Fréttablaðið - 18.10.2001, Blaðsíða 14
14
FRETTABLAÐIÐ
18. október 2001 FIMMTUDAGUR
Fræðslukvöld í
Fossvogskirkju
kl. 20-22
á vegum Kirkjugarða
Reykjavíkurprófasts-
dæma, prófastsdæmanna
í Reykjavík og Nýrrar
dögunar, samtaka um sorg
og sorgarviðbrögð.
Margrét Blöndal,
hjúkrunarfræðingur,
fjallar um líðan syrgjenda
við skyndilegan missi.
Allir velkomnir.
CÖ
CÖ
>
0Ö
<o
&
U)
jsr
U)
c
æ
00
Þegar álagiö er meira ...
£) ASKO
Þvottavél og þurrkari
Fyrir stofnanir og íjölbýlishús
/rQnix
Hátúni 6a S 552 4420
Hjálpum Afganistan
907 2003
<2tr;
Rauði kross íslands
Meistaradeild Evrópu:
Otrúleg skemmtun
á Old TrafFord
knattspyrna Átta leikii' fóru fram í
Meistaradeild Evrópu í gær.
Deportivo La Coruna lagði
Manchester United að velli, 2-3, í G-
riðli og var um ótrúlega skemmtun
að ræða. Fjögur mörk voru skoruð í
fyrri hálfleik. og eitt í þeim seinni.
Áhyggjur Alex Fergusonar, stjóra
ensku meistaranna, af varnarlín-
unni jukust til muna í gær en tvö
marka Spánverjanna komu í kjölfar
misskilnings hjá Fabien Barthez,
markverði og varnarmanninum
unga Wes Brown. Leikmenn Man.
Utd. fengu nokkur dauðafæri á
lokamínútum leiksins en nýttu þau
ekki og eru Spánverjarnir því í
efsta sæti riðilsins með átta stig.
Olympiakos kom í veg fyrir að Lille
næði öðru sæti riðilsins með því að
vinna franska liðið 2-1.
Celtic missti efsta sæti E-riðils
þegar liðið steinlá, 3-0, fyrir Porto í
Portúgal. Juventus lagði Árna Gaut
Arason og félaga í Rosenborg með
einu marki gegn engu. Norsku
meistararnir eiga ekki möguleika á
komast áfram í keppninni.
Barcelona lagði Leverkusen
með tveimur mörkum gegn einu
og náði efsta sæti F-riðils. Lyon
sigraði Fenerbache og eygir enn
NORÐANSIGUR
KA lagði Stjörnuna að velli í Ásgarði í gær í hörkuleik.
1. deild karla:
Fyrsti sigur KA
HANDKNATTLEIKUR KA lagði
Stjörnuna að velli með 27 mörk-
um gegn 23, í síðasta leik fjórðu
umferðar 1. deildar karla, í Ás-
garðinum í gær. Þetta er fyrsti
sigur KA í deildinni í ár og eru
liðin jöfn í 7.- 8. sæti deildarinn-
ar. Markverðir beggja liða, Birk-
ir ívar Guðmundsson og Egedi-
jus Petkevicius, stóðu sig með
ágætum í gær. Staðan í hálfleik
var 13-12 fyrir KA- menn og var
jafnt á flestum tölum en KA
menn höfðu sem áður segir bet-
ur að lokum og fögnuðu kær-
komnum sigri. ■
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ
í minningu Hafdísar Hlífar Björnsdóttur
- verður haldin á stóra sviði Þjóðleikhússins
laugardaginn 20. október nk. kl. 15.
Hafdís Hlíf Björnsdóttir lést 21. júní sl., þá tæplega
11 ára gömul, úr bráðri heilahimnubólgu.
Fjölskylduhátíðin er haldin að tilhlutan félaga í Félagi
íslenskra leikara, en allir sem á einn eða annan hátt
koma að skemmtuninni leggja málefninu lið og gefa
vinnu sína. Ágóði af fjölskylduhátíðinni verður látinn
renna óskiptur í minningarsjóð Hafdísar Hltfar
Björnsdóttur, sem stofnaður var sl. sumar í því skyni
að efla rannsóknir á heilahimnubólgu.
Minningarsjóður Hafdísar Hlífar Björnsdóttur,
Landsbankinn Smáralind, 0132-26-18000, kennitala:
521001-3130.
Miðasala er í Þjóðleikhúsinu. Miðinn kostar kr. 1.000,-
DAGSKRÁ
Gunnar og Felix
Solla stirða úr Latabæ
Gleðiglaumur frá Bláa hnettinum
"Sungið í rigningunni"
"Wake me up before you go go"
Listdansskóla íslands
Ballettskóla Sigríðar Ármann
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Örn Árnason
Jóhann G Jóhannsson
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
Selma Björnsdóttir
Þórunn Lárusdóttir
Kór Hofstaðaskóla og hljómsveitin Sign
Kynnir hátíðarinnar: Margrét Vilhjálmsdóttir
Styrktaraðilar:
Ifl FUJIFILU
c
Landsvirkjun
ÖRUGGUR SIGUR
Italinn Claudio Pizarro, hjá Bayern
Munchen, fagnar hér marki sínu í viðeig-
andi hátt.
möguleika á að komast upp.
I H-riðli burstaði Bayern
Munchen Spartak Moskvu. Þjóð-
verjarnir skoruðu fimm mörk gegn
einu þeirra rússnesku. Sparta Prag
heldur toppsæti riðilsins en liðið
STAÐAN:
E-riðill
Juventus 8
Porto 7
Celtic 6
Rosenborg 1
F-riðill
Leverkusen 9
Barcelona 9
Lyon 6
Fenerbache O
G-riðill
Deportivo La Coruna 8
Man. Utd. 6
Lille 4
Olympiakos 4
H-riðill
Sparta Prag 10
Bayern Munchen 8
Feyernoord 2
Sp. Moskva 1
lagði Feyernoord með tveimur
mörkum gegn engu. ■
FRAMKVÆMDASTJÓRINN
„Stjórnin verður að átta sig á því að ef við ætlum upp í 1. deild þurfum við að styrkja
hópinn."
Guðjón Þórðarson hjá Stoke:
„Við þurfum minnst
tvo nýja leikmenn“
knattspyrna Eftir 3-2 tap Stoke
gegn Blackpool í LDV-bikar-
keppninni (bikarkeppni neðri
deilda) í fyrrakvöld sagði að Guð-
jón Þórðarson, framkvæmdastjóri
Stoke, að hann þyrfti aukið fjár-
magn til þess að kaupa tvo til þrjá
nýja leikmenn.
Fram að leiknum gegn Black-
pool hafði Stoke unnið fjóra deild-
arleiki í röð. Guðjón gerði sjö
breytingar á liðinu frá því um síð-
ustu helgi og stillti því upp lítt
reyndu liði gegn Blackpool. Hann
sagði leikinn sýna að Stoke þyrfti
nauðsynlega á meiri dýpt að halda
- leikmannahópurinn væri of lítill.
„Það var fullt af ungum strák-
um sem fengu tækifæri á að sýna
hvort þeir væru í stakk búnir til
að leika í 2. deildinni ef við þyrft-
um á þeim að halda,“ sagði Guð-
jón. „Sumir sýndu að þeir eru til-
búnir en aðrir að þeir eru það
ekki. Stjórnin verður að átta sig á
því að ef við ætlum upp í 1. deild
þurfum við að styrkja hópinn.
Tímabilið er rétt byrjað og við
eigum eftir að leika á erfiðum
völlum, fá menn dæmda í leik-
bann og síðan verða eflaust ein-
hverjir fyrir meiðslum. Við þurf-
um minnst tvo nýja leikmenn,
kannski þrjá.“
Stoke hefur verið með nokkra
menn í reynslu undanfarið, en
ekki gengið frá kaupum á neinum
þeirra. Nú síðast var Gary
McSwegan, leikmaður Hearts í
Skotlandi, til reynslu, en hann hélt
aftur til Skotlands í vikunni. Guð-
jón sagði að þó hann væri farinn
aftur myndi Stoke halda áfram að
fylgjast með honum. ■
Maradona:
Ovíst með
kveðjuleikinn
knattspyrna Óvíst er hvort
argentínska knattspyrnugoðið,
Diego Armando Maradona, verði
orðinn leikfær þegar kveðjuleik-
ur hans verður spilaður þann 10.
nóvember, en hann gekkst undir
aðgerð á hné á þriðjudag.
Mauricio Vergara, læknirinn sem
hefur verið með Maradona til
meðferðar, segir að knattspyrnu-
goðið geti leikið þrátt fyrir
meiðslin. Maradona stefnir að því
að spila leikinn og segja læknar
hans að hann undirbúi sig fyrir
leikinn líkt og um úrslitaleik á
HM væri að ræða. ■
DIEGO ARMANDO MARADONA