Alþýðublaðið - 19.11.1961, Blaðsíða 9
~4r
ÞVÍ er nú spáS suður í
Evi'ópu, að gjörbylting sé
í vændum í sniði kvöld-
kjóla. Að vísu hefur lengi
ver'ð viðurkennt það snið
þeirra, að þeir skuli vera
flegnir í bakið. En fyrr
má nú rota en dauðrota,
dettur manni í hug, þegar
maður sér nýja sniðið.
Þessi nýi kjóll er svo
fleginn í bakið, að hann
rétt nær að hylja lendarn-
ar, og getur nú mörgum
dotlið í hug, að nær hefði
verið að byrja aldrei að
hafa kjóla flegna í bakið,
fyrst málið tók þessa
stefnu.
Sá galli fylgir nefnilega
þessu nýja sniði, að nú er
ekki lengur sama hvernig
hryggur konunnar lítur
út, og sá flötur líkama
hennar stækkar stórum,
sem hún verður að snyrta
sérstaklega vegna þess, að
engin föt skýla ágöllun-
um. Og þetta með alla
hrygglengjuna kostar
þjónustu, sem veita verð-
ur konunni aukalega, af
því hryggurinn verður að
vera fallegur, þegar svo
mikill hluti hans er nak-
inn.
Þegar þessi kjóll er tek
inn í notkun verður kraf-
an þessi: Konan verður að
vera grönn en ekki hold-
skörp.
Hryggurinn má gjarnan
vera sólbrenndur, en
ekki munztraður undan
brjóstahöldurum, en þetta
þýðir hastarlega landslags
breytingar á baðströndun-
um
Þá verður að gæta þess
að hreyfingarnar séu lát-
lausar, og gjarnan að
standa aldrei kyrr þannig,
að eins konar 'Venusar-
stilling fylgi ekki hvað
baksvipinn snertir. Þetta
er mikill lærdómur. Að
öllu samanlögðu sést, að
konup hefðu aldrei átt að
leggja út í það ævintýri
að hafa kjóla sína flegna
að aftan, þar sem málið
er nú komið út í hreinar
ógöngur.
*
2 nýjar L.P. 12“ hljómplötur, CPMA. 5 —•
CPMA. 6 með orgelleik Dr. Páls ísólfssonar
nú komnar á markaðinn.
.4 plötum þessum túlkar Páll orgeltónverk
efttr viðurkennda evrópska meistara, svo og
nokkuð af eigin tónsmíðum.
Þessar plötur eru vissulega fengur fyrir a]>a
þá, sem unna orgel-tónlist.
Fást einnig í öðrum h 1 jóðfæraverzlunum.
FÁLKINN
(hl j ómplötudei ld)
Keflavík SuSurnes
Höfum flutt
Timburverzlun og trésmiðju á iðnaðarsvæði
við Reykjanesbraut, Ytri-Njarvík.
TRÉIÐJAN H.F.
Friðrik Valdimarsson. Sími 1680
Keflavík SuSurnesi
TIMBUR
(Smíðaviður — Mótaviður).
Vélunnið timbur.
Gólfborð — Karmar — Panill o. fl.
Væntanlegt: Masonit — Trétex og Gaboon.
TREIÐJAN H.F.
Timburverzlun Sími 1680.
ATVINNA
Sölumaður vanur akstri óskast strax.
Upplýsingar í síma 36195.
AlþýðublaÖið — 19. nóv. 1961 9