Kirkjublaðið - 01.06.1896, Blaðsíða 11

Kirkjublaðið - 01.06.1896, Blaðsíða 11
107 þrýsta þeim til að Tiverfa aptur til þjóðkirlrjunnar, þá er eðlilegt, að fleiri og fleiri fari að flnna til þarfar á nýjura endurbótum í kirkjulöggjöfinni. En hvernig eigum vjer að hyrja« ? Hvaða spor eigum vjer næst að stíga til undirbúnings frjálslegri kirkjulög' gjöf? Eitt spor heflr þegar verið stigið með prestakosn- ingarlögunum, og tíminn hrópar: áfram, áfram. A nokkrum undanförnum þingum heflr verið farið fram á það, að hver, sem segði sig úr þjóðkirkjunni, skyldi vera laus við öll gjöld til hennar, en hlutaðeigandi presti væri bættur tekjumissirinn úr landssjóði; en slíkt fyrirkomulag væri miður æskilegt fyrir landssjóð, en veru- leg hagsbót fyrir presta þá, sem kæmi sjer illa við sóknarfólk sitt, og hugsuðu mest um, að fá tekjur sínar afdráttarlaust, hvað sem kirkjulífl safnaðarins liði,, og það væri óneitanlega fremur óviðkunnanlegt, ef svo skyldi fara nokkursstaðar, að all-flestir sóknarmenn vreri búnir að segja sig úr kirkjufjelaginu, hættir að koma til kirkju og nota prestinn til nokkurra prestsverka, en landssjóður gyldi honum þó allt af full laun fyrir að heita prestur, Það ætti þvf heldur að reyna að koma þeirri skipun á, að ef t. d. svo væri ástatt í einhverju prestakalli, að meira en helmingur (eða 2/s, ef söfnuðurinn hefði sjálfur kosið prestinn) sóknarmanna þeirra, er gjalda lil prests og kirkju, vildi losast við prestinn og kærði hann, þá yrði það mál lagt undir hjeraðsfund, t. d. i nresta pró- fastsdæmi (presturinn ætti að mega velja um, undir hvern hjeraðsfund 1 næstu prófastsdæmum mál hans skyldi koma), og ef hjeraðsfundur kvæði upp þann úrskurð, að presturiun væri ekki hæfur til að fullnægja andlegum þörfum safnaðarins, þá ætti hann að víkja biðlauna- og eptirlaunalaust. Inngangsorð að biflíusögum. Eptir W. T. Stead.1. Forðum daga, þegar villimenn í skinnúlpum byggðu 1) Ritstjóri mánaðarritsins >Review ot the Reviews«, sem ýmsum hjer á landi mun góð-kunnugt,

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.