Alþýðublaðið - 21.06.1961, Side 16
’IHÆSHS)
42. árg. — Miðvíkudagur 21. jú/íí 1961 —- 136. tbl.
Fyrsta Grænlands-
ferðin á sunnudag
FLUGFÉLAG ÍSLANDS og
Ferðaskrifstofa rík'isins gangast
fyrir sex Grænlandsferðum í
sumar
Fyrsta ferðin verður farin 25.
júní og verður lagt af stað frá
Heykjavík kl. 7,15 að morgni.
Flogið verður með Viscountflug
vél frá Flugíélagi íslands og
verour fyrst fljgið yfir norðvesí
urhluta íslands farið yfir heim-
skautsbauginn rétt fyrir norðan
Horn og í því tilefni verður
'þátttakendum í ferðinni afhent
sérstakt skjal, vottorð um að
þeir hafi farið norður yfir heim
skautsbauginn nyrðri.
Síðan verður stefr.a tekin
vestur á bóginn, og komið að
Grænlardi rétt fyrir sunnan
Scoresby-sund Þá verðuv flogið
ncrður með ströndinni og gefst
ferðamönnunum gott tækifæri
til að virða fyrir sér hina fögru
og hrikalegu náttúrufegurð
Grænlands. Á bessari leið eru
Lið KR
ÞÓRÓLFUR BECK fór í gær-
morgun til Skotlands, e'ins og
áður hefur verið sagt frá 5 frétt-
•um, þar sem hann dvHst hjá St.
Mirren fram á íaugardag. Verð-.
ur hann með KR liðinu gegn Val
í I. deild á mánudagskvöldiö. —
Helgi Jónsson getur ekki heldur
verið með vegna meiðsla.. —
Að öðru leyti verður KR-liðið
þannig skipað gegn Hollending
unum í kvöld: *
Gunnar, G. Ellert Leifur
. (11) (9) (7)
Gunnar Sveinn
(10) (8)
Reynir Garðar
(6) (4)
Hörður
(5)
Bjarni Hreiðar
(3) (2)
Heimir
(1)
| Íþróttasíöan er
I I 10. síban
eskimóaþorp. sem sjást úr flug-
vélunum. Þá verðui' flogið norð
ur tii Óskarsfjarðar en á suður
strönd hans er Meistaravík. Þar
eru sem kunnugt er blýnámur
starfræktar af Norræna námufé
laginu og vinna þar allmargir
menn við námugröft. Deginum
verður síðan varið í Meistaravik
og nágrenni Síödegis veröut'
snúið aftur til Reykjavíkur. Þá
verður flogið yfir hina brika-
legu Stauning-Alpa og yfir Scor
esby sund, en þar er að jafnaði
fjöldi ísjaka, sem eru til að sjá
einsog skip undir fullum seglum.
Þá er og sennilegt að á þessari
leið sjái þátttakendur sauðnaut,
en þau eru oft í stórum hópum
og sjást vel úr flugvélunum. Til
Reykjavíkur verður komið um
ciiðnætti.
Ferðir af bessu tagi verða 3.
25. júní, 25. júlí og 14. ágúst.
Þá eru einnig ákveðnar þrjár
ferðir til Narssarssuaq, t>1 hinna
fornu íslendingabyggða Þessar
íerðir munu taka þrjá daga. Far
ið verður frá Reykjavík kl. 7
að morgni með Cloudmasterítug
véí frá Flugfélagi íslands. Eft-
ir um það bil tveggja tirna flug
sézt strönd Grænlands. Síðan
verður flogið yfir jökulinn og
lent á Narssarssuaq-flugvelli. —
Farþegar munu þúa á Aríic hót
el. Sama dag mun verða bátsferð
yfir Eiriksfjörð til Bröttuhlíðar
bústaðar Eiríks rauða. Á þessum
slóðum er margt rö sjá Þar eru
meðal annars rústir fyrstu krist
innar kirkju í Vesturheimi. Þá
eru og rústir fjölmargra anr-
arra bygginga úr steini surnar
all stórkostlegar, og er nútíma-
mönnum mikii ráðgáta hvernig
fornmenn hafa farið að því að
lyfta steinblokkum sem sumar
vega allt að því 9 smáiestir.
Annan daginn verður bátsferð
niður Eiríksfjörð til bæjarins
Narssaq, næst stæcsta bsejar á
Suður Grænlandi með um þús-
und íbúa. Hér gefst ferðalöngun
um tækifæri t:l að fylgjast með
og sjá hvernig fólk í þessum
heimshluta vinnur fyiir sér, en
aðalatvinnuvegur ba'jarbúa er
rækjuveiði. Á leiðinni til baka
verður stanzað að Itiudlek. Það-
an er 45 mín. gangur yfir háls,
sem er milli Eiríksfjarðar og Ein
arsfjarðar og koma þá gestirnir
Frh. á 12. síðu.
VMMMMMtMMMMMMtMUMW
7 Á BÁTI
SJÖ Þjóðverjar frá Au,- Jl
Berlín komu í gær til R- j|
víkur á kænunni hérna Jl
fyrir handa/?. Þeir lögðu !>
af stað frá Hamborg 3. þ. Jí
m. og höfðu viðkomu í Jl
Færeyjum. Skipstjórinn <
heitir Blankschinc og ein S
kona er í áhöfninni. 5
Snekkjan, sem auðvitað 5
heitir Víkingur, er nokkuð S
við aldur, en var tekin í !>
rækilega klössun fyrir 5 «;
árum. Hún er í eigu sigl- |
ingaklúbbs í Berlín.Þetta í>
er í fyrsta skipti sem S
henni er lagt á Atlantshaf. $
DAGSBRÚN tilkynnti í
fyrradag, að ekki yrði lengur
leyft að landa afla úr dragnóta
bátum og snurvoðarbátum. Var
landað fiski í gærmorgun, en
ekki í dag, þar sem þessir bát-
ar voru ekki á sjó í gær.
Búast má því við, að lítið
verði um fisk í fiskverzlunum
bæjarins meðan verkfallið
stendur yfir úr þessu, þar sent
aðeins færabátar róa. Fáir
þeirra voru þó á sió í gær, enda
strekkingsvindur.
Helgi Ölafsson
skákmeistari
Keflavíkur
stöðvas
vegns verkfa
VERKFALL Dagsbrúnar og
Hlífar hefur nú stöðvað a. m. k.
átta togara, sem liggja bundnir
hér í Reykjavík og Hafnarfirði.
Eru sumir þeirra með saltfisks-
farm, en aðrir tómir. Úti á landi
eruengir togarar bundnir vegna
verkfalla, enda hafa þau alls
staðar þegar leystst.
Allir fjórir togarar Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar á
Kletti eru í Reykjavikurhöfn,
MMMWMMMMMMMMMMMM*
SÁTTAFUNifT.’R Dags-
brúnar og Hlífar annars
vegar hófst kl. 1 í gærdag.
Fundurinn stóð til kl. 7,30.
Samkomulag náðist ekki
og nýi' fundur hafði ckki
verið boðaður síðast, þegar
blaðið frétti.
stöðvaðir vegna verkfalls Dags-
brúnar. Er þar um að ræða Hval
fell, Ask, Hauk og Geir.
Þá liggur Ingólfur Arnarson
frá Bæjarútgerð Reykjavíkur í
höfn með saltfiskfarm, svo og
togarinn Fylkir írá Fylki h.f,, —
ennfremur með saltfiskfarm.
í Hafnarfirði liggur Surprise
með saltfiskfarm, og einnig er
þar bundinn togarinn Röðull.
Auk þeirra togara, sem verk-
föllin hafa stöðvað, liggja að
sjálfsögðu ýmsir fleiri við festar
af mörgum ástæðum. Akraness-
togarinn Víkingur er í Reykja-
vík og báðir ísafjarðartogararn
ir liggja í heimahöfn.
fsborg hefur legið þar í allan
vetur, en Sólborg er stöðvuð af
ástæðum, sem blaðinu eru
ókunnar. t
NÝLEGA er lokið skákmóti
Keflavíkur. Úrslit urðu þau, að
þessu áinnS, að skákmeistari
Keflavíkur varð Helgi Ólafs-
scn, 19 ára gamall piltur, sem
vann^allar sínar skákir og
hlaut 8 vinninga. Er það mjög
góður árangur, þar sem mótið
var skipað mörgum sterkum
skákmönnum.
Önnur úrslit urðu þessi:
2. Páll G. Jónsson landliðs-
maður, með 6V2 vinning.
3. Haukur Angantýsson með
5V2 vinning. Haukur er aðeins
12 ára gamall og er þetla mjög
athyglisverður árangur hjá
honum.
4. —5. Borgþór H. Jónsson og
Hörður Jónsson með 5 vinn-
inga hvor.
f 2. flokki varð sigurvegari
Aðalsteinn Einarsson, sem
hlaut 6V2 vinning af 7 mögu-
legum. Flytzt hann nú upp í
1. flokk.
Hraðskákmótið:
Að skákmótinu loknu fór
fram hraðskákmót Keflavíkur,
sem lauk með sigri Hauks Ang
antýssonar, er hlaut 6V2 vinn-
ing af 9 mögulegum.