Alþýðublaðið - 09.02.1961, Síða 8
BÁRÞJÓNAR
MEGA HELZT
EKKI DREKKA
NÝTÍZKULEGAR vín
stúkur eða barir, sem hafa
algerlega tekið við hlut-
verki kráa og knæpa út-
íheimta bersýt^i&ga betri
barþjóna. Að minnsta kosti
er það álit manna í Kan-
ada.
Jjoseph Small, fyrrver-
andi barþjónn, fannst ým-
islegt vera ábótavant í
framkomu og kunnáttu
barþjóna í Kanada. Þess
vegna stofnaði hann skóla
til þjálfunar barþjóna til
þess að þeir stæðust hin-
ar auknu kröfur, sem al-
menningur gerir til þeirra.
Fyrir skömmu tók fyrsti
nemandinn próf frá þess-
um skóla. Hann hefur gef-
ið starfsbræðrum þessar
ráðleggingar:
Ef spurt er um viðskipta
vin í símann á barþjónn
aldrei að láta uppi hvort
hann er við eða ekki. Það
er viðskiptavinurinn, sem
á að ákveða það.
Barþjónar eiga aldrei að
drekka í vinnunni og ættu
að hafa áhyggjulaust við-
horf til lífsins.
Barþjónar ættu að rann
saka gaumgæfilega hóf-
drykkjumenn — þá, sem
vita hvenær þeir hafa feng
ið nóg — og dæma aðra
samkvæmt því.
Lokaorðið um þessa
nýju tegund þjónustu kem
ur frá skólanum sjálfum.
Allir nemendur Small urðu
að æfa sig á lituðu vatni.
„Fljór og |góð frajmkj’oíma
fara ekki saman“, var
þeim tjáð.
Bjór æ vinsælli
SAGT er, að 'vinsældir
bjórsins aukizt stöðugt
meðal fína fólksins vestra.
Áður fyrr þótti því lítt
sæmandi að þamba bjór,
en nú er það sem sagt kom
ið í tízku að gæða sér á
þessum svölu veigum.
um, sem haldið var vand-
lega leyndum, kollvarpaði
Fala öllum leynilegum á-
formum með því að linna
ekki látum fyrr en farið var
að ósk hennar um smá-
göngutúr.
Þegar fólk sá þetta fræga
litla dýr í fylgd með illúð-
legum náungum úr leyni-
þjónustunni, var það á
allra vitorði, að forsetinn
væri í grenndinni.
mWWMMWWWWMWW
TOM, þriggja ára hvolp-
ur Carolinu litlu Kenne-
dy, er síðastur fjölda
þekktra dýra, sem búsett
hafa verið í Hvíta húsinu.
Frá upphafi vega hefur sú
venja tíðkast, að forsetum
Bandaríkjanna hafa verið
færð gæludýr að gjöf — og
flestir hafa þeir líka verið
miklir dýravinir. Ferfætt
dýr og fuglar hafa verið
nátengd lífi þeirra í hinu
stóra, hvíta húsi.
Fyrstu forsetarnir héldu
mest upp á veiðihunda og
reiðhesta, en nöfn flestra
dýra þeirra hafa ekki verið
skrásett. Það var ekki fyrr
en Theodore Roosevelt og
sonur hans Quentin komu
sér upp dýragarði, að fólk
fór að tala um dýrin í
Hvíta húsinu.
Quentin þótti vænt um
dýr af öllum stærðum og
tegundum — stundum svo
að föður hans þótti nóg
um. Quentin, sem var öll-
um stundum í verzlunum í
Washington, þar sem seld
voru gæludýr, kom einu
sinni með fjóra stóra snáka
þaðan og sýndi þá föður sín
um. Svo illa vildi til, að
þsgar Quentin sýndi honum
snákana, stóð yfir alvarleg
ráðstefna forsetans og
þingmanna úr báðum deild-
um þjóðþingsins. Quentin
setti snákana á borðið, sem
þeir sátu við. Fylltust þing
mennirnir slíku ofboði og
slíkri skelfingu, að þeir
ruku upp frá borðinu og út.
Ráðstefnan fór þannig al-
gerlega út um þúfur og trú
lega hefur Quentin fengið
bæði föðurlega og forseta-
lega ráðningu fyrir vikið.
Fyrirrennari Theodore
Roosevelts, McKinley, for-
seti, þótti einkum gaman af
páfagaukum. Þegar vel lá
á honum blístraði forsetinn
fyrri helminginn af laginu
„Yankee Doodle“ og lét
páfagaukinn ljúka við það.
Warren Gamaliel Hard-
ing, sem var forseti um
1920, var haldinn ólækn-
andi hundaástríðu og átti
auk þess nokkra kalkúna í
búri að húsabaki. í forseta-
tíð Woodrow Wilsons var
sauðfé haft á beit á tún-
blettinum við Hvíta húsið.
Fyrirrennari hans, William
Howard Taft, átti belju,
sem hann kallaði Pálínu.
Hann fékk því spenvolga
mjólk á hverjum morgni.
Eitt frægasta gæludýr-
ið, sem hefur alið aldur
sinn í Hvíta 'húsinu er Scot-
tie Fala, sem Franklin D.
Roosevelt átti. Öllum þótti
vænt um hana nema mönn-
um þeim úr Leyniþjónust-
unni, sem gættu forsetans.
Þeir kölluðu Fala sín á
milli „uppljóstrarann.“ Á
ferðum FDR á stríðsárun-
KJÓLARNIR eiga
að styttast, svo að
fallegir kvenfætur
fái að njóta sín, segir
„Nýi Dror“ Parísar.
Marc Bohan. Hver
skyldi vera ástæðan?
Svarið færst á mynd-
inni. Á henni sést, að
konan hans hefur
snotrar fætur. Svo að
hann hefur líklega
hlustað á ráð hennar.
MMMMMMMMMHMMMW
Nú blöskrar
sænskri!
KÖTTURINN hennar Karólínu Kennedy, Tom Kitten.
Konan á myndinni heitir Pamela Turnure og er blaða-
fulltrúi Kennedys forseta. Kynnti hún Tom fyrir blaða-
mönnum á fundi með þeim nýlega.
Sænsk kynbomba og
kvikmyndadís hefur tekið
í hnakkadrambið á kvik-
myndaframleiðendum í
Hollywood og býsnast yfir
afstöðu Ameríkumanna til
kynferðismálanna.
„Bæði amerískur al-
menningur og kvikmynda-
framleiðendur hafa óþrosk
aða afstöðu til kynferðis-
mála,“ segir hún. „Það er
of mikil áherzla á þetta
lagt í amerískum mynd-
um. I Svíþjóð og flestum
Evrópulöndum er þetta
tekið eins og sjálfsögðum
hlut.“
Kvenmaður þessi heitir
Gunnel Lindblom og varð
fræg kvikmyndaleikkona
undir handarjaðri hins víð-
fræga Ingmar Bergman.
Til Hollywood var hún
komin að vekja áhuga á
síðustu mynd sinni, sem á
ensku nefnist „The ’Virgin
Spring“ og að ræða við
framleiðendur um nýjar
myndir í borg kvikmynd-
anna.
Hún heldur áfram:
„Mannleg nekt þykir
engin ósköp heima í Sví-
þjóð. Þar þykir mannleg-
ur líkami ósköp venjulegt
fyrirbrigði. Okkur þykir
síður athugavert við að sjá
nakinn kvenlíkama á kvik-
mynd en hin hræðilegu
slagsmál, fantaskap og
ruddamennsku, sem iðu-
lega má sjá í amerískum
kvikmyndum.
Enn segir hún:
„Hér í Bandaríkjunum er
engu líkara en að fólki
finnist kvenlegur líkami
dónalegur. Þetta held ég
að stafi af engu öðru en
því, að flestir Bandaríkja-
menn eru haldnir „móður-
komplex11 — einkum karl-
menn. Þeir virðast allir á-
líta, að mæður séu hafnar
yfir slíka hluti sem kyn-
ferðislíf. Þetta er hrein og
bein vitleysa, ef svo væri,
væru þeir ekki hér á með-
al vor. Önnur ástæða fyr-
ir þessari bjánalegu af-
stöðu til kynferðismála í
kvikmyndum eru trúmál-
in. Klerkar hér virðast al-
mennt vera þeirrar skoð-
unar, að kynferðislíf sé
eitthvað slæmt.“
Aðspurð um afstöðu
22 milljónir Kínverja.
1700 börn fæðast á hverj
um klukkutíma í Kína. A
hverju ári fæðast 22 millj.
Kínverja. Sérfræðingar
reikna með því, að Kín-
verjar, sem nú eru um 670
millj. talsins verði um alda
mótin næstu, 2000, um
2 milljarðar að tölu. Þá
verður þriðjungur mann-
kynsins Kínverjar, því að
talið er, að íbúar jarðar-
innar verði þá 6 milljarð-
ir.
g 9. febr. 1961 — Alþýðublaðið
fólks í Evrópu ti:
mála, sagði hún, að
búar væru frjáls'
það þýddi samt el
að siðferði þar vær
ra stigi en í Band;
um.
„Bandaríkin eru
árum. Einhvern tím
íbúarnir þroskast
þeir álíti ekki len
kjmferðislíf sé hn
vert“.