Kirkjublaðið - 01.06.1896, Síða 14

Kirkjublaðið - 01.06.1896, Síða 14
110 Það vai* af því að Jesús þekkti leyndardóminn. — Hann vissi hvernig þetta átti að gjörast. Enginn annar þekkti það. Hið hulda var honum opinberað frá upphafi. Hann skildi það. Og hann kom að kenna oss það, og að saraa skapi sem vjer lærum það, verðum vjer líkir hon- um, og höfum mátt haus. En þú veizt hvað örðugt það er, að koma honum litla bróður þínum, eða henni litlu systur þinni, hvað greind sem þau kunna að vera, í skilning um það, hvernig púðrið er búið til. Eins var það, að Jesú reyndist það ekki svo auðvelt, að koma mönnum í skilning um leyndardóm Guðs máttar, sem að hann þekkti frá upphafi. Hann varð þvi að kenna oss sera litlum börnum með því að segja oss sögur, og með því að sýna oss hverju hann gæti til leiðar komið. Og um fram allt annað, liann varð að lifa alveg sama lífi sem vjer, til þess að vjer gætum fengið skyn á Guðs leyndardómi. Hvaða leyndardómur hyggur þú að þetta sje? Leynd- ardómurinn er hinn nýi fagnaðarboðskapur, sem Jesús var aptur og aptur að boða vinum sínum, og öllum sem vildu hlusta á hann. Hin góða nýung, sem Jesús hafði að fiytja, var að Guð er kærleikur. Guð, hann er »faðir vor«. Sjerhver sá sem elskar, er af Guði, og fyrir mátt Guðs, sem er kærleikur, mun hann sigra synd og heim. Og Jcsús sýndi það, að ef Guð er í hjörtum vorum, þá mun- um vjer eins og hann leggja sjálfa oss í sölurnar, til að hjálpa öðrum. Vegur sigursins er vegur krossins. Hjálp- ræðið felst í fórninni. Þeir einir, er eigi lifa sjálfum sjer og sínum lystingum, sem leggja sitt eigið í sölurnar, enda lífið ef þess gjörist þörf, öðrum til hjálpar, eru fylgjend- ur Jesú. Hvenær sem þú miðlar öðrum af tlma þínum, gefur í annars þágu brot af lífi þínu, leggur eitthvað óraak á þig til að liðsinna öðrum, þá trúir þú á Jesú. Og undrið er fólgið í því, að þar sem kærleikurinn er, þar er mátt- ur Guðs, sem gjörir hið erfiða ljett, og gjörir þig færan til þess, að gjöra það glaður, sem þjer að öðrum kosti hefði þótt leiðinlegt og ægilegt, ef ekki enda alveg ó- mögulegt. Það var þessi kærleikur, sem ljet píslarvott-

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.