Alþýðublaðið - 24.03.1961, Side 2
■Itstjórar: Gisll J. Astþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar rlt-
| BQómar: Sigvaldi HJáimarsson og XndriSi G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
BJÖrgvin Gu3mund<^n. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml
I 14 906. — ASsetur: AlþýSuhúsiö. — Prentsmiöja Alþýðublaðsins Hverfis-
i *ötu 8—10. — Askriftargjald: kr. 43,00 á mánuði. 1 lausasölu kr. 3,00 eint
Btgefandi: Alþýðuflok. urinu. — Framkvaemdastjóri: Sverrir Kjartansaon.
Þetta er sfefnan!
J TÍMINN skrifar mikið um utanríkilsstefnu Fram-
j sóknarflokksins þessa daga, og segir hana vera á
I þá lund, að ísland skuli vera áfram í Atlants-
j, hafsbandalaginu, en láta varnarliðið hverfa á
| brott. Það er þá Ijóst, að Framsóknarflokkurinn
j hefur formlega tekið upp baráttu fyrir brottför
| hersins, og telur ástand heimsmála hafa breytzt
j svo mjög til batnaðar, að það sé hættulaust.
i' Merkilegt er, hvemig Framsóknarmenn meta
i • friðarhorfur í hei<minum. Þegar þeir voru í stjóm
\ fyrir tæpum áratug var útlitið þannig, að þeir
j stóðu allir sem einn með komu varnarliðsins.
{ Rétt í þann mund, sem þeir klufu sig út úr ríkis-
j stjórn vorið 1956, batnaði ástand í heiminum
j svo, að þeir höfðu forustu um tillögu um brottför
} hersins. Ekki var Framsókn fyrr komin aftur í
| ráðherrastólana en málin breyttust og herinn var
látinn sitja. Hélzt það hættuástand samfellt með-
an Framsóknarmenn héldu ráðherrastólunum.
Þegar þeir fóru úr stjórn, tók heimsástandið þeg-
j ar að batna aftur, og er nú orðið svo friðvænlegt,
; að Framsókn tekur upp andstöðu við herinn
. á ný. Það er bezt að halda þessum flokki utan
við ríkisstjórn, því ella má treysta því, að heilms-
j ástand versni strax og Framsókn kemst í stjórn
j svo að óhjákvæmilegt verði að hafa varnarlið!
i Þessi stefna Framsóknar virðist vera skýr, eins
og Tíminn heldur fram. Hins vegar túlka Fram-
sóknarmenn um land allt þessi skrif Tímans á
þá lund, að þeir eigi að hefja baráttu með komm-
únistum gegn her í landi. En þeir athuga ekki, að
kommúnistar hafa gert hlutleysi íslands eitt að-
alstefnumál Brúsastaðahreyfingarinnar, og það
brýtur í bága við fyrri hlutann laf utanríkisstefnu
flokksins. Þannig þykist Framsókn vera fylgjandi
samstöðu íslands nieð öðrum frjálsum þjóðum,
en veitir allan stuðning hreyfingu kommúnista
til að gera landið hlutlaust, rífa <það úr samstöðu
við vestræn ríki og leiða það í áttina til lcomm-
únistaríkjanna.
Framsóknarmenn ættu að hætta að hugsa um
utanríkismál þjóðarinnar eins og hverja aðra
hreppapólitík, sem eigi að miða við atkvæða-
veiðar flokksins hverju sinni og breytast eftir
því, hvort flokkurinn er í stjórn eða stjórnar-
andstöðu. Flokknum er ekki hægt að treysta,
meðan hann rekur svo skammsýna tækiíæris-
stefnu á sviði utanríkismála. Og einmitt þetta
! hringl kemur kommúnistum að miklu gagni í
; starfsemi þefrra.
mBmammmmamuKmmtmsBammKmmmrnammmmúmKammmmBKmmwammmtmmmmmBiimim
Áskriftarsiminn er 74900
Miðnæturhljómleik-
ar í Austurbæjarhíói
í FYRRiVKVÖLD fóru fram
í Austurbæjarbíói hljómleik-
ar sem Hljómsveit Svavars
Gests og Ragnar Bjarnason
héldu, fyrir troðfullu húsi og
við mikinn fögnuð áheyrenda.
Efnisskráin, sem var sú
margbreytilegasta_ sem undir
ritaður man eftir á slíkum
hljómllteikum, var vel valin
og svo vel unnin og undirbú-
in að með eindæmum má telja;
Óþarfar tafir eða hnökrar á
flutningi fyrirfundust ekki.
Svavar Gests hefir nú í
mörg ár verið hljómlistarmað
ur, útvarpsmaður og „brand-
arakarl“ og hefir vegur hans
farið vaxandi á öllum þessum
sviðum. Hér fyrr á árum_ þeg-
ar miðnæturhljómleikar fóru
ekki jafn snuðrulaust fram og
hljómleikarnir í fyrrakvöld,
var hlutverk kynnis hið vanda
samasta, því í löngum töfum,
þegar allt gekk á tréfótum að
tjaldabaki (einn hafði týnt
nótum og annar munnstykki)
varð kynnirinn að halda á-
heyrendum upp á , snakki;' og
láta brandarana fjúka. Þetta
tókst Svavari oft mætavel í
þá daga, en þó var það sýnilegt
að ennþá betui- tókst í gær-
kvöldi og að allir hans „brand
arar“ hittu í mark og vöktu
mikla kátínu hjá áhevrend-
um,
Mörg þau atriði, sem hljóm
sveitin setti á svið, svo sem
„Nfína og Friðrik11. ,Spurn-
ingaþáttur í útvarpssal“ að ó-
gleymdu ,.Laugardagskvöld-
inu“ í hefðbundnum stíl, voru
meira í anda góðrar kabarett
sýningar. Enn er ótalinn aðal-
og bezti hluti þessarar ágætu
skemmtunar, leikur sjálfrar
hljómsveitarinnar og söngur
Ragnars Bjarnasonar, Óhætt
mun að fullyrða, að hljóm-
sveit Svavars Gests sé nú eins
og slíkar hljómsveitir gerast
beztar erlendis. Svavar hefir
marga ágætismenn í liði sínu
og má þar til nefna Magnús
Ingimarsson píanóleikaraj
sem mun hafa útsett megnic?
■af lögunum. Magnús er nú orð
inn mikilvirkur í þeim efn-
um, smekklegur og óhræddur
við að nota þá möguleika
hljóðfæraskipunar og radda,
sem fyrir hendi eru. í>á hefðu
fáir trúað því að Reynir væri
slíkur ágætis-ræðumaður, en
honum var falið að ,.segja
nokkur orð“. Um söng Ragn-
ars er óþarft að fjölyrða, því
hann þekkja allir landsmenn.
Óhætt er að fullyrða að Ragn-
ar brást ekki vonum aðdá-
enda sinna á hljómleikunum.
„Það er ekki nóg að spila vela
ef menn eru með fýlusvip á
sviðinu“ var einu sinni sagt,
og ekki minnist undirritaður
þess, að hafa verið vitni að
meiri ,leikgleði“ (orðið tekið
að láni frá íþróttafréttaritur-
um) en á hljómleikum Svav-
ars Gests og félaga.
Munnhörputríó Ingþórs Har
aldssonar kom þrisvar fram á
hljómleikunum og lék við mib
inn fögnuð áheyrenda. Ingþór
er löngu kunnur fyrir leik
sinn á þetta alþýðlega hljóð-
færi og furðulegt hvað þeir
þremenningarnir hafa ná®
Framh. á 12. siðu.
í>aö vorar
páska og vor-
tireingerniiigarnar
Þvottaefni: Þ v o 11 a 1 ö g u r : SILICOTE
RINSO STERGENE DIF
OMO SQEZY O. CEDAR
TIDE SOFFLY GLO ZOTE
DARY ÞVOL SILVO
TAB VERDOL BRASSO
WIPP TERSO WONDER-
OXYDOL LUX POLISH
CLOZONE KLOROX VTNDOLENE
SPIC SPAN BONNIE BLEEZH
LUX NYLONU +
HENCO AIR GENE
ALL SÓLSKINSSÁPA GÓLFBÓN Handsápiii:
VIM m. teg. LUX
BARÓ DRY BRITE PALMOLIVrE
BETT SJÁLFGLJÁI CAMAY
SPARR PRIDE 13 13
2 24. marz 1961 — AlJjyðublaðið