Kirkjublaðið - 01.04.1896, Page 14
78
Á eyiini Madagaskaí við austurströnd Afríku hefir fjelag þetta
komiö einna mestu til leiSar á síðastliðnum árum. Suðurhafseyjar
eru og margar hverjar svo alkristnaðar af fjelaginu, að það er
hætt störfum sínum þar.
Ágætastur kristniboði þessa fjelags var John Williams, »post-
uli Suðurhafseyja«, sem dó píslarvættisdauða 1839. Lífsregla hans
var sú, að semja sig sem mest að siðum innlendra, ganga að allri
vinnu með þeim og leita sjer uppeldis við það, kenna þeim ýmis-
legt gagnlegt til munns og handa og ná trausti þeirra og vináttu
með hjálpsemi og góðfýsi, og fyrst eptir það byrjaði hann á trú.
boðinu. Það var árið 1816 sem hann lagði af stað og einmitt
sama árið sendi fjelagið til Afríku garðyrkjumann rúmlega tvítug-
an, Róbert Moffat að nafni, sem vann þar allra manna mest og
bezt í full 50 ár, og kom heim hálfáttræður og hlaut hina mestu
sæmd, meðal annars heiðursborgaranafn í Lundúnum, og andaðist
kominn fast að níræðu 18831. Moffat var annar mesti kristniboði
fjelagsins, en hinn þriðji nafnfrægi kristniboði Lundúnafjelagsins
var Davíð Livingstone, læknirinn, presturinn og landkönnuðurinn
mikli. Hann gekk í þjónustu fjelagsins 1840, var um tíma mjög
haudgenginn Moffat og kvæntist dótturhans; í þjónustu fjelagsins var
hann fram að 1856, en í öllum sínum frægu ferðum eptir það var hann
jafnan kristniboði öðiTim þræði, læknir fyrir sál og líkama, sem
alstaðar gat gjört sig skiljanlegan á hinu eina alþjóðamáli, sem til
er, kærleiksmáli kristindómsins. Enginn hefir sem hann á síðari
hluta þessarar aldar vakið samvizku menntaþjóðanna gegn þræla-
sölurini, enda sýndu svertingjar honum rækt sína, er þeir fluttu
lík hans (1873) yfir þvera Afríku á skip Englendinga, og hvílir
hann nú við Vestminsterkirkju í Lundúnum.
Þýzku kirkjutíðindin, sem páskahugleiðingarnar eru tekn-
ar úr hjer að framan, hafa áður verið nefnd hjer í Kbl. f ferða-
sögubroti sjera Jóns Helgasonar frá Þýzkalandi (Kbl. IV. 8). Þau
eru hvort um sig höfuðmálgagn sinnar stefnu eins og þar er og
skýrt frá.
Allgemeine Evangélisch-Lutherische Kirchenseitung (= al-
menn ev.- lút. kirkjutíðindi), er gefin. út í Leipzig, 29. árg. þ. á.,
verð 13 kr. Þar er öldungurinn dr. Luthardt höfuðmaðurinn;
hann er nú 73 ára að aldri og mun nú vera xim það að taka sjer
maklega hvíld vegna hnignandi heilsu, og hefir hann þá verið
1) Um hann er sagan »Bara einn drengur« i JcgSSffnv. Kbl. 1894,