Alþýðublaðið - 19.11.1961, Blaðsíða 12
★
FRÉTTAMYNDIR
Stúlkan á málverkasýning-
unní heldur á lítilli sendistöð,
sem brezk málverkasöfn hafa
nú byrjað að nota. Gegnum
talstöðina getur hún heyrt
skýringar á myndunum og
höfundum þeirra. Sérstök dag
skrá verður höfð fyrir hvern
sal, þar sem gestir geta fengið
útskýringar á öllum málverk-
unum, og tekur það um 15 mín.
Stóra myndin af stúlkunni
með skartgripina er til að sýna
skartgripi af nýrri tegund. í
þeim eru demantar, sem eru
skornir á sérstakan hátt og er
það nefnt „Prencesscut.“ Við
skurðinn eru notaðar nýjar að
ferðir og hefur tekizt að gera
demantana mjög litla, þó þann
ig, að þeir haida sínum upp-
runaiega glaesileika. Á mynd-
inni, þ. e. annarri, sjáum við
brezka hermenn að œfingum,
en fyrir skömmu stóðu yfir
mikilvægar æfingar hjá brezka
hernum. „Transitor“-útvarps-
tæki hafa náð miklum vinsæld
um að undanförnu, en sumir
segja að þau séu orðin hálf-
gerð plága. Myndin af stúlk-
unni á ströndinni með eitt af
þessum tækjum sýnir hve lít
il þau geta verið. Tækið er
lítið stærra en sígaretíupakki,
og frá því er örlítið heyrnar-
tól, sem stúlkan stingur í eyr-
að.
★
12 19. nóv. 1981 — Alþýðublaðið