Kirkjublaðið - 01.04.1896, Blaðsíða 9

Kirkjublaðið - 01.04.1896, Blaðsíða 9
7ð gjörður verulegur tnunur á orðunura »illur« og »slæmur«, sömuleiðis á »refsing« og »hegning«; en þess konar er skýrt svo í bókinni s.jálfri, að það þarf engan að villa. Prestaskólakennari sjera Jón, sonur höfundarins, sem sjeð hefir um útgáfuna og lagt sfðast hönd á verkið, heflr leyst það mjög vel af hendi. Til þess að gjöra bók þessa, sem uppbaflega var eingöngu ætluð til að vera kennslu- bók, alþýðlegri, hefir hann þýtt mörg útlend orð og sum- staðar orðið að mynda ný orð. Þessir nýgjörvingar eru víðast heppilegir. Auðvitað kunna menn ekki að fella sig við suma, eins og »hvílíkleikur« (qualitet), »jálegur« (positiv), »neilegur« (negativ); en hjá slíku verður ekki komizt; getur og verið að pessi orð sjeu eldri. Hin út- lendu vísindalegu orð eru optast höfð með í svigum, þar sem svo stendur á, en glöggara hefði verið, að hafa það allt af, t. d. »tvfveldisvilla« (= dualismus), »erfikenning« (= traditio). Þetta er þó smávægilegt. Hið eina, sem hjer mætti að flnna, er það, að sum útlend orð og setn- ingar, sem koma fyrir 1 meginmálinu, er ekki þýtt á ís lenzku, sem ekki hefði lengt til muna. Að því leyti sem bókin er kennslubók handa stúdentum, er slíkt auðvitað óþarft; en það hefði þó þurft að vera, til þess að ólærðir menn, sem bókina lesa, geti haft full not af henni. — Annars kemur þetta óvfða fyrir; og bókin er að öðru leyti svo vei og jafnframt alþýðlega úr garði gjörð, að hún getur yfirleitt verið skiljanleg hverjum greindum manni, sem les hana með athygli. Ekki get jeg búizt við þvf, að siðfræði þessi falli í góðan jarðveg hjá hugsunarlitlum mönnum eða þeim, sem láta sannleikann sjer í ljettu rúmi liggja. En ekki get jeg öðru trúað, en að alvarlega hugsandi og sannleiks- leitandi menn, sem lesa hana, finni margt og mikið gott f henni, þó að þeir ekki kunni að vera samþykkir skoð- unum höfundarins í öllu, og jafnvel hverjar sem skoðanir þeirra eru að öðru leyti. Þess vegna vil jeg mikillega hvetja sem flesta slíka menn til að kynna sjer hana rækilega; sömuleiðis á sfnurn tíma aðrar þær kennslu- bækur prestaskólans, sem síðar kunna að birtast, ef þær verða jafn-auðveldar sem þessi bók. Er slíkt ekki sfzt

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.