Alþýðublaðið - 04.06.1960, Side 2
ÍTtgefandi: Alþýðuflokkurinn. —
«=- Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar
Citstjórnar: Sigvaidi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14900 — 14902 — 14 903. Auglýsingasími *.
£4906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis-
Cata 8—10. — Áskríftargjald: kr. 45.00 á mánuðL í lausasölu kr. 3,00 eint.
„Drengskapur"
kommúnista...
mMamBamaatsaaamBaamaaamma^Bmmmmmm
J ÞJÓÐVILJINN kallar það „ódrengskap“ af Al-
I þýðublaðinu að skrifa um landhelgismálið og af-
i Stöðu Lúðvíks Jósefssonar til afgreiðslu þess í
| Genf, þar eð Lúðvík sé staddur í Tékkóslóvakíu til
! lækninga.
Alþýðublaðið verður að minna á, að
j Jpað var Þjóðviljinn, sem hóf deilur og skýrði frá
í Mofningi sendinefndarinnar í Genf. Ennfremur
j hefur Lúðvík skrifað grein eftir grein úti á heilsu
I Ííiælinu, og í þeim greinum ráðizt mjög ódrengilega
i' á Guðmund í. Guðmundsson, Bjarna Benediktsson
| og.aðra í meirihluta sendinefndarinnar.
| ; Samkvæmt hugmyndum Þjóðviljans á Lúðvík
| að leyfast að senda óhróður, dylgjur og rangfærsl
I lur um málið heim og láta birta eftir sig í Þjóðvilj-
! anum. En það „ódregnskapur“ ef Alþýðublaðið
j leyfir sér að víkja að hlut Lúvíks í málinu!
... og joáttur Hermanns
SVIPAÐA SÖGU er að segja af Hermanni
! Jónassyni. Honum hefur ekki tekizt að útskýra
i hina furðulegu afstöðu sína í Genf, svo að nokkur
i snaður finni í henni heila brú. Hitt sjá menn og
! ískilja, að Hermann hefur nú gengið fram fyrir
j skjöldu til að verja Lúðvík, eftir að Alþýðublaðið
! fjóstraði upp sannleikanum um framkomu Lúðvíks
i :í Genf.
Hermanni hefur ekkert fundizt athugavert
, við dylgjur Lúðvíks um að meirihluti nefndarinn
ar hafi setið á svikráðum við málstað íslands, og
fleira af því tagi. Hann lætur slík skrif fram hjá sér
íafa athugasemndalaus.
Þegar skýrt var frá framkomu Lúðvíks í Genf,
i birtist í Þjóðviljanum forsíðuviðtal við Hermann,
bar sem hann kallar það „furðulega lygasögu“ sem
Alþýðublaðið skýrði frá. Hermanni finnst ágætt,
að forustumenn lýðræðisflokkanna í landhelgis-
málinu séu svívirtir, en hann þolir ekki mótmæla-
laust, að sagður sé sannleikurinn um kommúnista.
Alþýðublaðið hafði öruggar heimildir fyrir
því, sem það sagði um framkomu Lúðvíks, og stend
ur, fast við frásögn sína, þrátt fyrir stóryrði Her-
manns. Hann hefur ekki vaxið af þessu máli og
bætir sízt úr skák með því að taka að sér að hvítþvo
Lúðvík Jósefsson.
fmmmmmmmammummmmMmmammmammaammammmmammammmamammmammm
Hannes
h o
r n i n u
Ji'W#*.'"
•fc Alþingi tók örlagaríkar j
ákvarðanir
Samgöngurnar innan-
bæjar.
•fe Stöðvunarmerki —
Götumælar.
•fe Arnarhólstúnið —
Snobbið.
AL.MNGI hefur lokið störfum
og nú verSur hlé á til annarra
starfa. Ég býst við, að það sé
rétt, sem haldið er fram, að ekk
ert alþing í marga áratugi hafi
tekið eins víðtækar og örlagarík-
ar ákvarðanir í efnahagsmálum
þjóðarinnar og þetta þing. I
raun og veru hefur algerlega
verið snúið við blaðinu. Það
mun lengi verða vitnað til þessa
þngs. Mg furðaði á því við sið-
i ustu útvarpsumraeður hvað léleg
frammistaða stjórnarandstöðunn
ar var. Það hlýtur að stafa af
því, að hún finnur sjálf að hún
stendur höllum fæti.
PÉTUR SKRIFAR: „Samgöng
ur hér innanbæjar eru að mörgu
leyti erfiðar, því ekki var búizt
við nándar nærri þeirr umferð
ökutækja, sem nú á sér stað, svo
götur eru vfða þröngar, þó á-
standð sé sízt verra hér en í
mörgum gömlum stórborgum
nágrannalöndunum. En ég held
að annað sé verra en götuþrengsl
in, en það er hið almenna skeyt-
ingarleysi almennings, — bæði
ökumanna og fótgangandi fólks,
um að hlýða settum reglum.
FYRIR NOKKRUM ARUM
voru sett upp skilti við aðalbraut
ir, sem áminntu ökumenn um að
stanza. Þessu átti auðvitað að
hlýða skilyrðislaust þannig að
ökumaður átti að stanza við að-
albraut, hvort sem nokkur um-
ferð var á aðalbrautinni eða
ekki. Þessi reg'la var svo ræki-
lega brotin, að umferðarstjórn
bæjarins ákvað að setja upp ný
stöðvunarmerki og nú átti regl-
an að giida, að ökutæki stönz-
uðu við merkin, þó engin um-
ferð væri þá stundina á aðal-
braut. Undanfarna viku hef ég
§kið mikið um bæinn og athug-
að gaumgæfilega hvernig hlýtt
væri þessum nýju stöðvunarregl
um.
EKKI^ EINN EINASTI BÍLLi
hefur stanzað við þessi nýju
merki, þegar umferð á aðalbraut
hefur ekki hamlað og skipta þeir
orðið tugum bílarnir, sem ég he£
staðið að broti á þessari umferð-
arreglu. Sannast sagna hef ég
engan bíl séð stanza við þessi
nýju merki, hafi umferðin ekki
neytt hann til þess. Og meira að
segja sá ég einu sinni lögreglu-
þjón horfa á tvo bíla brjóta regl-
una.
STÖÐUMÆLAR hafa verið
settir upp víðs vegar um bæinn.
Þeir eru óþægilegir fyrir fólk,
sem þarf að stanza lengur með
bíla sína en hinn afmarkaðá
tíma. Sektir fyrir það að bíll
1 Framhald á 14. síðu.
Hvernig
sem þér
ferðist
áláði
Munu
FERÐATRYGGINGAR
okkar velta yður
mikið öryggi.
Þær tryggja yður tyrir alls konar slysum, greiða sjúkrakostnað yðar, greiða
yður dagpeninga verðið þer óvinnufær svo og örorkubætur, ennfremur mun
fjöiskyldu yðar greiddar dánarbætur
FERÐATRYGGINGAR okkar eru mjög ódýrar, t. d. er iðgjaldið fyrir 100.000
króna tryggingu, hvernig sem þér ferðist innan lands eða utan i hálfan mán-
uð aðeins kr. 85.00. Auk þess verður nú endurgreitt 10% af greiddum ið-
gjöldum til allra þeirra, sem ferðatryggðu sig á árinu 1959. Er það tekju-
afgangur af ferðatryggingum á því ári.
SlMINN ER 17080 og ferðatrygging yðar er í gildi samstundis.
S ARD'VO FIN UTT DSY(G <G H KTíBAMR
'Jt 4. júní 1960 — Ajþýðuþiaðiö,