Alþýðublaðið - 02.08.1961, Qupperneq 13
t félagsheimili
KOMMÚNISTAFLOKKUR
Sovétríkjanna gcrði um helgina
heyrin lsunna hina nýju stefnu-
skrá ilokks'ins, sem kemur í stað
liinnar upprunalegu stefnu Len-
ins frá árinu 1919, án þess þó
að breyta meginstefnumiðum
kommúnistaflokksins. — Menn,
sem fylgjast vel með í Moskva,
telja, að hér sé um að ræða víð-
tækustu áætlun, sem rússneskir
kommúnisar hafi til þessa birt,
ekki hvað minnst vegna þess, að
hún miðast m a„ við það, að
Sovétríkin fari fram úr Banda-
ríkjunum að lífskjörum á ekki
styttri tíma en 20 árum.
Á sviði utanríkismála slær
stefnuskráin því föstu, að mark-
mið sovézkrar utanrikisstefnu sé
að gera styrjöld ómögulega og er
því slegið föstu, að vopnavald sé
ekkj lengur fallið til lausnar á
alþjóðlegum deilum. Stefnuskrá
in sær fastri kenningunni um
friðsamlega sambúð, en gerir
jafnframt æðislega árás á Banda
ríkin, sem lýst er sem háborg
afturhaldsins í heiminum.
Stefnuskráin — sem samin er
undir yfirumsjón Krústjovs
sjálfs — gerir ráð fyrir víðtæk-
um umbótum innan Sovétríkj-
anna, er gera eiga ríkið að raun-
verulegu kommúnistaríki, þar
sem það nú er aðeins sósíalist-
ískt.
M a. segir í stefnuskránni, að
innan tuttugu ára muni allt, sem
nefnist fátækt í Sovétríkjunum
vera horfið, og allir sovétborgar
ar eiga kröfu á ókeypis húsnæði,
ókeypis mat á vinnustað og ó-
keypis aðgang að öllum opin-
berum stofnunum.
/Fiokkss|arfið og stjórnin
verða gerð frjálslegr; og með
nokkrum veigamiklum undan-
tekningum þó munu engir starfs
menn flokksins sitja lengur en
þrjú ár í embættum sínum.
Skipta skal um fjórðung allra
kjörinna trúnaðarmanna flokks-
ins — þar á meðal meðlima mið-
stjórnar kommúnistaflokksins
— fjórða hvert ár.
Munurinn á hæstu og lægstu
launum á að verða minni, og
siðar á með sérstökum lögum að
ákveða laun, sem tæplega koma
til með að vera hærr; en 600
rúblur á mánuði. Innan tíu ára
á 36 tíma vinnuvika að vera
komin á, jafnframt því sem lagt
verður bann við erfiðisvinnu
kvenna
Á það er lögð áherzla, að frið-
samleg þróun í alþjóðamálum
sé nauðsynleg til þess að kleift
verði að framkvæma áætlunina
og aukin útgjöld til landvarna
geti leitt til þess, að starfinu að
því að hækka lífskjörin geti
seinkað. •
Leikur gömlu
dansana í
Þórscafé
MYNDIN er af hljómsveit
Guftmundar Finnbjörns-
sonýar, sVm 'uvúir leíkið
undanfarin ár fyrir gömlu|
dönsunum í Þórscafé. Hef-.
ur hún hlotið ágæta dóma
íyrir fjörugan og góðan
leik. Einkum hafa vin-
sældir hennar farið vax-
andi meðal unga fólksins,
er sækir gömlu dansana í
síauknum mæli. — Á mynd
inni eru, talið frá vinstri:
Tage Möller, píanó, Ásgeir
Sverrifcjon, harmonjika.
Hljómsveitarstj. Guðm.
Finnbjörnsson, alto bassi.
Söngkonan Huldla Emll.sd.i
Jóhannes Jóhannesson har-
mónika. Ole Östergárd,
gítar, en í hans stað leikur
nú með þl^éþisveitinnl'
Haraldur Baldursson, og
Karl Karlsson trommur.
Dansstjóri á gömlu döns-
unum f Þórscafé er Baldur
Gunnarsson. Sér hann um
að allir skemmti sér þar vel
á fimmtudags og laugar-
dagskvöldum.
IMHHWMMMmHHUHMtri
Verðlagsmál
samvinnufélaga
I ALÞYÐUBLAÐINU 27. og
28. júní, eru feitletraðar fyrir-
sagnir „ÞEIR HEIMTA AFNÁM
VERÐLAGSEFTIRLITSINS“ og
1 er á blað'inu að heyra að það séu
aðeins kommúnistar og fram-
sóknarmenn, sem að því standa,
og þá til að vinna ríkisstjórninn'i
skaða.
Vel veit ég, að þeim flokkum
mun ósárt þótt sitthvað gangi
sjórninni á móti, en að halda að
það sé til að hrella stjórn:na,
þótt kaupfélögin, eins og aðrir,
vilji leiðréttingu óréttlátra verð
lagsákvæða, er mesti misskiln-
ingur
Ég held ég haf; séð í leiðara
Alþýðublaðsins fyrir nokkrum
dögum, að svo væri þrengt að
verzluninni, að þar yrði vart
lengra gengið, og eftir núver-
andi kaupgjaldshækkanir hlyti
álagning að breytast til hækk-
unar.
Mér finnst að í þessu tilfelli
þurfi vart að spyrja um stefnu
Kommúnista eða Framsóknar í
verðlagsmálum, því þeir hafa
haft nákvæmlega sömu afstöðu
til verðlagsmála, meðan þeir
sjálfir voru í stjórn, og virðast
ráða hjá núverandi stjórn. —
Stæðu þeir flokkar að ríkis-
stj. í dag, mundi afstaða þeirra
vera svipuð, þar eð það mundi
þykja vænlegt til atkvæðafylgis
Hins vegar er ég viss um, að
þeir menn, sem mest tala um
að kaupfélögin heimti afnám
verðlagsákvæða, myndu hafa ná
Framhald á 14. síðu.
Ólafsfirði, 31. júlí..
Á LAUGARDAGINN var nýtt'
félagsheimiii tekið í notkun í j
Ólafsfirði. Hús'ið stendur við Að- i
algötu og heitir Tjarnarborg. —
Það er 506 fermetrar aö flatar- j
mál; og tekur um 230 manns í :
sæti. Á svölum verða sæti fyrir j
96 og í veitingasal, sem er til
hliðar við aðalsal'inn, eru sæti
fyrir um 100 manns..
Leiksviðið er 70 fermetrar og
búið fullkomnasta útbúnaði. -—
Auk þess er í hús'nu 56 fer-
metra fundarsalur, 3 herbergi,
sem ætluð eru félögum til af-
ndta, pldhús, búr(ingsherbergi
leikara, rúmgóður forsalur og
snyrtiherbergi, svo og skrifstofa
fyrir húsvörð, leiktjaldageymsla
og klefi fyrir kvikmyndasýning-
arvélar
Allur frágangur hússins er
með miklum myndarbrag og er
það fullgert að öllu leyti að ut-
an og innan, nema hvað kvik-
myndavélar, sem eru frá Bauer-
verksmiðjunum í Þýzkalandi,
koma ekki fyrr en í haust °g
sæti á svalir eru eigi komin.
Teikningar hússins gerði Hall-
dór Halldórsson, arkitekt í
Reykjavík, en innanhúss arki-
tekt var Sigvaldi Thordarsen í
Reykjavík. Byggingameistarar
voru Gísli Magnússon og Gunn-
laugur Magnússon frá Ólafsfirði,
Þórður Friðbjörnsson, Akureyri,
var yfirsmiður við innréttingar,
Magnús Stefánsson, Ólafsfirði,
sá um raflagnir, auk fjölda ann-
arra iðnaðarmanna og fyrir-
tækja, sem við bygginguna hafa
starfað.
Að félagsheimilinu Tjarnar-
borg standa Ólafsfjarðarkaup-
staður og^ 10 félagssamtök í Ól-
afsfirði. Ákvörðun um byggingu
hússins var tekin á stjórnar-
fundi fyrir sex árum eða 25.
júlí 1955. Núverandi stjórn fé-
lagsheimilisins skipa: Ásgrímur
Hartmannsson, bæjarstjóri, for-
maður; Björn Stefánsson, skóla-
stjóri, gjaldkeri; og með þeim
í framkvæmdaráði Jón Ásgeirs-
son, vélstjóri, en aðrir í stjórn
eru Gísli Magnússon, Jónmund-
ur Stefánsson. Ármann Þórðar-
son og Jakob Ágústsson.
Til vígsluhátíðarinnar, sem
hófst kl. 15 á laugardaginn, var
boðið öllum fullorðnum Ólafs-
firðingum, svo og þeim Ólafs-
firðingum, sem brottflutbr eru.
Til borðs sátu 500 manns, en
veitingar önnuðust konur úr
Slysavarnarsveit kvenna, Kven-
félaginu Æskunni og Verka-
kvennafélaginu Sigurvon undir
stjórn framkvæmdastjóra Tjarn-
arborgar.
Björn Stefánsson stjórnaði hóf
inu, sem fór fram með hinum
mesta myndarbrag. Séra Kristj-
án Búason flutti vígsluræðuna,
Gísli Magnússon, byggingar-
meistari, lýsti húsinu og Ásgrím-
ur Hartmannsson rakti bygging-
arsögu hússins.
Aðrir ræðumenn voru: Séra
Ingólfur Þorvaldsson, fyrrver-
andi sóknarprestur i Ólafsvík,
sem tilkynnti ónafngreinda gjöf
frá Ólafsfirðingum á Suð-Vest-
urlandi; Kristinn Þorsteinsson,
deildarstjóri á Akueryri, er til-
kynnt; að Ólafsfirðingar á Ak-
ureyr gæfu ræðustól; frú Jó-
hanna Magnúsdóttir, sem lengi
stóð framarlega í félagsmálum
Ólafsfjarðar, enn er nú flutt til
Reykjavíkur; Eysteinn Jónsson,
fyrrverandi ráðherra; Sigurður
Baldvinsson, útgerðarmaður,
sem tilkynnti höfðmglega gjöf
frá Fisksölufélagi Ólafsfjarðar;
og Björn Stefánssom sem gat um
gjöf írá Kaupfélagi Ólafsfjarðar;
og Óskar Garibaldason frá Siglu
firði.
Almennum söng stjórnaði
Kristinn Þorsteinsson og Erling-
ur Vigfússon söng einsöng við
Frai .'ihald á 14. síðu.
■ ■
KJOR-
GARÐS-
KAFFI
KJÖRGARÐSKAFFI — nýr
kaffi og matsölustaður tekur
til starfa á efstu hæð Kjör-
garðs, Laugavegi 57—59,
þessa dagana, en auk þess sem
þar verða á boðstólum allar
venjulegar vcitingar og matur
er ráðgert að rekstur þessa
fyrir^ækis verði með allnýstár
legu sniði og ferðamönnum og
öðrum, er þess óska, veitt
ýmis þjónusta, þeim til hag-
ræðis.
Meðal þess má geta, að
„Kjörgarðskaffi" ' sér um út-
vegun herbergja á opinberum
gististöðum hér í bænum fyr-
ir ferðamenn, erlenda og inn
lenda, svo og svefnpokapláss
og tjaldstæði, einkum fyrir
stærri hópa. Einnig er þar séð
um úlvegun bifreiða, með og
án bílstjóra, hesta með fylgdar
manni, veiðileyfi o gsjóstanga
veiði, fyrir alla, er þess óska.
Þá geta þeir er vilja fengið út-
búið nesti, bæði til lengri og
skemmri ferðalaga, t. d. af
gömlu tegundinni, þar sem
lögð verður áherzla á íslenzk
an nestismat. Einnig verða
veittar upplýsingar um staði
og leiðir, og smekklegir minja
gripir á boðstólum.
Sökum aðstæðna verður
”Kjörgarðskaffi“ aðeins opið
almenningi frá kl. 8,30 að
morgni til kl. 6 síðd. en þó
gela félög og smærri hópar
fengið að halda þar fundi eft
ir þann tíma. Þegar líður á
sumarið, hyggst “Kjörgarðs-
kaffi“ senda venjulegar veit-
ingar, svo sem kaffi og kökur,
í skrifstofur, samkvæmt
beiðni, og verður sú þjónusta
veitt allan daginn.
Alþýðublaðið — 2. ágúst 1961