Alþýðublaðið - 20.07.1961, Qupperneq 1
42. árg. — Fimmtudagiir 1961 1— 158. tbl.
EITT af skipum Sk'ipaútgerðar
ríkisins, Hekla, hefur verið að
undanförnu í siglingum til Norð
urlanda. Þegar sk'ipið kom til
hafnar í Rcykjavík fyrir nokkru
fóru toliþjónar um borð áður
en það fékk að leggjast að
bryggju.
Þegar lokið var að tollskoða
skipið fóru fjórir tollþjónar
saman í bifreið út á Reykjavík-
urflugvöll, þar sem þeir þurftu
að skoða farangur farþega flug
vélar, sem væntanleg var.
Einn tollþjónanna ók bifroið-
inhí. Á bifreiðastæðinu fyrir
framan afgreiðsluskála Flugfé-
lags íslands ók hann utan í bif
reið, sem' skemmdist nokkuð.
Tollvörðurinn skeytti þessu
engu, heldur flutti bifreið sína
til og lagði henni Þegar eig-
andi bifreiðarinnar, sem ekið
var á, kom út stuttu síðar, veitti
hann verksummerkjum eftir-
tekt. Hann lét kalla á lögregluna
og fólk, sem þarna var, gat gef
ið^ upplýsingar um hver hefði
verið valdur að árekstrinum.
Lögreglan handtók tollvörð-
inn Kom í ]jós, að hann var
drukkinn. Lögreglan er þeirrar
skoðunar, að félagar hans hafi
einnig verið undir áhrifum á-
Biiun í
fengis, en aðeins var tekið blóð
sýnishorn af þeim, sem bifreið-
inni ók_
Þeir félagarnir munu hafa
neytt hinna Ijúfu veiga fyrr um
kvöldið um borð í Heklu.
Stúlkan og kortið
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hef-
ur fengið frá Loftlciðum
kortið þeirra fræga, sem
breytir ensku lengdar- og
þyngdarmáli auðveldlega
í kerfi það, sem flestar
Evrópuþjóðir nota.
Þetta litla kort varð til
þess, að Loftleiðir kom-
ust í eitt víðlesnasta tíma
ri veraldar, vikublaðið
Time.
Við notum tækifærið
til að birta mynd af fall-
egri stúlku, ásamt kort-
inu. Hún hcitir Elízabet
Jóhannesdóttir.
ÞEÍ5AR prentun Al-
þýðublaðsins v'ar að hefj
ast í fyrrinótt, brotnaði
hlulur í prentvél blaðs-
ins og urðu af svo mikl-
ar skemmdir, að ógern-
ingu,r var að prenta
blaðið. Kom það því ekki
út í gær. Var unnið að
viðgerð vélarinnar við-
stöðulaust, unz liún
komst afíur í lag í gær-
kvöldi.
TÚNISMENN hafa byrj
að stórskotaárás á stöðvar
Frakka í Bizerte og hafa
í franskir hermenn særzt,
nokkrir alvarlega. Ástand
ið er mjög alvarlegt. —
Frakkar halda áfram liðs
flutningum t:l Bizerte og
hófust hernaðaraðgerðir,
er Túnismenn hófu skot
hríð á franskar þyrlur. —
I Frakkar svöruðu skothríð
inni. .
| LOFTVARNASVEITIR Túnis-
manna hófu í dag skothríð á
( franskar flugvélar víð flotastöð
I ina í Bizertc. Frakkar svöruðu
skothríðinni og flytja nú marga
1 fallhlífaher,menn til stöðvarinn-
ar. Túnismenn reístu í dag vega
! tálmanir á leiðinni til Bizerte og
| gefin hefur verið skípun um að
i skjóta á frönsk skip á leið þang
að. Franskar flugv'élar V'örpuðu
sprengjum á stöðvar Túnis-
manna.
Ríkisstjórn Túnis kom saman
til skyndifundar í dag og sendí
herra Túnis í París gekk í dag
á fund Hammarskjölds fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna.
Samkvæmt tilkynningu frá
Túnis hófu loftvarnabyssur
Túnismanna skothríð á fjórar
franskar flugvélar klukkan
fimm í dag.
Upplýsingamálaráðhevra
frönsku stjórnarinnar, Louis
Terrenoire, staðíesti fréttixia, eii
kvaðst ekki get.a gefið neinar
nánari upplýsingar.
Franska ríkissjórnin átti að
koma saman á fund um elleíu-
leytið í kvöld, undir forsæti
Debré forsætisráðherra.
Blaðið hefur hlerað:
AÐ ungir leikarar sækist
eftir að fá Tjarnarbíó
leigt í vetur til að koma
þar upp kjallaraleik-
liúsi, en nýja háskólabí-
óið mun talca til starfa
með haustinu.