Kirkjublaðið - 24.12.1891, Side 7
103
helgi hafl gagntekið allt. Jólanóttin er því stundum köll-
uð »nóttin helga,» svo sem hún ein sje heilög framar öll-
um öðrum helgum nóttum. Um miðnætti er helgin mest,
því þá ætluðu menn, að frelsarinn væri fæddur. Eptir
almennri trú verða ótal tákn og stórmerki í það mund,
sem frelsari mannanna fæddist. Það er sem öll náttúr-
an fái þá nýtt líf. Þá fá mállaus dýrin mál, og jafn-
vel hinir dauðu rísa úr gröfunum. Það er sem allt loani
úr fjötrum, og allt verði lifandi, fagni og gleðjist. A einu
augnabliki breytist þá allt vatn í vín. I öðrum löndum
er það víða alraenn trú, að ýms dýr fái mál á jólanótt-
ina; en hjer á landi er sú trú almennust um kýrnar, að
þær tali á Þrettándanótt, — hina síðustu jólanótt. A
jólanóttina er það, að »lárltjugarður rís«, en það er í því
falið, að allir hinir dauðu í kirkjugarðinum rísa úr gröf-
unum, og koma saman i kirkjunni, og halda þar guðs-
þjónustu. Á jólanóttina verða selirnir að mönnum, svo
sem þeir voru upphaflega. því þeir eru allir komnir af
Faraó og hans liði, er varð að selum í Haflnu rauða.
Á jólanóttinni eru alls konar vættir á ferðinni, illar
og góðar. Ein af þeim er jólakötturinn. Hann gjörir
engum mein, sem fær einhverja nýja flík fyrir jólin, en
hinir «fara í jólaköttinn,« en það er í því falið, að jóia-
kötturinn tekur þá, eða að minnsta kosti jólarefinn þeirra.
Sumir segja og, að þeir sem fari í jólaköttinn, eigi að
bera hrútshorn í hendinni þangað sem þeir eru fæddir.
Þykir sú skript bæði hörð og óvirðuleg, sem von er.
Þess vegna leitast allir við, að gjöra sig þess maklega af
foreldrum sínum og húsbændum, að þeir fái einhverja
nýja flík fyrir jólin, svo að þeir fari ekki í bannsettan
jólaköttinn. Á jóianóttina koma jólasveinarnir ofan af
fjöllunum. Þeir eru ýmist taldir 13 eða 9. Þeir vilja
fá sinn skerf af jólamatnum og öðru, því sem tii fagn-
aðar er haft. Kertasníkir vill fá kerti, Kjötkrókur vill
fá kjöt, og Pottasleykir vill tá að sleykja innan pottinn
o. s. frv. Jólasveinarnir geta verið viðsjálsgripir, eins
og sjá má af vísunni:
Jólasveinarnir einn og átta; o. s. frv.
Þá er og huldufólkið á ferðinni. Það fer inn í bæina,