Alþýðublaðið - 21.06.1961, Page 7
FRJÁLSRIEVRÓPU
ÍTALSKI KOMMÚNISTA-
FLOKKURINN, undir for-
ustu Togliattis, er enn lang-
samlega sterkastur kommún-
istaflokkanna í hinni frjálsu
Evrópu. Hiutfallstala hans í
almennum kosningum hefur
vaxið stöðugt á s. 1, sjö árum,
frá 22,6% árið 1953, upp í
23% 1958 og loks upp í 24,5%
í sveitastjórnakosningum í
nóvember s. 1.
Þessi vöxtur hefur aðallega
verið í iðnaðarhéruðunum í
mið- og norðurhluta landsins
og hefur valdið kristilegum
demókrötum, stærsta flokki
landsins, miklum áhyggjum.
Hins vegar skal á það bent,
að herferð flokksins til með-
limasöfnunar lauk í marz s. 1.
og var þá tilkynnt, að árangur
inn væri 80,1% af meðlima-
tölunni árið á undan.
Andstaðan milli vaxandi
kjósendafjölda og minnkandi
meðlimatölu sýnir vel hve
mjög kommúnistar leita at-
kvæða hjá öðrum en kommún
istum til að ,,mótmæla“
stjórn krislilegra demókrata
á málum landsins. Flokkurinn
hefur gerzt æ „virðulegri“,
heldur því fram, að valda
skuli leitað eftir löglegum leið
um; og hefur skírskotað af
miklum krafli til smákaup-
manna, menntamanna og ann
arra miðstétta.
Þeir beina skeytum sínum
aðall. að því, sem aflaga fer
heima fyrir — hneykslum, ó-
jafnrétti, valdi hægri aflanna,
spillingu, getuleysi, þröng-
sýni í menningarmálum sem
kirkjan kalli fram og setja
þetta allt undir einn hatt, sem
heitir ,,klerka-fasismi“. Ef ein
hverjum umbótum er hrint í
framkvæmd, eru þeir fljótir
að eigna sér heiðurinn með
því að segjast hafa neytt
stjórnina til aðgerða.
Hluti af styrkleika komm-
únista felst í yfirráðum
þeirra yfir stærsta verkalýðs-
sambandinu, G.G.I.L., þó að
það hafi nú aðeins 3.700.00
meðlimi á móti 5000.000 árið
1953, þar sem aftur á móti,
að verkalýðssamband ka-
þólksra hefur vaxið úr 1.200.
000 í 2.300.000 og samband
jafnaðarmanna úr 300.000 í
1.000.000. í fagmálum starfa
öll þrjú samböndin að miklu
leyti saman.
Nenni-jafnaðarmenn starfa
með kommúnistum í C. G. I.
L., en kommúnistar halda þar
að sjálfsögðu öllum helztu
TOGLIATTI
stöðum. Nennimenn hafa lát
ið af samstarfi sínu við komm
únista í þjóðmálum en vinna
ennþá með þeim í fjölda bæja
og sveitasljórna.
í héruðum, þar sem komm
únistar eru við völd — aðal-
lega í Emilíu —stjórna þeir
fjölda verzlunar. og sam-
vinnufyrirtækja. Þá gera þeir
talsvert til að koma því inn
hjá fólki, að þeir hafa bók-
staflega verið andspyrnu-
hreyfingin. Þeir hafa óneitan
lega mikinn stuðning mennta
manna — Scelba, innanríkis-
ráðherra, sagði nýlega, að þeir
réðu skólunum og kvikmynda
iðnaðinum, sem vafalaust eru
ýkjur — og þótt þeir misstu
nokkuð við Ungverjalands?
kúgunina, hefur minni manna
ekki reynzt langt þar frekar
en annars staðar.
Andstætt Ítalíu hafa
franskir kommúnistar stór-
tapað á árunum 1956—1958.
Frá 1951 til 1956 héldu þeir
nokkurn veginn sínu og juku
reyndar atkvæðafjölda sinn
um hálfa milljón atkvæða, en
einhvern tíma á næstu tveim
árum töpuðu þeir 1.600.000
atkvæðum hlutfall þeirra í
heildar atkvæðamagninu fór
úr 24,9% í 18,6%.
Sumir telja, að Ungverja-
land hafi haft þessi áhrif, en
reynslan annars staðar gerir
þð vafasamt. Jean-Paul Sar-
tre og fleiri „intellektúalar“
fóru úr flokknum á þessu
THOREZ
SUSLOV
tímabili, en ekki bendir neitt
til þess, að margir hafi fylgt
þeim. Tap flokksins hafði þeg
ar komið í ljós við þjóðarat-
kvæðagreiðsluna um Algier í
september 1959, þegar aðeins ,
4;.624;511 íkjóisendur, og þá
sennilega allir kommúnistar,
greiddu atkvæði á móti. 1956
höfðu kommúnistar fimm og
hálfa milljón atkvæða.
í kosningunum í nóvember
1958, fyrstu kosningum
fimmta lýðveldisins, fengu
kommúnistar aðeins 3.907.763
atkvæði. Sennilegasta skýring
in er talin sú, að virðing De
Gaulles persónulega og vonin
um, að hann mundi binda
endi á Algiermálið, hafi vald
ið þar mestu um. Kommún-
istar höfðu enga slefnu og
hafa margir vafalaust talið, að
þeir yildu snúa aftur til fjórða
lýðveldisins, sem allir voru
orðnir dauðþreyttir á.
Sé þetta skýringin, er hugs
anlegt, að tap þeirra verði
ekki langvarandi. Hins vegar
hafa margvíslegar deilur ver
ið innan flokksins síðan 1953,
þó að þær væru smávægilegar
miðað við áreksturinn milli
gömlu mannanna í flokksfor-
ustunni og hinna yngri
menntamanna f flokknum.
Telja ungu mennirnir m. a. að
Thorez, sem hefur verið leið
togi flokksins í 30 ár, hafi
verið það of lengi og hafi
gerzt sekur um persónudýrk-
un.
Þegar svo við þetta bætist,
að þingmannatala flokksins:
hefur minnkað úr 143 árið
1956 í 10 núna og flokkurinn
hefur næstum enga mögu-
leika samkvæmt nýja kosn-
ingafyrirkomulaginu, má
segja, að útlitið sé allt annað
en gott fyrir hann.
Flokkurinn ræður enn,
stærsta verkalýðssamband-
inu, en meðlimafjölda hefur
farið mjög hnignandi. Meðliin
um flokksins hefur farið sí-
fækkandi og eru þ'eir nú
sennilega minna en helming
ur meðlimafjöldans 1953, en
þá var hann talinn 400.000.
ÖNNUR LÖND SUÐUE-
EVRÖPU.
í fimm öðrum löndum Suð
ur-Evrópu — Tyrklandi,
Grikklandi, Júgóslavíu, Spáni
og Porlúgal — er hinn sovét-
stjórnaði kommúnistaflokkur
bannaður.
Þrátt fyrir þetta virðast
kommúnistar hafa unnið á í
Grikklandi síðan 1953, og er
það eina landið í Evrópu, sem.
svo er ástatt um. Starfandi er
neðanjarðarhreyfing, og eru
forustumenn hennar taldir
vera í Rúmeníu ,en svo hafa
þeir þarna flokk, sem al-
mennt er litið á sem „skjól-
vegg“ eða „front“, og nefn-
ist sá Sameinaði demókratíski
vinstriflokkurinn öEDA) og
var stofnaður 1951 með stefnuj
Framh. á 12. síðu.
Kaupmannahöfn.
RAFMAGNSHEILI skrá-
setur alla farþega í Kastr-
up við Kaupmannahöfn, og
safnar um þá upplýsingum.
Hann getur afgreitt 20 far
þega á mínútu. Þegar far-
þegi tilkynnir l'omu sína
ýt'ir starfsmaður á hnapp,
sem skrá farþegana eftir,
aldri, kyni, hvar hann sit-
ur, hvert hann ætlar og
hefur meðferðis. Rafmagns
heilinn vinnur á auga-
bragði úr þessum upplýs
inugm og flýtir mjög fyrir
allri afgreiðslu. Flugstjór-
arnir fá fljótt [allar uppýs
'ingar, sem þeir þurfa á að
halda, þunga, fjölda far-
þega, farangur og því um
líkt. Heilinn segir einnig
til'Um ef eitthvað er í ólag'i
— til dæmis ef farangur er
of þungur. 1
hve mikinn farangur hann
Alþýðublaðið — 21. júní 1961 J