir messa
yfir skepnunum áður, en það er
kannski lítill munur á því hvort
þeir syngja bænir inni í sláturhús-
rétt eða þegar íslenskir bændur
syngja yfir þeim í réttunum. Svo
eru skepnurnar skornar í staðinn
fyrir að stinga þær, þannig að lít-
ill munur er á sláturaðferðinni,"
sagði hún.
Salmann Tamimi, formaður
Félags múslima á íslandi, segir
að „halal“ slátrun gangi út á að
skepnurnar séu skornar en
múslimar megi ekki borða það
sem hann kallaði „dautt“ kjöt.
Hann sagði samt ekkert standa í
Samkeppnishæfni þjóðanna:
Island upp um átta sæti
SAMKEPPNISHÆFNI RIKJA
SAMKEPPNi Samkeppnisstaða ís-
lands í samfélagi þjóðanna hefur
batnað ef marka má nýja lista Al-
þjóða efnahagsstofnunarinnar í
Sviss. í fyrra vorum við í 23. sæti
en nú erum við í 16. sæti. Stofnun-
in metur þróun ýmissa efnahags-
stærða, svo sem hagvaxtarhorfa,
samhliða huglægu mati stjórn-
enda.
Sundurliðaðar upplýsingar í
skýrslu stofnunarinnar leiða þó í
ljós að hugsanlega er ékki allt sem
sýnist. Þannig er ísland, ásamt
Noregi og Irlandi, nefnt sérstak-
lega sem ríki þar sem efnahags-
umsvif eru orðin meiri en hag-
kerfið er talið geta staðið undir til
lengdar. Þá erum við mjög neðar-
lega á sparnaðarlistanum. ísland
er hinsvegar í fremsta flokki þeg-
ar kemur að hagnýtingu upplýs-
ingatækni og skilvirkni stjórn-
sýslu.
Á meðal þeirra sem á eftir okk-
ur koma á heildarlistanum eru
Þýskaland í 17. sæti, Frakkland í
20. og Ítalía í 26. sæti. ■
Sæti breyting á
2001 Þjóðir sæti frá 2000
1 Finnland +4
2 Bandaríkin -1
3 Kanada +3
4 Singapore -2
5 Ástralía +6
6 Noregur +9
7 Taiwan +3
8 Holland -5
9 Svfþjóð +3
10 Nýja Sjáland +9
11 Irland -7
12 Bretland -3
13 Hong Kong -6
14 Danmörk -1
15 Sviss -6
16 Island +8
vegi fyrir því að múslimar borði
það kjöt sem er á boðstólum í
verslunum hér á landi. „Þetta
erum við búin að kanna hjá SS á
Selfossi og venjulegir slátrunar-
hættir ná 100 prósent yfir þetta.
Auðvitað eru samt til mismun-
andi skoðanir. Sumir vilja að
múslimi slátri, en þetta er í raun
og veru ósköp lítið mál. Við borð-
um kjötið eins og ekkert sé,“
sagði hann.
Salmann telur að múslimar hér
á landi séu um 500 talsins en af
þeim séu 168 skráðir í Félag mús-
lima á íslandi. „Allir þessir flótta-
menn sem komu frá Kosovo eru
múslimar þannig að þetta er stór
hópur,“ sagði hann og vonaðist til
að félagið gæti komið sér upp að-
stöðu innan skamms, en það er
skráð til húsa á heimili hans.
oli@frettabladid.is
BEÐIÐ FYRIR BARDAGA
Hermenn Norðurbandalagsins biðjast fyrir
I gær.
Tvær konur í haldi:
Grunaðar
um innbrot í
sex apótek
innbrot Lögreglan í Reykjavík
hefur í haldi tvær konur sem
grunaðar eru um að standa að
baki fjölda innbrotstilrauna í ap-
ótek sem gerðar hafa verið síð-
ustu þrjá daga í Reykjavík. Til-
raunirnar eru nú orðnar sex tals-
ins, fimm aðfaranótt þriðjudags-
ins og sú sjötta bættist við í fyrr-
inótt þegar brotist var inn í Laug-
arnesapótek. Þar var rúða brotin
á útihurð og tvær hurðir spennt-
ar upp áður en komið var inn í
fyrirtækið Heilsubrunn sem
staðsett er í sama húsi.
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns, komst lögreglan á
sporið eftir að bifreið sást fyrir
utan apótekið um svipað leyti og
ránið var framið. Nánari eftir-
grennslan leiddi fljótlega til
handtöku fyrrnefndra kvenna.
Svipuð verksummerki voru við
innbrotið í Laugarnesapóteki og í
hinum apótekunum. Konurnar
eru því grunaðar um aðild að
þeim. ■
Stækkun ESB:
Samkeppnis-
staða Islands
versnar
evrópa Halldór Ásgrímsson sagði í
fyrirspurnatíma á Alþingi í gær,
að hætta væri á að markaðsað-
gengi íslendinga í Evrópu versn-
aði eftir að aðild-
arlöndum Evrópu-
sambandsins
(ESB) fjölgaði.
Fríverslunar-
samningar milli
Evrópska efna-
hagssvæðisins
(EES) og þeirra
landa sem bíða
eftir að fá inn-
göngu í ESB féllu
úr gildi við inn-
gönguna. Við það
yrði samkeppnis-
staða ESB landa
sterkari en fslands í viðskiptum
við þessi ríki.
Þetta var svar við fyrirspurn
Rannveigar Guðmundsdóttur um
hvaða afleiðingar stækkun ESB
hefðu á hagsmuni fslands í Evr-
ópu.
Halldór sagði íslensk stjórn-
völd styðja stækkun ESB. Það
væri jákvæð þróun, yki öryggi í
Evrópu, hagvöxt þessara landa og
viðskipti myndu eflast. Hins veg-
ar hefði fjölgun aðildarlanda í för
með sér að EES samningurinn
yrði þyngri í vöfum. Stækkun
ESB gerði ríkari kröfu um eins-
leitni og minni möguleikar væru
til að taka tillit til EES og EFTA.
Halldór sagði jafnframt að ut-
anríkisráðuneytið ynni að því að
efla samstarf við þessi lönd og
gæta hagsmuna íslands í löndum
Evrópu. ■
HALLDÓR ÁS-
GRÍMSSON
Gæta verður að
samkeppnisstöðu
fslendinga á
mörkuðum Evr-
ópu.