Kirkjublaðið - 01.06.1896, Page 3
99
Svar:
Þeir hafa líkamle'gar þarfir eins og aðrir menn.
Sjötta ákæra :
Prestarnir eru prestar í ábataskyni.
Svar:
Margir þeirra gætu á annan hátt haft miklu betri
atvinnu.
Sjöunda ákæra:
Prestarnir trúa ekki því, sem þeir kenna.
Svar:
Þeir tala af því að þeir trúa; annars mundu þeir
ekki gefa sig til að verða prestar, því að enginn neyðir
þá til þess, og þeim er það fullkunnugt, að prestsstaðan
er engin sældarstaða.
Attunda ákæra:
Fólkið trúir ekki almennt því, sem prestarnir kenna.
Svar:
Til þess að dæma um slíkt þarf að sjá inn í huga
manna.
Niunda ákæra:
Enginn getur sætt sig við trúarlærdóma kirkjunnar
nema heimskir menn eða hugsunarlitlir.
Svar:
Margir miklir spekingar og fræðimenn hafa verið
kristnir trúmenn.
Tiunda ákæra:
Avöxturinn af kenningu kirkjunnar er lítill eða
enginn.
Svar:
Jesús Kristur segir þó, að sumt sæðið falli í góða
jörð og beri margfaldan ávöxt.
Fríkirkjumálið.
Sjera Valdimar hefir í 5 árg. Kbl. nr. 12—13 gjört
athugasemdir við »Frikirkjusvör« mín og er jeg honum
þakklátur fyrir, þótt jeg eigi geti verið honnm samdóma
um allt, sem hann segir þar. Við komum okkur saman