Kirkjublaðið - 01.06.1896, Blaðsíða 2

Kirkjublaðið - 01.06.1896, Blaðsíða 2
98 Ákærur og svör\ Eptir sjera Valdimar Briem. Fyrsta ákæra: Kirkjan er afardýr stofnun. Svar: Það er eptir því, hvernig á það er litið. Hjá því verður ekki komizt, að hún kosti talsvert; en það er miklu minna en í fijótu bragði sýnist og almennt er talið. Þetta má sanna með því, að 1. Flest prestaköll svara að tekjum til hvergi nærir til þeirrar upphæðar, sem þau eru metin, sem sjest bæði á þvi, að margir prestar vildu selja allar preststekjur sinar fyrir miklu minna en þær eru metnar, og eins á því, að varla nokkur verkmaður eða vinnumaður þiggur preststekjur upp í kaup sitt. 2. Margir prestar gefa opt fátækum mönnum eptir raeira eða minna af prestsgjöldum þeirra. 3. Mikið af tekjum prestanna fer ýmist beinlínis eða óbeinlínis aptur til gjaldendanna í ýmsum útlátum, og kemur á ýmsan hátt þeirri sveit til góða, sem þeir eru búsettir í. Önnur ákæra: Kirkjan á í rauninni ekki neitt. Svar: Þá á ekkert fjelag heldur neitt af eignum sínum. Þriðja ákæra: Kirkjan er illa komin að öllum sínum svo kölluðu eignum. Svar: Hún er komin að þeim á líkan hátt og allir aðrir að sínum eignum. Fjórða ákæra: Kirkjan er byggð á peningum. Svar: Hún er byggð á kenningu Krists og postulanna. Fimmta ákæra: Prestarnir vinna fyrir kaup. 1) Allar þessar ákærur hata eigi alls fyrir löngu sjest í isl. blöðum,

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.