Alþýðublaðið - 09.02.1961, Síða 10
Ritstjóri: Ö r n E i ð s s o n.
'(
Aðalfundur Ægis:
Torfi Tómasson
kosinn formaður
EM í skautahlaupi:
Yfirburðarsigur
V. Kositsjkins
AÐALFUNDUR Sundfélags
ins Ægis var haldinn 2. febr.
sl. að Grundarstíg 2. Fráfar-
andi formaður félagsins Torfi
Tómasson, setti fundinn og til-
nefndi Þórð Guðmundsson
sem fundarstjóra, og var það
samþykkt einróma.
Torfi Tómasson lagði fram
lagabreytingar stjórnarinnar
og voru þær samþykktar mót-
atkvæðalaust. Er það helzt, að
skipting félagsins í sund- og
sundknattleiksdeild er lögð
niður, en aðalstjórnin verður
skipuð fimm mönnum. Einnig
voru gerðar breytingar á árs-
gjöldum félagsins.
Gjaldkeri, Theódór Guð-
mundsson, lagði fram endur-
skoðaða reikninga. Þeir voru
samþykktir.
Formaður var kjörinn Torfi
'J'ómasson með lófataki. Með
honum í stjórn eru: Theódór
Guðmundsson, Guðjón Sigur-
bjornsson, Gunnar Júlíusson
. og Sig. Guðmundsson. Til vara
eru Guðm. Harðarson og Helgi
Sigurðsson.
Fastafulltrúi Ægis hjá ÍBR
var kosinn Jón Ingimarsson,
en hjá SRR Þröstur Jónsson.
í haust var ráðinn nýr þjálf
HMMMMMMMWVHMMMMIM
ari til félagsins, Örn Ingólfs-
son. Æfingar hafa verið vel
sóttar og unglingarnir sýnt
’ lofsverðar framfarir.
Austur-þýzki skíðastökkvar-
rnn Helmut Recknagel hefur
verið óheppinn upp á síðkast-
ið í keppni í Inselberg-stökk-
brautinni, en bar í grennd er
heimabær stiikkvarans Lesser,
féll hann. Lesser sigraði í keppn
inni — stökk 75,5 og 74 metra.
Löve til
Kaupmanna-
hafnar
Hinn kunni kringlukast
arr Þorsteinn Löve, mun
nú vera á förum til Dan-
merkur, nánar tiltekið
Kaupmannahafnar. Hann
hefur fengið atvinnu hjá
Burmeister & Wain og
hyggst æfa kringlukast
hjá félaginu Gullfoss. Það
er erít þekktasta félag
borgarinnar og meðal fé-
laga í því er hinn frægi
hlaupari — Thyge Thö-
gersen.
FRÁ ENSKRI
KNATTSPYRNU
Nordstrand
og Grefsen
meístarar
Félagið Norðstrand varð
norskur meiistari í hand-
knattleik karla innanhúss,
sigraði Grönland með 21:
17. Grefsen sigraði Frigg
í kvennaflokki með 9:6 í
mjög góðum Ieik. Grefsen
kom hingað fyrir nokkr-
um árum og sýndi góða
leiki. í liði Grefsen var
Grete Evjenth langþczt,
en Tutta Danielsen og
Björg Berge sýndu einn-
ig ágætan Ieik. í liði Nord
strand var mprkvörður-
inn Kai Killerud beztur.
Aston Villa keypti markvörð
inn Geoff Sidebottom frá
Wolves á laugardaginn og
greiddi fyrir hann sem svarar
til ca. 1.600.000.00 ísl. kr.
Heyrst hc.fur að Jhann verð)i
jafnvel í markinu gegn Totten-
ham í bikarkeppninni. Nigel
Sims, sem verið hefur í markt
A. Villa var einnig keyptur frá
Wolves, en þeir leyfa venjulega
þeim leikmönnum að fara til
annarra félaga sem þess óska.
★
Arsenal verzlaði einnig á
laugardaginn, þeir keyptu leik-
•nanninn Griffithfc frá 4„ deild-
arliðinu Wrexham og greiddu
scm svarar til 1 millj. og 280
hús. ísl. kr. Griffiths er mjög
’ágvaxinn, aðeins 1,57. Sagt er
nð hann sé lágvaxnalsti leikmað
urinn, sem fengið hefur samn-
’ng í enskri knattspyrnu.
★
í aukalcik Huddcrsfield og
Barnsley í ensku bikarkeppn-
inni sl. mánudag, sigraði Barns
ley með 1:0. Barnsley mætir
því.Luton í fimmtu umferð 18.
febr.
¥
Leikir þeir sem Tottenham
hefur tekið þátt í sl. tvö keppn-
ilstímabil hafa gefið í aðgangs-
eyrir sem svarar til 18 millj. og
660 þús. ísl kr„ Fastlega má
gera ráð fyrir að Tottenham
taki þátt í Evrópubikarkeppn-
inni næst og það þýðir 6 millj.
og 400 þús. kr. tekjur. Alls mun
félagið hafa átt um 27 milljón
króna innstæðu í bankanum í
byrjun yfirstandandi keppnis-
tímabils og nú hefur Totten-
ham fengið nafnið „Bank of
England“.
Halberg
sigraði
Wellington, 8. febr.
(NTB—REUTER).
Mu-rraý Halþerg, plympíu-
meistari í 5 km. hlaupi sigraði
í míluhlaupi á frjálsíþrótta-
móti í dag, tími hans var 4.04,2
mín. Annar varð Bandaríkja-
maðurinn Dyrol Burleson á
tímanum 4.04,8 mín. Þetta er
fyrsta tap Burlesons síðan
hann hóf keppni á Nýja-Sjá-
landi fyrir þrem vikum. Hann
hefur m. a. sigrað Halberg þrí-
vegis í míluhlaupi undanfarið.
í 800 m. hlaupinu urðu úrslit
þau, að Peter Snell sigraði á
1.52,4 mín., en Moens varð ann
ar á 1.52,9 mín.
SIGUR RÚSSANS Kositsj-
kins á Evrópumeistaramótinu í
Helsingfors kom ekki á óvart,
ekki einu sinni yfirburðir hans.
Knut Johannesen er ekki í eins
góðri æfingu og í fyrra og varð
fimmti, rétt á undan Svíanum
Karenuis, en Svíar stóðu sig
bezt Norðurlandabúa að þessu j
sinni„
Það kom aftur á móti mjög á
óvai t, að Hollendingurinn Henk
van der Grifft skyldi verða
annar í samanlögðu. Annars
hafa Hollendngar átt og eiga
mjög snjalla skautahlaupara,
sem aðallega æfa og keppa í
Noregi. Hvernig væri það að
okkar beztu skautamenn
reyndu að íá sér atvinnu í Nor-
egi eins og eitt ár og notuðu
auðvitað frístundirnar til æf-
inga og keppni? Frakkinn Kou-
prianoíf varð þriðji og það kom
ekki svo mjög á óvart, hann
varð annar í fyrra. Sigur hans
í 1500 m var vel þeginn af flest-
um áhorfendum, en það var
eina greinin, sem Rússar voru
ekki í fyrsta sæti.
Úrslit í 1500 m, 10 km og
samanlagt (í þriðjudagsblaði
komu 500 og 5000 m):
1500 METRAR:
1. Kouprianoff, Frakkl 2,18,8
2. Kositsjkin, Rússl. 2,19,9
3. v. d. Grifft, HoIIand 2,20,3
4. Nilsson, Svíþjóð 2,21,1
5. Gontsjarenko, Rússl. og
Karenus, Svíþ. báðir 2,21,6
7. Kotov, Rússland 2,22,0
8. Brogren, Svíþjóð 2,22,0
9. Grisjin, Rússland 2,22,1
10. Johonnesen, Noreg 2,22,3
11. Jokinen, Finnland 2,23,0
12. Stenin, Rú sl. og Aaness,
Noreg, báðir 2,23,2
14. Bettum og Seiersten,
Noreg, báðir 2,23,6
10.000 METRAR:
1. Kositsjkin 17,11,3, 2. Nils-
son 17,30,1, 3„ Johannesen
17.31.1, 4. Kouprianoff 17,32,7,
5. Maier 17,35,1, 6. Liebrechts
17,35,9, 7. v. d. Grifft 17,36,9,
8, Karenus og Stenin 17,39,3,
10. Seiersten 17.47,8, 11. Gont-
sjarenko 17,51-2, 12. Giois
17.56.2, 13. Aaness 18,03,9, 14.
Bettum 18 06 6, 15. Brogren
18.18.2, 16„ Backman 18,20,8.
SAMANLAGT:
1. og Evrópumeistari, Ko-
sitsjkin. Rúsrland 193.238
2. v. d. Grifft Holland 194,812
3. Kouprianoff, Frakk 195,152
4. Nilsson, Svíþíóð 195,970
5. Johannesen. Noregi 196,338
6. Karenus. Svíhióð 196,345
7. Stenin. Rú'sl, 196,868
8. Gontsjarenko, Rúss 197,980
9. Seiersten, Noregi 198,837
10. Liebrechts. Holl. 199,288
11. Aaness. Noregi 199,728
12. Maier, Noregi 200,175
13. Bettum, Noregi 200,197
14. Gios, Ítalíu 200,527
15. Brogren. Sv^bióð 201,273
16. Backman, Svíþjóð 205,507
Kositsjkin, Evrópumeistari í skautahlaupi 1961.
10 9. febr. 1961 — Alþýðublaðið