Fréttablaðið - 08.01.2002, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 08.01.2002, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUPAGUR 8. janúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 17 REGflBDGinn Sýnd kl. 6, 8 og 10 [bandiís kl. 5.30 og 8 j K rMOULÍN ROUCE kl. 5.30, 8 og 10.301| j|THE MAN WHO WASN'T THERE kl. 10.2o|| |ÍLJÖS HEIMSINS kksll L ' ' J CSDolby /DDJ, ' Thx Yves Saint Laurent - höfundur að fataskáp nútímakonunnar: Kveður tískuheiminn eftir tæp 50 ár í starfi Það er ekki nóg með að börn George Lucas hafi náð því í gegn að strákasveitin N*Sync fái að koma fram í næstu Star Wars mynd sem Jedi-riddarar því að þau fara sjálf einnig með smá- hlutverk í mynd- inni. Góðu frétt- irnar eru hinsve- gar þær að allt bendir til þess að við fáum að sjá strákanna í N*Sync farast í sprengingu í einu atriðanna. Talsmenn segja einnig að þeir sjáist aðeins í nokkrar sekún- dur. Ewan McGregor, sem fer með hlutverk Obi-Wan Kenobis, segist vera búinn að sjá nokkur brot úr myndinni, og á varla til orð til þess að lýsa hrifningu sinni. Hann lofar mun betri mynd en síðast en aðdáendur myndabálksins eru byrjaðir að ókyrrast. TÍSKA Fatahönnuðurinn Yves Saint Laurent tilkynnti í gær þá ákvörðun sína að hætta afskipt- um af fatahönnun, 65 ára gamall. Orðrómur um að hann hygðist setjast í helgan stein hafði verið á kreiki undanfarnar vikur. „Ég hef valið daginn í dag til að kveðja þetta starf sem ég hef haft svo mikla unun af,“ sagði Saint Laurent á blaðamannafundi í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Frakklandi í gær. „Ég hef trúað því um langa hríð að tíska geri ekki aðeins kon- ur fallegri heldur ,byggi upp sjálfstraust þeirra. Ég hef talið sjálfum mér trú um að ég hafi byggt upp fataskáp nútímakon- unnar og tekið þátt í umbreyting- um minna tíma.“ Hann nefndi enga sérstaka ástæðu fyrir því að hann hygðist hætta en minntist á að hann hefði átt við heilsuleysi og þunglyndi að stríða undanfarin ár. Haft var eftir samstarfsfélaga hans, Pi- erre Berge, að hann væri að hætta vegna þess að hann væri ekki sáttur við þróunina í tísku- heiminum undanfarin ár. Saint Laurent er alsírskur að uppruna. Hann hefur starfað við fatahönnun í tæp 50 ár og er frægur fyrir að hafa þróað buxnadragtina og kven- mannsjakkann. Það var árið 1953 að Michel de Brunhoff hjá Vogue uppgötvaði hinn unga og upp- rennandi fatahönnuð. Hann fékk vinnu sem hönnuður hjá Christi- an Dior en sagði skilið við Dior árið 1961 og stofnaði eigið tísku- hús. Saint Laurent var oft naskur á að fanga augnablikið í hönnun TÆPUR Á HEILSU Yves Saint Laurent hefur lengi átt við heilsuleysi að stríða. Hann var lengi háður áfengi og eiturlyfjum en náði að lokum að sigrast á fíkninni. Ekki tók betra við. Saint Laurent er stórreykingamaður; reykir allt að 150 sigarettur á dag og drekkur tuttugu dósir af gosi. sinni og fræg eru kjólföt sem hann setti á markað fyrir konur árið 1966. Undanfarin tuttugu ár hefur hann hins vegar oft verið gagnrýndur fyrir að fylgja ekki nýjustu straumum og stefnum í tísku. Síðasta fatalínan frá Saint Laurent verður sýnd síðar í mán- uðinum. ■ Aðdráttarafl TILFINNINGIN ER GOÐ Þegar hönnuðir Toyota fengu það verkefni að hanna nýja kynslóð mest keypta bíls í heimi var markið sett hátt - að hefja orðið gæði í annað veldi. Aukið höfuð- og fótarými, einstaklega vel hannað innanrými og vandað efnisval eykur enn á þægindi ökumanns og farþega. Það er svo ekki til að minnka aðdráttaraflið að nýr Corolla er aflmeiri, eyðir minnu og rekstrarkostnaður hans er einn sá lægsti fyrir bifreiðar í þessum flokki. www.corolla.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.