Fréttablaðið - 21.03.2002, Side 11
FIMMTUDAGUR 21. mars 2002
Orderud-morðin í Noregi:
Urskurðar kvið-
dóms vænst í dag
noregur í gær dró kviðdómur í
norska Orderud-málinu sig í hlé
til þess að komast að niðurstöðu
um sekt eða sakleysi sakborning-
anna fjögurra. Ekki var búist við
niðurstöðu fyrr en í fyrsta lagi
snemma í dag.
Orderud-morðin voru framin
sunnudaginn 23. maí árið 1999. Þá
voru Anna Orderud Paust og aldr-
aðir foreldrar hennar, Kristian og
Marie Orderud, myrt á sveitasetri
foreldranna í Orderud í Noregi.
Fljótlega féll grunur á fjórar
manneskjur, þau Per Orderud,
sem er sonur öldruðu hjónanna,
eiginkonu hans Veronicu, hálf-
systur hennar Kristin Kirkemo
Haukeland og fyrrverandi sam-
býlismann hennar, Lars
Gr0nner0d.
Ástæða morðanna virðast vera
heiftarlegar deilur um hús for-
eldranna í Orderud.
Morðmálið hefur vakið gífur-
lega athygli í Noregi og er fylgst
grannt með allri þróun þess í fjöl-
miðlum. íslenski réttargeðlæknir-
inn Gísli Guðjónsson er meðal
þeirra sem báru vitni í málinu. ■
PÁSKAEGG
Páskaegg eru vinsæl en góðgætið er dýrt.
40-50% verd-
munur á
páskaeggjum
Mikill verðmunur er á páskaeggjum á milli
verslana. Allt að 210% munur er á kílóverði á
páskaeggjum ef bornar eru saman mismun-
andi tegundir. Eggin eru ódýrust í Bónus.
páskaegg Gífurlegur verðmunur
er á páskaeggjum milli verslana.
Þau eru langódýrust í Bónus.
Munar nær 40% á verði á páska-
eggjum nr. 4 frá Nóa-Síríus í Bón-
us og verðinu í 11-11,10-11 og Ný-
kaup. Munurinn er enn meiri á
eggjum nr. 6 frá Mónu. Þau eru
ódýrust í Bónus, á 899 kr. stykkið,
en kosta 1.359 í Hagkaupum. Þetta
er 50% verðmunur.
í verðkönnum Fréttablaðsins
var kannað verð á eggjum nr. 4
frá Nóa-Síríus, Ópaleggjum frá
Nóa-Síríus, nr. 6 frá Mónu og nr. 4
frá Góu þar sem þau voru til og
Marsbúaeggjum frá sama fyrir-
tæki. Bónus selur líka egg undir
eigin nafni sem Góa framleiðir og
Krónan egg sem Móna framleiðir.
Eggin eru ekki alveg sambærileg
í þyngd. Nóaeggin eru 300 g,
Mónueggin eru 350 g og Góueggin
325 g. Sambærilegt Bónusegg er
315 g en Krónuegg eru bara fram-
leidd í 200 g.
Ekki er því alveg raunhæft að
bera verðið á eggjunum saman á
milli tegunda nema kílóverðið sé
skoðað. Þá kemur í ljós mikill
verðmunur. Lægst er kílóverðið á
KÍLÓAVERÐ Á EGGJUM
Nóaegg* nr. 4: 3,53
Mónuegg* nr. 6: 3.408
Góuegg*: 2.820
Ópalegg* nr. 4: 2.763
Bónusegg: 1.902
Krónuegg: 2.745
* Meðalkílóverð
Bónuseggi, eða 1.902 kr. á kílóið.
Hæst er kílóverðið á Nóa-Síríus
eggjum í Nýkaupum, 11-11 og 10-
11, 3.997 kr. á kílóið. 210% verð-
munur er því á kílóverði á páska-
eggjum. Hér er vitaskuld ekki
tekið tillit til bragðs, gæða og úr-
vals sælgætis sem finna má inni í
eggjunum.
Niðurstöðurnar sýna hins veg-
ar ótvírætt að spara má mikinn
pening í fjölskylduinnkaupunum
á páskaeggjum. Ef keypt eru fjög-
ur Nóa-Síríusegg í Bónus kostar
það 3.436. Ef sömu egg eru keypt í
11-11, 10-11 og Nýkaupum kosta
þau 4.796. Ef keypt eru fjögur
Mónuegg í Bónus kostar það
3.596, í Nýkaupum kosta þau alls
5.396.
sigridur@frettabladid.is
VERÐSAMANBURÐUR Á EGGJUM MILLI VERSLANA*
Nói-Síríus Opalegg Móna Góa Marsbúaegg 1
nr. 4 (300 g) nr. 4 (300 g) nr. 6 (350 g) nr 4 (325g) (frá Góu)(325)
11-11 1199/3997 kg 1 -■ ■§ * 1298/3709kg
10-11 1199/3997 kg 1329/3797kg 949/2920kg 899/2766kg |
Bónus 859/2863 kg , 899/2569kg 799/2450kg :
Nóatún 1159/3863 kg 889/2963kg 1198/3423k
Nýkaup 1199/3997 kg 899/2963kg 1349/3854 kg 1099/3382kg ' ' , , I
Hagkaup 1198/3993 kg 849/2830kg 1198/3423kg 839/2582kg
Krónan 859/2863 kg 689/2297kg 1079/3083kg 1
*verslanir sem um er að ræða eru 11-11 á Laugavegi, 10-11 á Hverfisgötu, Bónus á Laugavegi, Nóatún í Nóa-
túni, Hagkaup f Skeifunni, Krónan í Skeifunni.
NORRSUND O.VOO KV
innrömmuó mynd 90X90 sm
BLIST geisladiskaskápur
2.500 kr. _
Urval
JUTIS geisladiskarekki
r 3.900 kr.
JUTIS
hátalarastandar silfur-
litað stál á steinsökkli. Lítill
ÍKEA ©r Virfce dqge kt 1 ö* 'r 83G
LowJoaráraicic Scl. t ö* 17 ScWrisadeiac fcl.