Kirkjublaðið - 24.12.1891, Qupperneq 16
112
ina fyrirmynd Gnðs barna lundernisins. Föðurkærleikí
Guðs er hjartað í kristindóminum, hann er rót náðar-
innar í Kristi, og vor himneski faðir tekur þá í sitt riki
sem með kærleikstrausti barnslundarinnar varpa sjer í
hans náðarfaðm og biðja:
Faðir vor,
þú sem ert á himnum . .
»Sannlega segi eg yður, hver sem ekki meðtekur Guðs
ríki eins og barn, mun aldrei þangað koma«,
og
»Síðan faðmaði liann börnin að sjer, lagði hendur
yfir þau og blessaði þau«.
Börnin góð! Iialdið þið að nokkurt þessara barna
hafi getað gleymt þessu augnabliki seinna á lífsleiðinni?
Ekki skulum við ætia það, og við getum heldur ekki
hugsað oss, að þessi börn haíi orðið vondir menn eða
auðnuleysingjar á fullorðinsárunum.
Gott áttn þessi börn, hugsið þið, og þið hugsið ef til
vill annað um leið: Það var ekki vandi fyrir þau, að
verða að góðum og guðelskandi mönnum. Já, þið sjáið
ekki frelsarann líkamans augura, eins og börnin á Gyð-
ingalandi, en festið þið í sálum ykkar þá hugsun, að
Jesús Kristur komi líka til ykkar núna á jólahátíðinni
með sama kærleika og með sömu orðum og hann talaði
við börnin forðum. Takið til ykkar þau orð, að Guðs
ríki heyri ykkur til, og þangað fáið þið að koma. For-
eldrarnir ykkar færðu ykkur í fyrsta sinni Jesú Kristi,
þegar þið voruð skírð og þá tók liann ykkur í faðm og
blessaði ykkur. Foreldrar ykkar hafa síðan leitast við
að bera ykkur til frelsarans á sínum veiku örmum, þegar
þeir kenndu ykkur faðir vor og blessunarorðin, þegar
þeir fræddu ykkur í kristindóminum, fóru með ykkur
til Guðs húss, já hvenær sem þeir með orði sínu og
dæmi hafa kennt ykkur góða siðu, og að elska Guð og
menn. Festið þetta í huga ykkar, börnin góð, og svo
eigið þið að vera glöð og fús að koma til frelsarans, eins og
börnin á Gyðingalandi voru; þið sjáið hann ekki, en þið
lesið og heyrið sögúna um haun, og svo eigið þið að
geta elskað hann eins inhilega og börnin forðum og
vera eins fús og þau, að gjöra allt, sem þið vitið að
hann vill.
Og þá kemur hann til ykkar, enn af nýju á bless-
aðri jólahátíðinni, og þið fáið að koma til hans, og hann
tekur ykkur í faðm og blessar ykkur, því að slíkum
heyrir Guðs ríki til.
RITSTJÓEI: ÞÓBHALLUB BJABNABSON.
l’rcntað i hafoldar prentsmiðju. Beykjavik. 18Si.