Alþýðublaðið - 02.08.1961, Síða 2
itítstjórar: Gísli J. Astþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi rit-
c&jórnar: Indriði G. Þorsteinsson — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. —
6£mar: 14 900 — 14 901 — 14 901' Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðu-
básið. — Prentsmiðja Alþýðubiaðsins Hverfisgötu 8—10. — Áskriítargjald
kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgefandi Alþýðuflokkurinn. —
Fra kvæmdastjóri Sverrir Kjartansson.
Orsök og afleiðing
HUGSANDI MÖNNUM finnst það vera að ögra
iheilbrigðri skynsemi, þegar Þjóðviljinn heldur
fram, að stjórnarflokkarnir hafi valdið þeirri
verðbólgu, sem skollin er á. í þessu sambandi er
■þó rétt að minna á nokkur atriði:
1) Alþýðuflokksmenn fluttu sl. haust í stjórn
Alþýðusambandsins þá tillögu, að lögð yrði
éherzla á tolla og vöruverðslækkanir í stað öraun
haéfra kauphækkana í krónutölu. Kommúnistar
felldu þá tillögu.
2) Alþýðuflokksmenn beittu sér tveilm mánuð
um síðar fyrir tillögum á þingi ASÍ, sem gengu í
sömu átt. Kommar og framsókn sameinuðust um
að fella þær tillögur, en mörkuðu stefnuna, sem
fylgt hefur verið.
3) Þegar sáttasemjari bar fram tillögu sína, síð
ustu von um lausn kaupgjaldsmálanna án verð
hólgu, var hún samþykkt í þeim félögum, þar sem
Alþýðuflokksmanna gætir mest, en felld af kom
múnistum og atvinnurekendum.
4) KommúnMar hafa sjálfir orðið að viður
kenna, að kauphækkanirnar eru óhugsandi án
verðhækkana á eftir. Þetta viðurkenndi Eðvarð
■Sigurðsson fyrstur með því að samþykkja mjólkur
hækkunina. Hann sá hið óhjákvæmilega sam
hengi, sem er milli þess, sem hann hafði staðið að
á Alþýðusambandihu og Dagsbrún — og þess eftir
leiks, sem nú kemur fram.
Af öllu þessu verður séð, að stjórnarandstaðan
hefur stofnað til þeirrar verðbólgu, sem nú skellur
yfir. Hún ber framar öðrum ábyrgð á afleiðing
unum.
Slæmt ástand
■maa
i vegamálum
SJALDAN hafa vegir hér
suimanlands verið; í eins
slæmu ástandi, og nú um helg-
siua. Það eru liðnar þrjár vik-
■ur síðan verkfall vegagerðar-
manna skall á, og á þeim
tíma hefur enginn vegur ver-
ir heflaður eða ofaníborinn.
Vegurinn yfir Hellisheiði er
■orðinn mjög slæmur, og tefur
það áætlunarbifreiðar um allt
að' hálfa klukkustund á leið-
Snni til Hveragerðis. Einnig
<eru vegir um Suðurlandsundir
iendið orðnir mjög slæmir.
Sömu söguna er að segja
um veginn um Hvalfjörð og
vegi í Borgarfirði. Hér innan-
hæjar eru götur farnar að
Igla á sjá, og hefur það aukist
til muna í rigningunum að
undanförnu.
Nú þegar mikil ferðahelgi
er fram undan, þ. e. verzlunar
mannahelgin, og þúsundir bif
reiða steyma burtu úr bænum
og út í sveitirnar, hlýtur þetta
ástand að vera mikið áhyggju-
efni hverjum bifreiðareiganda.
Þeir verða ugglaust margir
bílarnir, sem stöðvast af þess-
um sökum, með brotinn öx-
ul eða annað, sem farið hefui'
úr lagi vegna hristingsins.
Helgin sú arna á ábyggilega
eftir að fækka aurunum í
veski einhvers bifreiðareig-
andans.
2 2. ágúst 1961 — Alþýðublaðið
Fimmtugur:
ÞÖ
í DAG er einn af liðsodd-
um íslenzkrar íþróttahreyfing-
■ar, fimmtugur. Það er Úlfar
læknir Þórðarson. Hann er
fæddur hér í Reykjavík 2.
ágúst 1911. Sonur hins mikla
góíumanns, Þórðar Sveinsson-
ar, sem um árabil var yfir-
læknir Kleppsspítala, og konu
hans Ellen Johanne f. Kaaber.
Það var árið 1947 að
skyndilega kom nýr maður
fram á sjónarsviðið í knatt-
spyrnufélaginu Val. Hann var
lítt þekktur Valsmönnum áð-
ur, nema sem þjóðkunnur
læknir. En þeir áttu eftir að
kynnast honum og meta hann
og því meir, sem kynnin urðu
nánari. Já, og það urðu ekki
Valsmenn einir, sem kynntust
honum og mátu hann, heldur
■og Reykvískir íþróttamenn yf-
irleitt, þó að starf hans á sviði
félagsmála íþróttanna væru
innan Vals.
Þetta sama ár tók Úlfar
Þórðarson við stjórn Vals og
var þar í forystu næstu þrjú
árin. En það var ekki fyrst og
fremst sem sjórnarformaður,
að Úlfar ritaði nafn sitt óafmá-
anlegu letri á söguspjöld Vals,
þó starf hans á þeim vettvangi,
væri vissulega margþætt og
röggsamt.
Með eignarhaldi á landi
Hlíðarenda við Öskjuhlíð, öðl-
aðist Valur loks „blífanlegan
samastað" fyrir starfsemi sína
og löng hrakningarsaga var á
enda kljáð.
Á árunum 1948—1951
eða í stjórnartíð Úlfars og und-
ir hans forystu, er hafizt handa
um að nýta þá aðstöðu, sem
þessi landakaup gerðu kleyfa,
með gerð malar- og grasvalla
til íþróttaiðkana, fyrst og
fremst knattspyrnu, sem er
HANNES
Á HORNINU
ýV Ófremdarástand
í Sundlaugunum.
•fo Of margt starfsfólk.
'fc En lítilf jörleg þjónusta
•fe Og slæmt fyrirkomu
lag.
N O K K R U M sinnum und-
anfarið hef ég orðið var Við
kvartanir út af Sundlaugunum.
Þær hafa verið lausar svo að
ég hef ekkj sinnt þe'im. í gær
fékk ég hins vegar bréf um
þjónustu í Laugunum og ég sé
ekki ástæðu til þess að stinga
því und'ir stól. Aðfinnslurnar
er.u margar og alvariegar og
væri ástæða fyrlr bæjaryfirvöld
in að rannsaka ástandið þarna.
Annars er sagt, að Sundlaugarn-
ar séu að telja út„ Sundlaug
Vesturbæjar er að taka til starfa
og nú mun hafin vinna við nýj-
ar sundlaugar. skammt frá þeim
gömlu, enda segir í yfirlýsingu
frá bænum, að gömlu Sundlaug-
arnar eigi að hverfa Og hér er
bréfið:
Wj
SUNDLAUGARGESTUR
skrifar: „Ég hef stundað Sund-
laugarnar um nær 10 ára skeið.
Þó ekki sé ég daglegur gestur
þar, þá kem ég þar all oft og
þykir jafnan gott þangað að
koma og svo mun fleirum finn-
ast, því allstór hópur manna
koma þangað svo til daglega.
I
ÞAÐ, SEM ég ætlaði að gera
að umtalsefni er þjónustan í
Sundlaugunum. Mér finnst hún
hafa mikið breyzt til hins verra,
frá því að ég kom þar fyrst og
þó sér í lagi síðustu tvö árin. I
fatageymslu eru venjulega fjór-
ir, tvær konur og tveir karlar,
auk þess er svo kona í miðaaf-
greiðslu og baðvörður, en þrátt
fyrir þennan fólksfjölda er öll
þjónusta mjög bágborin og satt
að segja er ekki í neinu sam-
ræmi við þann fólksfjölda, sem
þar vinnur eða kannski öllu
heldur, sem á að vinna.
ÉG MAN eftir því að fyrst,
eftir að ég fór að sækja Sund-
laugarnar fékk enginn að fara
inn í fatageymsluna, heldur tók
afgreiðslufólkið við fötunum og
afhenti númer, sem maður nældi
við sundskýluna. Síðan fékk
i maður fötin aftur gegn afhend-
ingu númersins. Nú er þetta orð
| ið all mjög breytt, hverju sem
j því kann nú að valda.
I
I AFGREIÐSLUFOLKIÐ situr
I á sínum stól með kaffibolla og
vindling, en vísar gestinum að
fara sjálfan með fötin sín inn í
fatageymslu og sama sagan end-
urtekur sig, þegar baðgesturinn
( kemur og vill fá fötin sín, hon-
I um er bara sagt að fara innfyrir
1 og ná í þau sjáflur, Hér fá sem
aðalíþrótt félagsins. Með þessu
var fyrsta skrefið stigið í þá
átt, sem hugsuð var af for-
göngumönnum Hlíðarenda-
kaupanna, um að gera staðinn
að íþróttamiðstöð.
Næsta skrefið, sem stig-
ið var, var þó sýnu stærra. ÞaS
er þegar hafin var bygging
fullkomins íþróttahúss að Hlíð-
arenda. Það skref var stigið,
að vandlega athuguðu máli, ár-
ið 1954. Það er í sambandi við
þetta mikla átak félagsins, sem
Úlfar læknir Þórðarson, hefur
getið sér þann orðstí, sern
seint mun fyrnast. Hann var
formaður Hlíðarendanefndar
um árabil og íþróttahússnefnd-
ar frá því að hún var sett á
laggirnar og er enn. Á honumi
hefur mætt, að öllum jafnaði,
meginþáttur framkvæmdanna..
Það mun vart leika á
tveim tungum, að víða megi
'leita inpan íþróttahreyfinga
landanna, til að finna hliðstætt
dæmi um lækni, önnum kaf-
inn við sky'ldustörf sín „myrkr-
anna á milli“, eins og Úlfar
Þórðarson, er skuli gefa sér
tíma til að sinna svo umfangs-
miklum störfum í þágu íþrótta-
Framhald á 14. síðu.
sagt allir að æða inn fyrir og
afgreiða sig sjálfur, hvort sem
nokkur er í fatageymslunni eða
ekki, því það kemur fyrir a3
hún er mannlaus, þegar að er
komið Flestir munu kannski
ekki telja eftir sér að ná í föt-
in sín sjálfir en hitt finnst mér
verra, þegar fatageymslan er al-
gjörlega eftirlitslaus. Því oftast
eru einhver verðmæti í fötunum,
svo sem úr og peningar.
ÞAÐ SKRÝTNASTA við
þetta allt saman er þó það, að I
miðasölu eru geymsluhólf, sem
margir myndu halda að værui
fyrir baðgestj að geyma verð-
mæti í, meðan þeir dvelja í Sund
laugunum, en því er ekki þann
ig farið, heldur eru þessi
geymsluhólf einungis fyrir þá
eða öllu heldur fyrir Sundlaug-
arnar — sem fá að lán; sund-
skýlu eða handklæði og verða
þeir að láta af hendi pant, sem
stungið er inn í þessi hólf og
geymt þar þangað til lánshlut-
unum er skilað.
ÞANNIG eru þessi hólf ekki
fyrir baðgesti, eins og nærtækt
væri að halda, heldur fyrir Sund
laugarnar. Ég reyndj í fyrstu að
fá að geyma þar verðmæti, era
fékk alltaf sama svarið, að hólf
in væru aðeins fyrir þá, sem
fengju skýlu lánaða, þrátt fyrir
það, að hér séu venjulega flest
hólfin tóm Það er kannski of
mikil fyrirhöfn og töf frá kaffi-
bollanum, að ónæða starfsfólkið
við jafn sjálfsagðan hlut og taka
verðmæti til geymslu í hólf, semi
annars eru tóm. Þessi þjónusta
í Sundlaugunum er alveg óhæf
og úr þessu verður að bæta, það
er alger óhæfa að greiða 4—5
manns laun fyrir vinnu seml
auðvelt er fyrir 2—3 manns að
anna“.
Hannes á horn'inu.