Alþýðublaðið - 09.02.1961, Blaðsíða 5
Á síðasta ári unnu alls
63 öryrkjar í Múlalundi,
öryrkjavinnustofu S I B S
að Ármúla 16. Af þerm
hafa 18 horfið til annarra
starfa en 45 vinna þar
ennþá. Öryrkjarnir skil-
uðu alls 40.678 vinnustund
um á árinu og launagreiðsl
ur þeirra námu 731.168.00
kr. Vörusalan nam 2.2
millj króna.
BÍaðamaður frá Alþýðu
hlaðinu skrapp inn í Múla-
lund í gær til þess að líta
á öryrkjavinnustofurnar.
Er nú unnið þarna á tveiin
hæðum en þriðja hæðin er
óinnréttuð, þar eð fjár-
magn skortir til frekari
framkvæmda. Framleiðsla
öryrkjanna er hin myndar
legasta. Eru framleiddar
þarna ýmsar vörur úr
plasti, svo sem möppur
ýmiskonar. sem eru hinar
isnyrtilegustu. Á efri Iiæð-
inni er saumadeild og eru
þar saumaðar ýmsar vör-
ur úr plasti, svo sem jakk-
ar á drengi, sjóstakkar o.
fl. Einnig eru saumuð
þarna föt úr öðrum efnum,
svo sem kvenbuxur og
barnaföt.
Er við höfðum litið á
framleiðsluna á báðum
Iiæðunum var farið upp á
þriðju lfteð, sem enn er ó-
innréttuð. Er þarna 300
fermetra gólfflötur, hinn
ákjósanlegasti fyrir vinnu
stofur. Þórðúr Benedikts-
son — franikvæmdastjóri
S í B S sagði okkur, að það
eina, er stæði á til þess að
koma þeirri hæð í gagnið
væri fjármagn. 80 öryrkj-
ar em nú á biðlista og bíða
þess að fá vinnu á Múla-
Iundi. Margir þeirra hafa
beðið mánuðum saman. Á
sama tíma bíður þarna
mikið húsrými óinnréttað
vegna fjárskorts. Er það
vissulega sorglegt, að ekki
skuli unnt að auka þessa
starfsemi þegar í- stað svo
geysimikilvæg sem hún er
fyrir þjóðfélagið. í vinnu-
stofunum þarna fá einstak-
lingar með skerta starfs-
getu trú á lífið á ný. Þeir
finna það, að þeir geta orð-
ið þjóðfélaginu til gagns
en þurfa ekki að vera því
hyrði, aðeins ef rétt verk-
efni eru fundin fyrir þá.
I rauninni ætti ríkið að
borga slíka starfsemi sem
þessa. Því mun verða svar-
að, að SÍBS fái mikið fé
frá borgurunum í gegnurn
vöruhappdrætti sitt og það
er rétt. En öll hin myndar-
lega starfsemi S í B S að
Reykjalundi og Múlalundi
kosíar gífurlegt fjármagn
og happdrættið hrekkur
ekki til. Forráðamenn
S í B S og stjórn Múlalund
ar vinna nú að úívegim
fjármagns til þess að geta
fullgert' þrrðju liæðina og
væntanlega verður þess
ekki langt að bíða að hún
verði fullgtrð. Formaður
stjórnar Múlalundar er
Kjartan Guðnason, en verk
smiðjustjóri er Jón Tómas-
son. Bj. G.
Myndir: Efri myndin er
af ungri stúlku, sem starf
ar við verksmiðjuna Múla
lund. Hún er ein af 40 ein-
staklingum, sem SIBS hef
ur skapað vinnu fyrir á
þessari myndarlegu ör-
yrkjavinnustofu Neðri
myndin er af Jóni Tómas-
syni, verksmiðjustjóra.
2,2 millj.
Flskver
Framhald af 1. síðu.
væri hægt að elta ólar við slíkar 1
fullyrðingar, og sýndi síðan :
fram á eftirfarandi:
-V s. 1. vetri var verð 1.
flokks fisks í Noregi 82 aurar
kg. Þegar það er borið saman
\ ið fiskverð hér, er ekki tek-
ið tillit til, að þar er um há-
marksverð að ræða en hér með I
aiverð. í Noregi eru greiddar
verðuppbætur, 5—71 aurar á
kg. af 1. f!. fiski. Ef meðaltal
uppbótanna, 11 aurar er dreg
ið frá, verður útkoman 71 eyr-
ir á kg. Þá er þess að gæta, að
í Noregi er reiknað með haus-
lausum fiski, en hér með haus,
og þarf þá enn að draga frá
norska verðinu til að réttur
samanburður fáist. Kvað ráð-
herrann það hafa komið í ljós,
að hér ætti verðið að vera um
3,02 kr. til að vera sambæri-
legt, en er nú ákveðið 3,11 kr.
hæst eða hærra en hámarks-
verð 1. flokks fisksd Noregi.
Þá vék sjávarútvegsmálaráð-
herra að því, að margt væri hag
stæðara norskum útvegi, svo
sem möguleikarnir á að selja
nýjan fisk á heimamarkaði og
erlendum. Sá aðstöðumunur
hefði átt að gera Norðmönnum
hér. Að lokum kvaðst Emil ekki
beita sér gegn því, að málíð
færi í nefnd, en taldi svo mik-
ið upplýst, að við frekari rann-
sókn mundi ekki mikið nýtt
koma í ljós. Gagnrýndi ráðherr
ann. að í framsögu og greinar-
gerð tillögunnar hefði verið lát
ið undir höfuð leggjast að geta
um ýmis atriði, sem miklu
skipti, og látið að því liggja, að
aðstaða sjávarútvegsins væri
svipuð hér og í Noregi.
Lúðvík talaði aftur og hélt
fast við fyrri skoðun, að fisk-
verð í Noregi væri miklu hærrai
en hér og mikil þörf á hlut-
lausri rannsókn. Sjávarútvegs-
málaráðherra kvaðst þá hafa lát
ið þá rannsókn fara fram og
sýndi hún það, sem áður segir.
j frá. Engin ástæða væri til a-3
rengja þá rannsókn, sem m. a.
Fiskifélag íslands hefði átt þáít
. í, auk upplýsinga beint frá
j fyrstu hendi norskra aðila. —•
Varðandi þá staðhæfingu LJós.,
j að fiskverð væri að stórhækka
| í Noregi, upplýsti Emil Jóns-
| son að síðustu, að kröfurnar
í v-æru um 89—95 aura hámarks
; verð, en alls ekki samið um
! neitt ennþá.
Skipulagning
netaveiða?
TILLAGA Birgis Finnsson
ar o. fl. mn skipulagning
fiskveiða nieð netjum var til
umræðu í Sameinuðu alþingi
í gær. Urðu talsverðar umræð
• ur um málið, en atkvæða-
j greiðslu frestað. Benedikt
j Gröndal hafði framsög u fyr-
! ir áliti allsherjarnefndar, sem
hafði Ieitað umsagnar Fiskifé
j lags íslands og fiskmatsráðs.
Mæltu þeir aðilar rneð sam-
i þykkt tillögunnar og varð alls
| herjarnefnd sammála um að
j niæla með tillögunni, með
j þeirri breytingu. að hún orð-
j ist svo:
„Alþingi ályktar að fela rík
j isstiórninni að undirbúa setn-
ir.gu reglna um takmörkun á
veiðitíma, veiðarfæranotkun
og veiðisvæðum þeirra skipa,
er fiskveið'ax- stunda með netj-
um. Við þann undirbúning
verðj haft samráð við' fisk-
matsráð, Fiskifélag íslands,
fiskideild atvinnudeildar há-
skólans og samtök xitvegs-
manna o.ff sjómanna. Ef í ljós
kemur, að lagasetningar þurfi
um þetta efni, verði frum-
I varp þar að lútandi lagt fyrir
alþingic‘.
Birgir Finnsson þakaði f, h.
j flutningsmanna nefndinni fyr
j ir afgreiðslu málsins, 'én síðan
j tóku til máls Guðlaugur Gísla-
| son (tvisvar), Birgir aftur, Jón
Árnason og Skúii Guðmunds-
■
!
son. Taldi Guðlaugur einkura
annmarka á framkvæmd eftir-
lits, ef á fót yrði komið, en
Skúli lagði höfuðáherziu á
fiskmat, Annars voru allir
ræíumenn samm'ála um, að
hér væri miklu yandamáli
hreyft Og úrbóta þorf, því að
vöruvöndun væri aðalatriði
malsins. Atkvæðagreiðslu v’ar
frestað, eins og fyrr segir.
1 LEII) mistök urðu í blað- fj
# inu í gær í fyrirsögn og ?
myndatexta við grein um
áburðarverksniiðjuna í
Gufunesi. Var sagt að þar
hafi verið framleiddur á-
bmður í 10 ár, en hann
hefur aðeins verið fram-
leiddur þar í 7 ár, eins og
fram kemur í greininni.
Það eru hins vegar 10 ár
liðin frá stofnun verk-
smiðjunnar. r
Alþýðublaðið — 9. febr. 1961