Kirkjublaðið - 01.11.1892, Page 3

Kirkjublaðið - 01.11.1892, Page 3
]95 til kraptaverkanna, geta v.el verið alveg samkynja verk og þau, sem vjer köllum náttúrleg verk. En þó að slík- um verkum sje sleppt úr tölu kraptaverkanna, sem þó er enn vafasamt, hvort rjett er, þá verða þó mörg verk eptir, sem ómögulega verða talin annað en kraptaverk í venjulegum skilningi, nema með því meiri hártogunum. Reyndar hafa verið til guðfræðingar, sem ekki liafa verið trúaðir á kraptaverkin, og hafa viljað gjöra þau öll nátt- úrleg, þaðer: samkvæm þekktum náttúrulögum; en flest- ar tilraunir í þá átt hafa misteki/t, að kalla má gjörsam- lega. Kristindómurinn er einnig svo samvaxinn trúnni á hið yfirnáttúrlega, að ef henni yrði burtrýmt, þá er kristn- in þar með fallin; en með því er enganveginn sagt, að kristnin byggist á hverju einstöku kraptaverki; þó að sum þeirra hyrfu algjörlega úr sögunni sem kraptaverk, mundi kristnin standa jafnrjett eptir sem áður. En hvað er á móti því, að hugsa sjer að kraptaverk hafl verið til? Það er raunar miður trúlegt fyrir þá, sem ekki trúa á neinn Guð; en fyrir þá sem trúa á Guð, sýn- ist ekkert geta verið á móti því. Flestir menn, sem trúa á Guð, trúa þvi, að liann sje almáttugur; en ef hann er almáttugur, hví skyldi hann þá ekki geta gjört krapta- verk eins og annað? Flestirmenn, sem trúa á Guð, trúa því, að hann hafi skapað heimirin; en ef hann heflr gjört slíkt kraptaverk sem að skapa heiminn, hvi skyldi hann þá ekki geta gjört önnur kraptaverk minni? Ef Guð heflr sett náttúrulögin, hví skyldi hann þá ekki geta breytt þeim, ef honum svo sýnist? Eða skyldi hann ekki hafa getað sett önnur náttúrulög en þau, sem vjer þekkjum til, jafnframt þeim? Eða skyldi hann ekki geta látið þau sömu náttúrulög, sem ’vjer þekkjum nokkuð af, verka á fleiri háttu envjerhöfum lært að þekkja? Hvað af þessu sem er, hlýtur Guð að geta, ef hann er almáttugur. Af þessu er ljóst, að svo framarlega, sem Guð er til og heflr þá eiginlegleika, sem vjer hljótum að eigna honum, getur hann gjört kraptaverk, hvar og hvenær og hvernig sem hann vill. Nú kunna menn .að segja, að þetta sje annað mál; Guð geti raunar gjört kraptaverk sjálfur, en flest þau

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.