Alþýðublaðið - 15.04.1962, Síða 2
fStatíórar: Gisli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — AðstoSarritstjórl:
Björgyin Guðmundsson. — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — AÖsetur: Alþýðuhúsia. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
■—10. — Áskriftargjald kr. 55.00 á máriuðl. í lausasölu kr. 3.00 emt. Útgef-
andi: Aipýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
Lóöaglíman við íhaldið
EKKERT er ofar í huga ungra hjóna, sem eru að
(byrja að búa en að eignast eigið húsnæði. Og æska
Œteykjavíkur hefur verið stórhuga. Hún hefur ekki
talið eftir sér að vinna mikið til 'þess að geta eign-
<azt þak yfir höfuðið. Dæmin eru orðin mörg um
unga menn, sem unnið hafa sjálfir baki brotnu í
<aukavinnu að því að koma sér upp húsnæði. En það
<eru mörg ljón á veginum, sem mæta þeim, er koma
Vilja sér upp húsnæði í höfuðstaðnum. Og það
ifurðulega er, að oft er það erfiðast að fá lóð til að
foyggja á. Það kostar mörg sporin á skrifstofur
fborgarstjórnar að komast yfir lóð. Og þeir eru orðn
ir nokkuð margir Reykvíkingarnir, sem gefizt
■tiafa upp í lóðaglímunni við íhaldið í Reykjavík.
*Þessir menn hafa að vísu ekki gefizt upp við að
t»yggja en þeir hafa orðið að 'hrekjast í önnur bæj-
■cirfélög vegna þess að fæðingarbær þeirra gat ekki
«éð þeim fyrir lóðum. Þannig hafa fjölmargir
fReykvkingar orðið að leita til Kópavogs og Hafn-
arfjarðar til þess að fá lóðir vegna þess að borg-
arstjórn Reykjavíkur hafði ekki komið því í verk
«að skipuleggja nægilega stór svæði undir íbúðalóð
ir. Hér er pottur brotin. Þeir, sem fæddir eru í höf
uðstaðnum og vilja búa þar eiga þá kröfu á borg-
arstjórn að hún búi þannig að þeim, að þeir þurfi
ekki nauðugir að hrekjast á brott. Og lóðimar eiga
<að vera fyrir fleiri en útvalda gæðinga Sjálfstæðis
’f lokksins. Þær eiga að verða fyrir reykvíska borg
1 <ara hvar í flokki, sem þeir standa.
Sannleikurinn er sá að lóðamálin í Reykjavík eru
a algeru öngþveiti. Það er engin leið fyrir þann er
vill byggja að fá lóð undir hús eða íbúð af þeirri
1 <stærð, er hentar fjölskyldu hans. íhaldið auglýsir
ef til vill að nú verði úthlutað nokkrum lóðum und
ir t. d. tveggja hæða hús, en að sérhver geti sótt um
■ lóð undir íbúð er hentar fjölskyldu hans, er útilok-
: <*Ö. Þess vegna verða flestir að byggja hús af allt
annarri stærð en þeim hentar og er hér að finna
' eina ástæðuna fyrir hinu óhagkvæma húsnæði í
höfuðborginni þar sem nýting er verri en í nokkru
Öðru landi Vestur-Evrópu. Það er kominn tími til
að hér verði breyting á. En slík. breyting verður
ekki nema Sjálfstæðisflokkurinn missi meirihlut
lann í næstu kosningum til borgarstjórnar.
BAZAR OG KAFFISALA
er í Landakotsskóla í dag frá kl. 2—8.
£
á
» Allir velkomnir.
12 KJORBUÐIR A 5 ARUM
í ■ ,
KRON opnaði sjálfsafgreiðslubúð 28. nóv. 1942 og var það fyrsta kjörbúðin í Evrópu.
Sú búð varð þó ekki langlíf — en 1957 var þráðurinn tekinn upp að nýju, og kjör-
búðir byggðar eða gömlum búðum breytt sem hér segir:
1. Hlíðarvegi 19, Kópavogi Marz 1957
2. Skólavörðustíg 12 Sept. 1958
3. Langholtsvegi 130 Des. 1958
4. Dunhaga 20 Júní 1959
5. Hrísateigi 19 Febr. 1960
6. Tunguvegi 19 Des. 1960
7. Nesvegi 31 Febr. 1961
8 Barmahlíð 4 Ágúst 1961
9. Álfhólsvegi 32, Kópavogi Okt. 1961
10. Borgarholtsbraut 19, Kópav. Nóv. 1961
11. Ægisgötu 10 Febr. 1962
12. Þverveg 2, Skerjafirði Marz 1962
Sími 15963
- 11245
- 32715
- 14520
- 32188
- 37360
- 15664
~ - 15750
- 19645
- 19212
- 14769
- 11246
Aðrar búðir KRON
Matvörubúð, Grettisgötu 46 Sími 14671
Matvörubúð, Bræðraborgarstíg 47 — 13507
Matvörubúð, Langholtsvegi 24 — 34165
Vefnaðarvörubúð og skóbúð, Skólavörðustíg 12 — 12725
Bókabúð, Bankastræti 2 — 15325
Raftækjabúð, Skólavörðustíg 6 — 16441
Búsáhaldabúð, Skólavörðustíg 23 — 11248
Járnvörubúð, Hverfisgötu 52 — 15345
Sendum heim samdægurs
ef pönfun berzf fyrir hádegi
Á laugardögum
ef pönfun berzt á fösfudag
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR
OG NÁGRENNIS
2 15. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ