Alþýðublaðið - 04.06.1960, Page 3
Plastver h/f, nýtt
iðnaðarfyrirtæki
STOFNAÐ hefur verið nýtt
fyrirtæki, Plastver h.f., sem
mun framlei'ða alls konar vör-
ur til veiðarfæra úr plasti, svo
sem baujur, lóðabelgi og neta-
Sjálfvirk
símstöb
á Akranesi
SAMEINAÐ ALÞINGI sam-
þykkti í gær að vísa frá tillögu
um sjálfvirka símstöð á Akra-
nesi (af þeim sökum, a’ð þegar
er búiði að ákveða stöðina og
panta til hennar efni, svo að
tillagan var óþörf með öllu.
Daníel Ágústínusson flutti
þessa tillögu, er hann sat á
iþingi fyrir Halldór Sigurðsson.
Nú gaf öll fjárveitinganefnd, —
þar á meðal Halldór, út það áiit,
að tilJagan væri óþörf og lagði
til, að henni væri vísað frá. —
Framsóknarmen greiddu at-
kvæði með því.
flot af öllum stærðum og gerð-
um. Verksmiðjan verður stað-
sett í Hafnarfirði, en aðalhvata
menn að stofnun hins nýja
fyrirtækis eru þeir Jóngeir D.
Eyrbekk í Hafnarfirði og Tóm-
as P. Óskarsson, Reyltjavík.
Vélar hafa þegar verið keypt-
ar og eru þær væntanlegar
næstu vikur. Þá er von á véla-
verkfræðingi, sem annast upp-
setningu vélanna, svo og efna-
fræðingi, sem fyrst um sinn
aðstoðar við framleiðsluna,
enda er hér um nýja plastefna-
blöndu að ræða, mun betri en
þekkzt hefur fram að þessu.
Vélar þessar eru að mestu
leyti sjálfvirkar og afköst
þeirra mikil. Verður þar af leið
andi unnt að fullnægja árlegri
notkun sjávarútvegsins með
aðeins nokkurra mánaða fram-
leiðslu. Annan tíma ársins
verða því framleiddar ýmsar
aðrar plastvörur.
Fyrir aðeins örfáum árum
var hafin framleiðsla erlendis
á ofangreindum vörum úr
plasti. Hafa þær líkað svo vel,
að korkur og gler og eldri gerð-
ir þelgja hafa nú svo að segja
vikið fyrir þessari framleiðslu
úr plasti.
Kappreiðar annan
hvítasunnudag
ANNAN hvítasunnudag fara
fram hinar árlegu veðreiðar
Hestamannafélagsins Fáks á
skeiðvellinum vi'ð Elliðaár. —
Á veiðreiðum þessum keppa 27
hestar, og eru það allt nafn-
þekktir i'u’vals gæðingar.
Á undanförnum árum hafa
hestar Þorgeirs bónda í Gufu-
nesi unnið svo að segja öll verð-
launin á kappreiðum þessum.
Sá hestur Þorgeirs, sem örugg-
astur hefur verið með sigur í
350 m. hlaupi er Gnýfari. Nú
hafa Laugvetningar sent hest,
sem talinn er geta veitt Gný-
fara harða keppni', en það er
Gulur, sem náð hefur betri
tíma en Gnýfari á þessum
spretti.
Á skeiðinu mæta margir góð
ir garpar, og er þar fræga að
nefna Glettu, Gulltopp Jóns í
Varmalandi, og Nasa Þorgeirs
í Gufunesi. Laugvetningar
senda einnig mjög góðan hest
til keppni á skeiðinu, en það er
Trausti, íem náð hefur góðum
árangri í þessari grein.
Á skeiði keppa 2 flokkar. í
þeim fyrri’ verða Trausti, Gull-
toppur, Nasi, Gletta og Blesi.
í þeim síðari verða Litla-Gletta
Jarpur, sem er úr Árnessýslu,
Óðinn frá Gufunesi, Logi frá
Varmalandi og Venus úr Kjósa
sýslu. Á 300 m. keppa 12 hestar
í þrem flokkum. 5 beztu hest-
arnir komast í úrslit. Á 350 m.
keppa 6 hestar í 2 flokkum.
Verðlaunin sem keppt er um eru
allt frá 500—2000 krónum.
Er ekki að efa að marga fýsi
að horfa á þessar kappreiðar.
Prinsessur á
ferb
KAUPMANNAHÖFN, 3. júní.
SAS-flugvélin Hákon víking-
ur hóf sig til flugs frá Kastrup
í kvöld sem fyrsta SAS-þot:an á
póilleiðinni /hjilli Skandínavíu
og Los Angeles. Innanborðs
voru þrjár norrænar prinsessur
— Margrét Danaprinsessa, Ast-
rid Noregsprinsessa og Margrét
Svíaprinsessa. Friðrik Dana-
konungur og Ingiríður drottn-
ing voru viðstödd brottförina.
Þar eð völlurinn í Syðri-Straum
firði er ekki tilbúinn til notk-
unar, verður fyrst um sinn flog-
ið um Montreal í Kanada.
ÞINGLAUSNIR fóru
fram á alþingi í fyrradag.
Hafði þingið staðið frá 20.
nóv. til 7. desember 1959
og 20. jan. — 3. júní 1960.
Alls voru haldnir 240 þing
fundir, 51 lög afgreidd og
25 þingsályktunartillögur
samþykktar.
í fjarveru aðalforseta Sam-
einaðs alþingis, Friðjóns Skarp
Kidson
fer í dag
PETER Kidson, annar rit-
ari þrezka sendiráðsins, fer í
dag af landi burt eftir fjög-
urra ára starf hér á landi.
Hann kom hingað til lands ár-
ið 1956, en áður hafði hann
dvalizt hér í brezka hernum
á stríðsárunum.
Kidson er einn þeirra er-
lendu sendimanna, sem mest
hafa lagt sig eftir íslenzku
máli og menningu. Hann er
óvenju mikill málamaður, tal
ar auk ágætrar íslenzku,
þýzku, rússnesku, sænsku,
ítölsku og frönsku. Hefur
hann starfað í utanríkisþjón-
ustu lands síns síðan styrjöld-
inni lauk, og farið víða um
lönd, bæði í Evrópu og allt til
Framlhald á 5, síðu.
héðinssonar, flutti Sigurður
Ágústsson, varaforseti ræðu.
Þakkaði hann alþingismönnum
ánægjulegt samstarf á vetrin-
um, svo og starfsfólki þingsins.
Síðan kvaddi hann þingmenn
og óskaði utanbæjarþingmönn-
um góðrar heimferðar. Eysteinn
Jónsson þakkaði fyrir hönd
þingmanna árnaðaróskir þing-
forseta.
Forseti íslands tók þvínæst
til máls og las forsetabréf er
svo hljóðaði: Alþingi, 80. lög-
gjafarþing, hefur lokið störf-
um. Mun ég því slíta alþingi í
dag, föstudaginn 3. júní 1960.
Gert í Reykjavík 3. júní 1960.
Ásgeir Ásgeirsson,
Ólafur Thors.
Síðan óskaði hann þingmönn
um velfarnaðar og þjóðinni
allra heilla. Ólafur Thors for-
sætisráðherra mælti: Heill for-
seta vorum og fósturjörð. ís-
land lifi! Tók Þingheimur und-
ir þau orð með ferföldu húrra-
hrópi. j
Sauðfjársjúk-
dómanefnd
SKÖMMU fyrir þingslit
komu landbúnaðarnefndir
beggja deilda alþingis saman
til að kjósa sauðfjársjúkdóma-
nefnd. Þessir menn voru kjörn-
ir: Tryggvi Sveinbjörnsson,
bóndi að Laugarbóli í Suður-
Þingeyjarsýslu, fyrir Alþýðu-
flokkinn; Gunnar Þórðarson í
Grænumýrartungu og Jón
Gíslason í Norðurhjáleigu fyrir
Framsóknarflokkinn og þeir
Friðjón Þórðarson sýslumaður
og Óskar Leví, Ósum, fyrir
Sj álfstæðisflokkinn.
Hull-togari
á Akureyri
AKUREYRI, 3. júní. — í nótt
korp hingað brezki togarinn
„Othello“ frá Hull. Leitaði tog-
arinn hafnar vegna bilunar á
katli skipsins, auk þess sem
radartæki var bilað. Togarinn
var að veiðum við Langanes,
þegar bilunin átti sér stað, og
er með lítinn afla.
í moigun átti ég tal við skip-
stjórann, Malcolm Clark að
nafni. Hann er 27 ára að aldri,
geðþekkur ungur maður, sem
er nýbyrjaður sem skipstjóri á
togaranum.
Annars hefur Clark verið
lengi til sjós eða allt frá 14 ára
aldri. Þetta er í annað sinn
sem hann kemur í land á ís-
landi; áður á Seyðisfirði.
Varðandi landhelgisdeiluna
vildi skipstjórj ekki segja mik-
ið, en kvað bað einlægustu von
sína að því máli lyki sem fyrst.
Aðspurður um það, hvernig
honum og áhöfninni litist á að
stíga á land „óvinarins“ í
þorskastríðinu, sagði Clark, að
fólkið væri afskaplega vingjarn
legt og þeir ættu ekki von á
neinum árekstrum.
Togarinn „Othello“ er mjög
frægt skip úr landhelgisdeil-
unni hér við land. Það var þessi
togari, sem gerði hvað ítrekað-
astar tilraunir til að sigla varð-
skipið „Maríu Júlíu“ niður á
sínum tíma. Skipstjóri var þa
annar en nú og mun sá hafa
verið rekinn úr starfi. — G.St.
Veturliði
sýnir i Eyjum
VETURLIÐI Gunnarsson mun
opna í dag, laugardag, málverka
sýningu í KFUM-húsinu £ Vest
mannaeyjum. Sýningin verður
opin um hvítasunnuna.
Veturliðj mun sýna 90 mynd
ir, vatnslitamyndir og olíumýnd
ir. Um 40 olíumálverk eru frá
Vestmannaeyjum.
AlþýðublaðSi — 4. júní 1960 3