Alþýðublaðið - 04.06.1960, Blaðsíða 11
Rússar unnu verð-
skuldaðan sigur 3:0
HIÐ VIÐKUNNA rússneska
knattspyrnulið DYNAMO-
MOSKVA, sem hér er í boði
Fram, lék sinn fyrsta leik í gær
kveldi. Úrval Suð-Vesturlands
mætti gestunum. Leikurinn fór
fram á Laugardalsvellinum að
viðstöddu geysifjöimenni, allt
að 12 þúsund áhorfendum. —
Dómari var Guðjón Einarsson,
en línuverðir Gretar Norðfjörð
Og Jörundur Þorsteinsson.
Almennt mun hafa verið bú-
izt við því, eftir að það varð
kunnugt að um annað eins lið
væri að ræða og Dynamo- Mosk
var að hér mundi verða um al-
varlegan ósigur að ræða fyrir
okkur. Hins vegar fóru leikar
svo að Rússarnir sigruðu að
visu, en þó aðeins með 3:0 (2:0).
GANGUR LEIKSINS í
STUTTU MÁLI.
Töluverðs taugaóstyrks virt-
i'st gæta með íslenzka liðinu í
upphafi og fór leikurinn mjög
mikið fram á vallarhelmingi ís-
lendinga meginhluta fyrri hálf-
leiksins, en þó sóttu landarni'r
í sig veðrið er á leið. — Á 5.
mín. kemur fyrsta skotið að ís-
lenzka markinu, sem Helg:
varði Rétt á eftir annað skot yf-
ir. Tveim mínútum síðar ei'ga
Rússar hörkuskot í stöng. Fyrsta
mark leiksins skoraði h. innh.
Síslenkó á 10. mín. með glæsi-
skoti utan af vítateig. Var þetta
mjög fast skot uppund-
ir slá. Er 17 mn. voru af leik
fékk íslenzka liðið fyrstu horn-
spyrnuna, sem þó ekkert varð
Úr. — í þessum hálflei'k fengu
Rússar alls sjö hornspyrnur, en
úrvalið fimm.
Á 28. mín. skorar miðherjinn
Korsjúnoff síðara mark Rússa í
fyrri hálfleik með tiltölulega
lausu skoti innan á stöng neðst
í hægra hornið. Var þetta óverj
andi fyrir Helga. — í lok hálf-
leiksins á úrvalið tvö tækifæri,
þegar Ingvar skallar yiir af
Lcmdsíið
Noregs gegn
íslendingum
OSLÓ, 3. júní (NTB). —
Eftirtaldir leikmenn hafa
verið valdir í landslið
Noregs gegn íslenöingunv.
Sverre Andersen, Viking,
Arne Bakker, Asker,
Ragnar Larsen, Sandaker,
Arne Natland, Eik, Thor-
björn Svensson, Sande-
fjord, Arne Legernes, Lar
vik Turn, Björn Borgen,
Fredrikstad, Erik Engs-
myhr, Greaker. Rolf
Björn Backe, Gjövik/Lyn,
Gunnar Dywad, Stein-
kjer og Axel Berg, Lyn.
Varamenn eru: Per Mos-
gaard, Fredrikstad, Hans
Jacob Mathisen, Fredrik-
stad, Jan Nilsen, Lisleby
og Oddvar Richardsen,
Lilleström. — Leikurinn
fer fram á Ullevaal leik-
vanginum í Osló 9. júní.
iwvwwvwwvtwwwwvu
í knöttinn af öryggi. Hann
I sýndi mjög glæsilegan leik
| í gærkvöldi.
| (Ljósm.: O. Ó.
VWVMVWWVVVWVVWVWVVWVWl
markteig úr sendingu frá Þór-
ólfi, — og aftur rétt fyrir hlé
út ágætri fyrirsendingu en allt-
of laust og beint í fang hins
frábæra Jasjin.
* SÍÐARI HÁLFLEIKUR.
Það var eins og endurnýjað
íslenzkt lið ksemi inn á leik-
vanginn eftir hléið. Liðsmenn-
irnir léku af miklum hraða og
festu og ru-gluðu oft Rússana í
rími'nu. Á 10. mín. var Þórður
Jónsson í góðu færi, en skaut
yfir. 5 mín. síðar skora Rúss-
ar þetta eina mark, sem þeir
gerðu i þessum hálflik. Markið
gerði vinstri innherji' Fedoseff
úr mjög erfiðri stöðu. Hann lék
á Árna Njálsson og skaut á
markið nærri frá endamörk-
um og skall knötturinn á mark-
súlunni og hrökk inn. Mjög
glæsi'lega ert.
Síðutsu mínútur hálfleiksins
voru þófkenndar með baráttu
út á veiiinum og fleiri mörk
voru ekki skoruð.
Þrátt fyrir það þó að Rúss-
arnir skoruðu ekki fleiri mörk
voru yfi'rburðir þeirra í allri
knattleikni og skipulagi slíkir,
að unun var oft á að horfa. —
Hraði geysilegur og skiptingar
nákvæmar. Liðið er skipað jöfn-
um leikmönnum en skemmtileg
astir voru hægri útherji Júrin
fljótur leikinn og öruggur. —
Fedeoseff sýndi einnig frábæra
tækni og hraða. Hinn frægi
markvörður Jasji'n fékk því
miður lítið tækiiæri til að sýna
snilli sína. en þó var það ljóst
að ekki er ofsögum sagt af
leikni hans í markinu.
Íslenzka liðið stóð sig betur
en margir höfðu búizt við. Það
barðist allan leikinn og sýndi
enga minnimáttarkennd, eink-
um þó í síðari hálfleik. Áber-
andi var þó, að Rússarnir sigr-
uðu í fletsum skalleinvígum,
vegna þess að þeim var Ijós
sú staðreynd að til þess að slíkt
væri hægt þyrfti að hoppa upp
broti úr sek. fyi-r en andstæð-
ingurinn. Bezti' leikmaður ís-
lenzka liðsins var tvímælalaust
Sveinn Teitsson, sívinnandi og
mikill baráttumaður í einvig-
um. Átti margar góðar og ör-
uggar sendingar, þó að fram-
herjunum tækist ekki að nýta
þær til að skora úr. Annars má
segja það að íslenzku. leikmenn-
irnir yfirleitt hafi gert eins vel
og þeir gátu og meira er ekki
hægt að krefjast af neinum.
Guðjón Einarsson, hinn gamal
kunní dómari, sem ekki hefur
dæmt undanfarið neitt að ráði
dæmdi leikinn og skilaði því
hlutverki sínu með ágætum. —
Hins vegar var leikurinn ekki
harður og Rússarnir léku mjög
prúðmannlega.
Sagt eftir leikinn
FRETTAMAÐUR íþrótta-
síðunnar lagði leið sína £ bún-
ingsklefana að leik loknum og
fer hér á eftir álit þeirra, seni
talað var við.
STJARÍOFF, fyrirliði:
— Við höfum oft leikið bet-
ur en nú, sagði fyrirllðinn og
brosti, en þó vil ég hrósa ís-
lenzka liðinu fyrir góðan og
prúðmannlegan leik. — Beztir
voru að mínu áliti nr. 6. Sveinn
Teitsson og nr. 10 Þórður Jóns-
son var lallgóður. Markvörður-
inn ykkar er einnig ágætur. —
Völlurinn ykkar er góður og
áhorfendur prýðilegir, — liafa
greinilega góðan skilning á
knattspyrnu.
GUÐJÓN EINARSSON
dómari;
— fslenzka liðið lék ágæta
knattspyrnu í kvöld, en rúss-
neska liðið er frábært og sýndi
glæsilegan og prúðmannlegan
Ieik.
ÓLI B. JONSSON, þjálfari:
— Þetta gekk betur en ég
bjóst við, en þó náði lið okkar
ekki nógu vel saman.
r -c: --- - --- •)
GUNNAR GUÐMANNSSON,
fyrirliði:
— ftússneska liðið er mjög
jafnt, en hrifnatsur var ég a$
Júrín og Síslenko. Af rússnesk-
um liðum, sem hingað hafa
komið, fannst mér Lokomotiv
betra.
SÆMUNDUR GÍSLASON,
form. landsliðsnefndar:
— Jafnari leikur en ég bjóst
við og vörnin var okkar sterk*
’ari hlið. Rússneska liðið er á-
gætt, þeir eru flinkir og áber-
andi fannst mér hvað þeir vorn
fljótir að finna eýðurnar og
staðsetja sig rétt, það er þeirra
sterlcasta hlið.
Dan Waern
3:44,0
DAN WAERN ér sterkur,
hann sigraði í 1500 m. hlaupi
f Ábo í vikunni á 3:44,0 mín.
Salsola fékk 3:47,8 og Vuorisalo
3,47,9 mín.
WWMWMMWMMWWWIWWW
íslendinar sækja að marld
Dynamo, — Það er Þórólfur,
sem skallar knöttinn.
WWWWWWWWWWWWVIWW
Alþýðublaðði — 4. júní 1960 JJ,