Fréttablaðið - 08.01.2002, Blaðsíða 18
18
FRETTABLAÐIÐ
8. janúar 2002 PRIÐJUPAGUR
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
Gaman af Sjón
„Ég er að byrja á Með titrandi tár eftir Sjón.
Ég hef gaman af honum."
Sigrún Hrólfsdóttir myndlistarmaður
| IVIETSÖLUBÆKURNAR [
METSÖLULISTI EYMUNDSSONAR
Aðallistinn - allar bækur
0 J.K. Rowling:
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
Q Ólafur Jóhann Ólafsson:
HÖLL MINNINGANNA
Waris Dirie: EYÐIMERKURBLÓMIÐ
Q Páll Ásgeir Ásgeirsson: HÁLENDISHANDBÓKIN
Hallgrímur Helgason: HÖFUNDUR ÍSLANDS
J.K. Rowling: HARRY POTTER OG VISKU- STEINNINN
Þórarinn Eldjárn þýddi: MOLDVARPAN SEM VILDI VITA HVER SKEIT...
J.K. Rowling: HARRY POTTER OG LEYNIKLEFINN
0 JSigríður Dúna Kristmundsdóttir: BJORG
(f!) Bill Philips W LÍKAMI FYRIR LÍFID
| METSÖLUBÆKURNAR | METSÖLULISTI EYMUNDSSONAR Skáldsögur Ólafur Jóhann Ólafsson HÖLL MINNINGANNA
Q Hallgrímur Helgason HÖFUNDUR ÍSLANDS
Arnaldur Indriðason GRAFARÞÖGN
O Arnaldur Indriðason MÝRIN
0 Steinunn Jóhannesdóttir REISUBÓK GUÐRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR
Cfc Ólafur Jóhann Ólafsson SLÓÐ FIÐRILDANNA
J.R.R. Tolkien HRINGADROTTINSSAGA - 1. BINDI
O Helen Fielding DAGBÓK BRIDGET JONES
0 J.R.R. Tolkien HOBBITINN
(J) Isabel Alende W MYND ÖRLAGANNA
Metsölulisti Eymunds-
sonar:
Bóksala
jókst á ár-
inu 2001
bækur Penninn og Eymundsson
hafa tekiö saman vinsældarlista
ársins 2001 í sölu íslenskra bóka
eða frá 1. janúar til 31. desember..
Segja má að eldri bækur skipi
óvenju stóran sess á listum ársins
því 16 titlar af 30 voru gefnir út
árið 2000 eða jafnvel fyrr. Þeirra
á meðal eru Harry Potter bækurn-
ar, Líkami fyrir lífið o.fl. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Ey-
mundsson ítefur bóksala aukist
verulega á árinu, sérstaklega í
þeim mánuðum sem ekki eru
kenndir við jólinl ■
Ráðhús Reykjavíkur:
30 ára afmæli ein-
vígis aldarinnar
sýning Á þessu ári eru liðin 30 ár
frá því einvíg þeirra Roberts
Fischers og Borisar Spasskys um
heimsmeistaratitilinn í skák fór
fram í Laugardalshöll. Skáksam-
band íslands hygst á árinu minn-
ast þessara tímamóta með ýmsum
hætti og ríður nú á vaðið með sýn-
ingu í Ráðhúsi Reykjavíkur sem
opnar í dag við hátíðlega athöfn
kl. 16.45 og stendur fram á sunnu-
dag. Á sýningunni verður sjónum
einkum beint að þeirri fjölbreyttu
minjagripaframleiðslu sem ein-
víginu fylgdi auk þess sem blaða
umfjöllun um einvígið verður rifj-
uð upp. Á sýningunni gefur einnig
að líta tvo af helstu dýrgripum
skákhreyfingarinnar frá einvíg-
inu - afrit af skákskriftarblöðum
Fischers og Spasskys og hinn eig-
inlega vígvöll þeirra félaga, skák-
borðið sjálft ásamt tilheyrandi
stólum og umgjörð.
Reyndar má segja að andrúms-
loft einvígisins gangi einnig að
FISCHER og SPASSKY 1972 - 2002
EINVIGI ALDARINNAR
i tilefni af afmælisárinu hefur Edgar Guðmundsson endurhannað eldra merki sitt
frá einvíginu.
nokkru í endurnýjun lífdaga með-
an á sýningunni stendur, þar sem
tveir af sterkustu skákmönnum
Vestur Evrópu munu há þar nýtt
einvígi, þó ekki sé heimsmeistara-
titill í spilinu að þessu sinni. Þetta
eru þeir Hannes Hlífar Stefáns-
son og Bretinn Nigel Short sem í
tilefni af 10 ára afmæli Taflfé-
lagsins Hellis munu eigast við í 6
skáka einvígi. Einvígi þeirra fé-
laga fer fram á hinu fornfræga
borði á sýningarstaðnum í Ráð-
húsi Reykjavíkur en allar nánari
upplýsingar um það má nálgast á
heimasíðu Hellis, www.hellir.is ■
ÞRIDJUDAC U RIN N
8. JANÚAR
FUNDIR________________________________
12.05 Menning og velferðarriki; fjöl-
þjóðlegur samanburður. Rann-
sóknarmálstofa með dr. Birgit
Pfau-Effinger, prófessor f félags-
fræði við háskólann í Bremen,
sem ber heitið „Culture and
Welfare States in Cross-National
Comparison" verður haldin í dag í
fundaherbergi félagsvísinda-
deildar í Odda, kl. 12.05-13.00.
Prófessor Pfau-Effinger er vel
þekkt fyrir rannsóknir sínar og rit
á sviði vinnumarkaðsfræða, fjöl-
skyldufélagsfræði, kynjafræði og
rannsókna á velferðarríkinu. Er-
indið verður flutt á ensku og er
málstofan öllum opin.
12.05 Kolbeinn Óttarsson Proppé,
sagnfræðingur, heldur fyrirlestur f
hádegisfyrirlestraröð Sagnfræð-
ingafélags fslands Hvað er
(ó)þjóð? Fyrirlestur hans ber heit-
ið: I hátíðarskapi. Þjóðhátíðir og
viðhald þjóðernisvitundar og fer
fram í Norræna húsinu kl. 12.05
og lýkur kl. 13:00. www.adadem-
ia.is/saga
12.20 Málstofa efnafræðiskorar. Oddur
Ingólfsson, Department of
Chemistry University of California,
Santa Barbara
Bandaríkjunum flytur erindið:
„Laser-desorption electron-attach-
ment time-of-flight mass spect-
rometry: A new approach to det-
ection of involatile compounds „
www.raunvis.hi.is/~marb/mal-
stofa/index.htm. Málstofan er
haldin í stofu 158, VR II. Allir vel-
komnir.
16.00 Grænir skattar - góð leið til um-
hverfisverndar? Hver er munur-
inn á grænum sköttum og hefð-
bundnum sköttum? Má nota
skatta til að ná markmiðum í um-
hverfismálum eða eru þeir aðeins
ný leið til að stækka hlutdeild
hins opinbera í í efnahagslífinu?
Hvaða reynslu höfum við af því
að beita grænum sköttum? Þess-
ar spurningar verða til umræðu á
málstofu sem Umhverfisstofnun
Háskóla íslands og Landvernd
standa fyrir. Á málstofunni munu
þau Þórólfur Matthíasson, hag-
fræðingur og dósent, Björn Rún-
ar Guðmundsson, hagfræðingur í
fjármálaráðuneytinu, Geir Odds-
son, auðlindafræðingur og alþing-
ismennírnir Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir og Pétur Blöndal flytja
stutt innlegg og taka þátt í pall-
borðsumræðum.
Málstofan verður haldin í Lög-
bergi 101, Háskóla fslands. Að-
gangur er ókeypis og öllum op-
inn.
SÝNINCAR________________________
Einvígi aldarinnar er yfirskrift sýn-
ingar sem haldin er í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Þar er 30 ára afmæli
einvígis Roberts Fischers og Borisar
Spasskys minnst með ýmsum hætti.
Sýningin stendur til 13. janúar.
Maður, lærðu að skapa sjálfan þig
heitir sýning um sögu Bjargar C.
Þorláksson sem stendur yfir í Þjóð-
arbókhlöðunni. Það er Kvenna-
sögusafnið sem setur sýninguna
upp.
Handritasýning í Stofnun Árna
Magnússonar, Árnagarði við Suður-
götu. Handritasýning er opin kl. 14 -
16 þriðjudaga til föstudaga.
Sýningín Landafundir og ragnarök
stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu.
Sýningin er samstarfsverkefni við
Landafundanefnd og fjallar um
landafundi og siglingar (slendinga á
miðöldum með áherslu á fund
Grænlands og Vínlands.
Tilbiður íslenska
íslendingar héldu fimm sinnum þjóðhátíð á
Þingvöllum frá 1874-1994. Kolbeinn Óttarsson
Proppe veltir fyrir sér hvort Kristnitökuhátíðin
hafi verið sú sjötta.
fyrirlestur í skólum lærum viö að
þekkja þær. Fullveldishátíðina
1874, alþingishátíðina 1930, Lýð-
veldishátíðina (44), Lýðveldis- og
fullveldishátíð (74) og loks 50 ára
lýðveldisafmælið (94) sem flest-
um er enn í fersku minni.
Kolbeinn Óttarsson Proppé
sagnfræðingur mun ræða þessar
þjóðhátíðir og þjóðernisvitund
meðal fslendinga í Norræna hús-
inu í dag milli 12 og 13. Þá mun
hann fjalla um 6. hátíðina, Kristni-
tökuhátíðina, sem ef til vill var
engin þjóðhátíð.
„Ég hef farið yfir allan þennan
literatúr, ræður og annað sem hef-
ur verið skrifað í kringum þjóðhá-
tíðirnar og hef verið að skoða
hvaða augum íslendingar hafa lit-
ið sjálfa sig á þessum hátíðar-
stundum. Og hvort hægt sé að
greina þjóðernisvitund íslendinga
og í hverju hún felst, breytingar á
henni og annað,“ segir Kolbeinn,
einn gráan mánudagsmorgun þeg-
ar jólahátíðin er um garð gengin
og fáir í hátíðarskapi.
„John Hutchinson segir að þeg-
ar þjóð verði til megi líkja því við
að hún taki upp einhvers konar til-
beiðslu á sjálfri sér í stað þess að
áður var það fullvaldur konungur.
Þetta kemur glöggt í ljós á þessum
þjóðhátíöum, þær eru allar lagðar
upp eins og helgihátíðir. Biskup
helgar hátíðina og þetta er allt
mjög tengt kirkjunni og guði.“
Hann nefnir að saga íslensku
þjóðarinnar virðist við fyrstu sýn
vera stóra sameiningartákn þjóð-
arinnar á meðan fleira í sögu ann-
arra þjóða virðist frekar sundra
en sameina.
„Ég hef auðvitað ekki haft
tækifæri til að skoða þetta mjög
náið og auðvitað er margt sameig-
inlegt með þjóðhátíðum víðs vegar
um heim,“ bætir hann afsakandi
inn í eins og fræðimanna er lagið.
Talið berst að íslenska fánanum.
„Fáninn hér á landi er mjög
helgur. Við flíkum honum ekki
eins og t.a.m. Bandaríkjamenn
sem jafnvel klæðast honum. Á
móti kemur að þeir eiga ekki
þessa sameiginlegu sögu sem við
eigum og notast því við þessi
tákn.“
Á fyrirlestrinum í dag mun Kol-
beinn einnig ræða Kristnitökuhá-
tíðina sem hann segir hafa lotið
sömu lögmálum og hinar hátíðirn-
ar.
„Ég er svona að velta fyrir mér
í gamni hvort það mætti útskýra
dræma þátttöku á því að hún hafi
ekki verið þjóðhátíð. Manni finnst
allavega að þjóðin hafi litið svo á,
þó hún hafi verið skipulögð sem
slík.“
kristjangeir@frettabladid.i
FORMÚLUKENNDAR þjóðhátíðir
„Þjóðhátíðirnar íslensku eru formúlu-
kenndar og meira að segja ræðurnar á
hátíðunum líka," segir Kolbeinn Proppé.
Hann bendir á sem dæmi að ráðamenn
íslands hafi talað um sömu hlutina í
ræðum árið 1930 og 1994.
þjóðin sjálfa
Upp kemst um fölsuð Picasso málverk í Ankara í Tyrklandi:
Frumgerðirnar að finna í
Vetrarhöllinni í Pétursborg
málverk Tyrknesk stjórnvöld hafa
tekið niður fjórar myndir eftir
Picasso sem hafa verið til sýnis á
Ríkislistasafninu í Ankara í Tyrk-
landi. Ástæðan er sú að myndirnar
eru taldar falsaðar en verið er að
rannsaka fjórar myndir til viðbótar
eftir listamanninn i eigu safnsins
sem hugsanlega eru einnig falsaðar.
Verkin komust í eigu safnsins á sín-
um tíma eftir að upp komst um
listaverkasmyglara þar í landi.
Komust stjórnvöld að þeirri niður-
stöðu að málverkunum hefði verið
stolið úr höll konungs í Kúvæt eftir
innrás íraka árið 1990. Verkin áttu
að hafa verið brotin saman í fernt
og þeim smyglað úr landi vafin í
klæði. Þetta átti að skýra lóðrétt og
lárétt brot í myndunum. Konungs-
fjölskyldan í Kúvæt hefur hins veg-
ar staðfastlega haldið því fram að
engar Picasso myndir hafi horfið
frá þeim. Mikhaíl Petrovskíj, for-
stöðumaður Ilermitage safnsins í
Vetrahöllinni í Pétursborg, hefur
lýst því yfir að falsanirnar séu auk-
inheldur illa gerðar og að frumein-
tökin sé að finna í Hermitage í
Rússlandi. ■
PICASSO
Meðal mynda sem Ríkislistasafnið í Ankara
hefur haft til sýnis er verk sem Picasso
málaði af einni af hjákonum sínum, Doru
Marr.
FRÉTTABLAÐIÐ
19
1
ÞRIÐJUPAGUR 8. janúar 2002
Sverrir Ólafsson myndhöggvari:
Hlaut alþjóð-
leg verðlaun
höggmynd Sverrir Ólafsson,
myndhöggvari, hlaut verðlaun í
alþjóðlegri höggmyndasam-
keppni sem var haldin 5. nóvem-
ber síðastliðinn á eyjunni Isla
Mujeres sem er í Karabíahafinu
undan ströndum Mexíkó. Nær 30
myndhöggvarar hvaðanæva úr
heiminum tóku þátt í samkeppn-
inni en Sverrir var eini íslenski
þátttakandinn í þessari sam-
keppni sem skipulögð var af Rík-
islistasafninu í Mexíkóborg,
borgarstjórn Isle Mujeres og
fylkisstjórn Quintana Roo fylkis.
Jafnfi’amt veittu ofangreindir að-
ilar hver fyrir sig verðlaun fyrir
besta verkið að þeirra mati. í
samkeppninni þurftu listamenn-
irnir að reisa verk sín á staðnum.
Þrenn gullverðlaun voru í boði
og hlaut Sverrir þau öll fyrir
verk sitt Hús andanna sem er
þriggja tonna stálskúlptúr sem
nú hefur verið fundinn sérstakur
heiðursstaður í nágrenni við hið
í galleríi i8 stendur yfir sýning Roni
Horn. Sýningin kallast "Still Water (The
River Thames, for example)" og sam-
anstendur af Ijósmyndum af Thames
ánni og stuttum textabrotum. Bókverk
hennar „Becoming a Landscape" úr ís-
landsseríunni „To Place" er einnig til sýn-
is á sýningunni sem stendur til 12. janú-
ar.
í Ófeigi, Skólavörðustíg 5, sýna lista-
menn sem reka galleri Meistara Jakob í
sama húsi, til janúarloka. Listamennimir
eru Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdótt-
ir, grafík, Auður Vésteinsdóttir, listvefn-
aður, Elísabet Haraldsdóttir, leírlíst
Guðný Hafsteinsdóttir, leirlist Kristín
Sigfríður Garðarsdóttir, leirlist Kristin
Geirsdóttir, málverk, Margrét Guð-
mundsdóttir, grafík Sigríður Ágústs-
dóttir, leirlist Þorbjörg Þórðardóttir,
listvefnaður Þórður Hall, málverk.
í Listasafni Reykjavikur- Kjarvalsstöð-
um stendur yfir sýningin Leiðin að
miðju jarðar. Það er sýning tékkneskra
glerlistamanna, sem eru meðal þeirra
fremstu i heiminum. Kjarvalsstaðir eru
opnir alla daga 10-17 og miðvikudaga
10-19. Sýningin stendur til 13. janúar
2002.
Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir málverk á
Kaffi Mokka við Skólavörðustíg.
Svipir lands og sagna er yfirskrift sýn-
ingar á verkum Ásmundar Sveinssonar
i Lístasafni Reykjavíkur, Ásmundar-
safni. Á sýningunni eru verk sem span-
na allan feril listamannsins. Safnið er
opið daglega kl. 10 til 16 og stendur til
10. febrúar.
Nú stendur yfir sýning á 27 olíumálverk-
um eftir Helga Hálfdánarson í
Listacafé og Veislugallery í Listhúsinu
í Laugardal. Myndirnar eru á tilboðs-
verði út desembermánuð. Helgi hefur
stundað nám í oliumálun í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur '84 - 87 og á ýmsum
námskeiðum þar, i Myndlista- og hand-
íðaskólanum og í T.H. Aachen í Þýska-
landi .
í versluninni Dýrinu sýnir Sigurdís
Harpa Arnardóttir. Hún sýnir verk sem
hún kallar Stillimyndir. Verkið og fram-
setning þess hefur verið lengi að gerjast
í listamanninnum og er í beinu sam-
hengi og framhaldi af málverkum henn-
ar og Ijósmyndaverkum. Stillimyndir er
þrivítt verk sem byggist á stuttum frá-
sögnum, eins og atriði í kvikmynd, þó
án eiginlegs upphafs né endis.
Myndlistarsýning með verkum Þórðar
Hall myndlistarmanns stendur yfir í
Haligrímskirkju um þessar mundir. Sýn-
ingin er opin alla daga frá 9-17 og er
aðgangur ókeypis. Sýningin stendur til
20. febrúar.
Eyþór Árnason sýnir Ijósmyndir í Gall-
erí Geysi. Sýningin heitir „Mynd í
myrkri" vegna stemningarinnar sem
listamaðurinn einsetti sér að búa til í
myndunum. Á sýningunni verða um 19
myndir og munu þær hanga uppi út
mánuðinn.
Eva Dögg Þorsteinsdóttir sýnir málverk
í Hár og sýningahúsinu UNIQUE, Laug-
arvegi 168, (Brautarholtsmegin). Á sýn-
ingunni eru bæði stærri og minni verk.
Myndirnar eru mestmegnis tengdar fólki
og mannlífi en einnig málar hún lands-
lagsmyndir. Sýningin er sölusýning og
stendur fram í desember. Opnunartími
sýningarinnar er frá kl.10 til 18 alla virka
daga, en 10 til 14 laugardaga.
Kristín Reynisdóttir sýnir verk í Þjóðar-
bókhlöðunni. Þetta er fjórða sýningin í
sýningaröðinni Fellingar sem er sam-
starfsverkefni Kvennasögusafnsins,
Landsbókasafns íslands - Háskólabóka-
safns og 13 starfandi myndlistarkvenna.
Opnunartími Kvennasögusafnsins er
milli klukkan 9 og 17 virka daga.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabladid.is
Helga Kristrún Hjálmarsdóttir mynd-
listarmaður sýnir verk í Galleríi Sæv-
ars Karls. Helga, sem er af „ungu og
óræðnu" kynslóð myndlistarmanna
eins og hún segir sjálf, sýnir tíu
veggskúlptúra, að mestu úr ryðfríu
stáli og kítti, sem hún vann á síðasta
ári. Helga er ævinlega að „reyna við
fegurðina" eins og hún upplifir hana
þann daginn sem hún tekst á við
verkið.
í Listasafni íslands stendur nú yfir
yfirlitssýning sem ber heitið "íslensk
myndlist á 20. öld". Sýnd eru verk í
eigu safnsins eftir 38 íslenska lista-
menn. Sá elsti er Þórarinn B. Þor-
láksson en sá yngsti Sigurður Árni
Sigurðsson. Sýningin veitir gestum
gott tækifæri til að fá yfirlit yfir margt
það helsta í íslenskri myndlist um
100 ára skeið. í sýningarskrá er gerð
grein fyrir stefnum og straumum sem
höfðu áhrif á íslenska myndlistar-
menn og verk þeirra sett í innlent og
erlent samhengi. Safnið er opið alla
daga nema mánudaga, 11-17. Sýning-
in stendur til 15. janúar.
MYNDLIST
Hitt Húsið og Skjár einn:
Stuttmyndagerð
fyrir ungt fólk
SVERRIR ólafsson
Verk Sverris, Hús andanna, þótti skírskota
vel til framtíðar um leið og það kallaðist á
við fortíðina og þótti afar vel heppnuð til-
vísun í fornan menningararf Mayanna.
Sverrir gaf Mexíkönsku þjóðinni verk sitt
að samkeppninni lokinni.
forna Maya musteri kvenna á
eyjunni Isla Mujeres. ■
námskeið Hitt Húsið og Skjár einn
ætla nú í janúar að ráðast í stutt-
myndaverkefni en það sam-
anstendur af ókeypis námskeiði í
stuttmyndagerð og stuttmynda-
samkeppni fyrir fólk á aldi-inum
16-25 ára. Námskeiðið í stutt-
myndagerð verður haldið dagana
15., 17., 22. og 24. janúar frá kl. 20-
22 alla dagana á Geysi Kakóbar.
Þeir sem standa uppi sem sigui’-
vegarar fá veglega vinninga og
munu myndirnar verða sýndar á
Skjá einum. Takmarkaður fjöldi
er á námskeiðið
og er skráning
hafin.
Stuttmynda-
samkeppnin
hefst að loknu
námskeiðinu og
munu þátttak-
endur fá góðan
tíma til að vinna
myndirnar sínar. Ekki er nauðsyn-
legt að fara á námskeiðið til að
taka þátt í keppninni. Skilafrestur
mynda er til 19. febrúar. ■
ArtWatch - andstæðingar endurbóta á gömlum listmunum:
Horfið frá endurbótum
á æskuverki da Vincis
flórens Uffizi galleríið í Flórens
hefur hætt við að láta gera upp
eitt af meistai’averkum ítalska
endurreisnarlistamannsins Le-
onardo da Vinci í kjölfar þrýst-
ings fi’á alþjóðlegum hagsmuna-
samtökum þar um. Verkið, sem
nefnist: Aðdáun á Magi, málaði
da Vinci á sínum yngri árum og
hafði ónefndur kaupsýslumaður
boðist til að fjármagna endur-
bæturnar. Samtökin ArtWatch,
sem berjast gegn endurbótum á
gömlum listaverkum, settu sig
upp á móti hugmyndinni og hrin-
tu af stað herferð gegn henni.
Meðal félagsmanna í ArtWatch
eru margir af helstu sérfræðing-
um í listum frá Endurreisnar-
AÐDÁUN
Verkið sem um ræðir málaði da Vinci á
sínum yngri árum. Hann lauk aldrei við
myndina.
tímanum og þeirra á meðal var
Sir Ernst Gombrich, höfundur
Sögu listarinnar, sem lést í nóv-
ember á síðasta ári.
Mike Daley, yfirmaður
ArtWatch, segir tíðindin mjög
ánægjuleg, sérstaklega í ljósi
þess að Louvre safnið tilkynnti
nýlega að hætt yrði við endur-
bætur á Monu Lisu sem fyrir-
hugaðar voru á næstunni. Daley
sagði að svo virtist sem almenn-
ingsálitið væri að hallast á sveif
með andstæðingum endurbóta á
gömlum listmunum. „Þetta var
sérstaklega illa til fundið með
Aðdáun -sem er verk sem var á
vinnslustigi,11 segir Daley.
Þess má geta að í ár er þess
minnst að 550 ár eru frá fæðingu
da Vincis skammt frá Flórens. ■
Söngsveitin Fílharmónía:
Æfingar hafnar á Messu
heilagrar Sesselju
tónlist Söngsveitin Fílharmónía
hóf síðastliðinn mánudag æfing-
ar á söngverki Josef Haydn,
Messa heilagrar Sesselju. Ráð-
gert er að flytja verkið á tónleik-
um í Langholtskirkju 17. og 19.
mars næstkomandi.
Messan er samin árið 1766
fyrir fjóra einsöngvara, kór og
hljómsveit um það leyti sem
Haydn flutti með Nicholas
Esterhazy, prinsi, í hina nýju
höll Esterhazy í Ungverjalandi.
Hún er lengsta messa Haydns og
mun lengri en hefðbundin messa
og því ólíklega verið flutt við
hefðbundið messuhald. Lengd og
gerð messunnar fellur i sama
flokk og C-moll messa Mozarts
og H-moll messa Bachs. Verkið
er fyrsta stóra söngverk Haydns
í starfi hjá Esterhazy og er afar
bretlanp Heimsóknir hafa tvö-
faldast á bresk listasöfn eftir að
ríkisstjórnin felldi niður að-
gangseyri á^ öll ríkislistasöfn á
síðasta ári. Á sumum söfnun hef-
ur fjöldi gesta fjórfaldast að því
er fram kemur í tölum sem ný-
lega voru birtar. Verkamanna-
flokkurinn hefur frá árinu 1997
haft á stefnuskrá sinni að fella
niður aðgangseyri á söfn. Tals-
menn listasafna höfðu hins vegar
af því áhyggjur að það myndi
bitna á afkomu safnanna, einkum
vegna breskra skattalaga. Af
þeim sökum hafði framkvæmd-
inni ítrekað verið skotið á frest
þar til viðunandi lausn fyndist.
Gordon Brown, fjármálaráð-
herra Bretlands, tilkynnti loks í
fyrra að ákveðið hefði verið að
ókeypis söfn myndu eftirleiðis
eiga kost á að fá vii’ðisaukaskatt
vegna útgjalda endurgreiddan.
Menningarmálaráðherra
landsins, Tessa Jowell, segir nú
ljóst að aðgerðir ríkisstjórnar-
innar hafi heppnast frábærlega.
Sagði hún að eldra fyrirkomulag
hefði fælt barnafjölskyldur og
margslungið enda sameinast þar
eldri form, t.d. hæga fúgan í
Gi’atias, og tónmál óperunnar,
t.d. í Domine Deus, auk nýrra
hugmynda Haydns í tónmáli sem
birtist í mótífum fyrir pákur og
trompeta í Gloria in excelsis
Deo.
Stjórnandi Söngsveitarinnar
er Bernharður Wilkinson, að-
stoðarhljómsveitarstjóri Sinfón-
íuhljómsveitar íslands, píanó-
leikari er Guðríður St. Sigurðar-
dóttir en raddþjálfun annast El-
ísabet Erlingsdóttir. ■
JOSFE HAYDN
Verkið Messa heilagrar Sesselju
er fyrsta stóra söngverk Haydns i
starfi hjá Esterhazy en það var
samið árið 1766.
AÐ NJÓTA LISTAR
Gestum á Viktoríu og Albert safninu fjölg-
aði verulega. Á síðasta ári heimsóttu safnið
rúmlega 174 þúsund manns miðað tæp
43 þúsund á sama tíma í hitteðfyrra.
námsmenn frá söfnum en að nú
litu rnenn á heimsókn í listasafn
sem jafn sjálfsagða afþreyingu
og aö fá sér göngutúr í skemmti-
garðinum. ■
Niðurfelling á aðgangseyri í bresk listasöfn hefur
gefist vel:
Allt að íjórum sinnum
fleiri gestir í listasöfnum