Fréttablaðið - 18.10.2001, Qupperneq 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
Eyþór Arnalds, forstjóri Íslandssíma:
Unnið að ráðningu nýs forstjóra
fjarskiptafyrirtæki Eyþór Arn-
alds, forstjóri Islandssíma, segir
að framtíð hans innan fyrirtæk-
isins verði ráðin á fundum
stjórnar og hluthafa í dag. „Það
liggur fyrir að ég legg fram
beiðni umílausn frá störfum frá
og með næstu áramótum fyrir
stjórnarfund í fyrramálið [í
dag]. í sjálfu sér er það ekki fyrr
en þá sem niðurstaða fæst í mál-
inu. Samhliða þessu er verið að
vinna að ráðningu nýs for-
stjóra," sagði hann, en áréttaði
að ekki væri búið að taka neinar
ákvarðanir í þessum efnum.
Jafnframt ræðst möguleg
stjórnarseta Eyþórs á hluthafa-
fundi fslandssíma sem hefst í
hádeginu á Hótel Sögu. „Kosning
stjórnar er á dagskránni, eigum
við ekki bara að láta það koma í
ljós hverjir gefa kost á sér og
hverjir verða kjörnir." Eyþór
sagði ákvörðunina um starfslok
vera alfarið sína eigin og ráðast
af spennandi verkefnum eftir
áramót án þess að hann vildi
fara frekar út í þá sálma. At-
hygli vekur þó að Eyþór hefur í
þessum mánuði tekið sæti sem
varamaður í borgarstjórn eftir
nokkuð hlé. ■
EYPÓR ARNALDS
Á ný orðinn vara-
maður í borgarstjórn.
FORSÆTISRÁÐHERRANN
SECIR AF SÉR
Jens Stoltenberg, skýrir frá þvi að stjórn
Verkamannaflokksins fari frá á föstudag-
inn. Stjórn þriggja hægriflokka tekur við.
Stjórnarskipti í Noregi:
Séra
Bondevik
tekur aftur
við stjóm
osló. ap Stjórnarskipti verða í
Noregi á föstudaginn. Jens Stol-
tenberg forsætisráðherra skýrði
þinginu frá því í gær að hann
myndi segja af sér. Við tekur
minnihlutastjórn Hægriflokksins,
Kristilega þjóðarflokksins og
Vinstriflokksins. Kjell Magne
Bondevik, leiðtogi Kristilega
þjóðarflokksins, verður forsætis-
ráðherra öðru sinni, en hann gekk
í gær á fund Noregskonungs og
fékk formlegt umboð til að mynda
stjórn.
Jan Peterson, leiðtogi Hægri-
flokksins, verður utanríkisráð-
herra nýju stjórnarinnar, en fjár-
málaráðherra verður Per-Kristian
Foss.
Nýja stjórnin hefur þó ekki
þingmeirihluta, því þingmenn
flokkanna þriggja eru aðeins 62,
en á þingi sitja 165 þingmenn.
Stjórnin þarf því á stuðningi
fjórða flokksins að halda, og á
þriðjudaginn gaf Framfaraflokk-
urinn vilyrði sitt fyrir því að
verða stjórninni ekki að falli,
a.m.k. ekki næsta árið. Carl I.
Hagen, leiðtogi Framfaraflokks-
ins, segir flokkinn eiga meira
sameiginlegt með stefnuskrá
stjórnarinnar heldur en aðrir
flokkar.
Verkamannaflokkurinn, sem
farið hefur með stjórn frá því
Bondevik sagði af sér vorið 2000,
fékk í kosningunum þann 10. sept-
ember verstu útreið sína frá því
1924. ■
SMÁTT
Landlæknisembættið og Al-
mannavarnir ríkisins hafa
sent frá sér sameiginlega til-
kynningu vegna þeirrar umræðu
sem skapast hefur um hugsanleg-
ar póstsendingar sem innihalda
miltisbrandsgró. Fram kemur að
líkur á að miltisbrandur eða aðr-
ar sýkingar berist hingað til
lands með slíkum sendingum séu
afar litlar.
Bandaríkjaforseti í Asíu:
Ræðir við ráða-
menn Kína og
fleiri Asíuríkja
BUSH KVEÐUR LANDA SÍNA
„Það er mjög mikilvægt að ég fari, ekki bara til þess að ræða
efnahagslega hagsmuni okkar og tvíhliða hagsmuni, heldur til
þess að eiga frekari viðræður um stríðið gegn hryðjuverkum,"
sagði Bush um Asiuför sína f gær.
WASHINCTON. SHANC-
hai. ap George W.
Bush Bandaríkja-
forseti hélt af stað í
fimm daga ferðalag
til Asíu í gær, með-
an loftárásirnar á
Afganistan standa
sem hæst. Bush ætl-
ar að m.a. að ræða
við ráðamenn í Kína
og ávarpa fund
efnahagssambands
Asíu- og Kyrrahafs-
ríkja (APEC), sem
nú stendur yfir í
Peking.
Bush ætlar m.a.
að afla sér enn frek-
ari stuðnings við
hernaðaraðgerðir
gegn hryðjuverka-
mönnum.
Bandaríska dag-
blaðið Washington
Post hafði eftir
ónafngreindum embættismönn-
um í gær að Bandaríkin ætli að
aflétta vopnasölubanni á Kína, en
þetta bann var lagt á eftir atburð-
ina á Torgi hins himneska friðar í
Peking árið 1989, þegar kínverski
herinn braut á bak aftur lýðræðis-
leg mótmæli með harðri hendi.
Með því að aflétta þessum
refsiaðgerðum vonast Banda-
ríkjamenn til þess að Kínverjar
eigi auðveldara með að standa við
bakið á þeim í hernaðaraðgerðun-
um í Afganistan.
Á mánudaginn tóku Kínverjar
tvo róttæka múslima í Xinjiang
héraði af lífi, en þar eru múslimar
í yfirgnæfandi meirihluta og eru
margir hverjir ósáttir við að vera
undir kínverskri stjórn. ■
Líbýumaður handtekinn:
Grunaður um
peningaþvætti
fjársvik Rannsókn stendur yfir á
manni sem handtekinn var á
Keflavíkurflugvelli í síðustu viku
grunaður um peningaþvætti.
Maðurinn var handtekinn við
komuna hingað til lands en hann
þótti tortryggilegur um margt. Á
manninum fundust reiðufé í er-
lendum gjaldmiðlum auk skart-
gripa. Þótti ástæða til að leita nán-
ari skýringar og málið sent efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglu-
stjóra. Við nánari eftirgrennslan
kom í Ijós að maðurinn hafði áður
komið til landsins og gefið upp
rangar upplýsingar um nafn og
þjóðerni en hann er réttskráður lí-
býskur ríkisborgari. í kjölfarið
vöknuðu ákveðnar grunsemdir
um tilætlanir mannsins að þvætta
peninga hér á landi.
Að sögn Jóns H. Snorrasonar,.
saksóknara og yfirmanns efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra, var lagt hald á fjármuni
mannsins auk annarra fjármuna
sem þegar var búið að koma fyrir
á bankareikningum hér á landi.
HÚSNÆÐI RÍKISLÖCRECLUSTJÓRA
Rannsókn málsíns mun halda áfram og
teygir að öllum líkindum anga sína til ann-
arra landa.
Sagði hann upphæðirnar skipta
milljónum. Aðspurður sagði hann
hvorki íslenska né erlenda aðila
búsetta hér á landi eiga aðild að
málinu.
Maðurinn var látinn laus eftir
að hafa sætt yfirheyrslum og fór í
framhaldinu fljótlega úr landi.
Jón sagði rannsókn málsins haldið
áfram og yrði leitað samstarfs er-
lendra lögregluliða ef ástæða
þætti til. ■
Cyberdrive 16 hraða skrifari
• 16x12x40 skrif/
endurskrif/leshraði
• 100 ms sóknartími
• 2MB Buffer (flýtiminni)
• Buffer under-run vernd
• Vandaður skrifarahugbúnaður
Seagate 40GB
harður diskur
• 5400 RPM (snúngar á sek.)
• sóknarhradi 8.9 ms
• 512 KB flýtiminni
• ATA100 (styður ATA33/66)
Sá
stærsti!
MAXTOR 100GB harður diskur
• 5400 RPM (snúningar á sek.)
• sóknarhraði 10.5 ms
• 2048 KB flýtiminni
• ATA100 (styður ATA33/66)
HARÐ
I-1