Alþýðublaðið - 15.04.1962, Blaðsíða 3
Eru þeir
erkiaular?
ALÞYÐUBLAÐIÐ hefur átt tal
við Jón Sigurðsson, formann Sjó-
mannafélags Reykjavikur, vegna
opinberrar fullyrðingar Ragnars
Tliorsteinsson útgerðarmanns,
um Karlsefnismenn. Jóni fórust
orð á þessa leið:
„í dagblaðinu Vísi í gær, var
það haft eftir Ragnari Thorstein-
son, að það muni álit skipshafnar á
Karlsefni, að þeir væru ekkert
verkfallsbrot að fremja, þótt þeir
færu á veiðar eftir að til verkfalls
var komið á togaraflotanum.
Ég held að Ragnar þessi sé bú-
inn að gera áhöfninni nóg til bölv-
unar, þótt hann klykki ekki út
með því að auglýsa alla hásetana á
Karlsefni og fleiri á skipinu, sem
einhverja erkiaula, sem ekki hafi
JON SIGURÐSSON
vitað hvaða reglum skyldi fylgt,
ef til verkfalls skyldi koma, en um
það var ákveðið samið, þegar samn-
ignar voru síðast undirritaðir.
í 26. gr. þess samnings segir svo:
Ef til verkfalls kemur, þegar
samningur þessi er úr gildi og
samkomulag hefur ekki náðst um
nýjan samning, heimilast togur-
um þeim, er verkfallið nær til,
að ljúka veiðiferð þeirri er þeir
voru komnir í þegar verkfallið
hófst og telst þar með söluferð ef
skipið hefur veitt fyrir erlendan
markað. Ilins vegar skuldbinda
útgerðarmenn sig til að láta skip-
in koma heim og hætta að Iokinni
veiðiferðinni, ef verkfalii er ekki
lokið.
Sé ekki staðið við þá skuld-
bindingu, eru skipverjar ekki
skyldir að framkvæma neina
vinnu í þágu útgerðarinnar,
nema því einu að sigla skipinu
heim.
Það er alveg þýðingarlaust fyr-
ir útgerðarmanninn, að bera það
á borð fyrir alþjóð, að hvorki
hann eða skipshöfn Karlsefnis,
hafi ekkert vitað um þessar reglur,
sem fylgja skyldi og haldnar hafa
verið af öllum útgerðarmönnum
togara að undanteknum þessum
I
Fréttaþjónusta G J Á
ÞAÐ LITUR UT FYRIR FRAM-
BJÓÐENDAVOR í ÁR
“þO ERT VISS UM HANN
HEFÐI EKKI MÁTT V/ERA
MINNI. JÓNMINN’"
r
f.
PiQQ
FUNDUR í
DAGSBRÚN
★ DAGSBRÚN heldur félagsfund
í Iðnó í dag kl. 2. Á dagskrá fund-
arins er m. a. tillaga stjórnar fé-
lagsins um að Dagsbrún kaupi, á-
samt Sjómannafélaginu hús. Þá
verða kaupgjaldsmálin rædd og
ýmislegt fleira.
BANDARÍSKU stáliðjuverin,
sem hækkað höfðu verð á stáli,
hafa nú tilkynnt að þau hafi tekið
aftur verðhækkunina. Hefur Kenn
Vegir lokast
vesna flóða
MIKIÐ hefur flætt yfir vegi á
síðustu dögum vegna hlákunnar.
Suðurlandsvegur er víða lokaður
af völdum vatns. Hólmsá flæðir
yfir veginn á 200 metra svæði. —
Flóð er við Lækjarbotna, og lijá
Ilvolsvelli er vegurir.n iokaður.
í Varmahlíð undir Eyjafjöllum
flæðir yfir vegi og á mörgum stöð-
um í Vestur-Skaftafellssýslu. —
Krísuvíkurleið er lokuð vegna
skemmda.
Þessi mikli vatnsgangur stafar
af því að stórrigning kom ofan á
lausan snjó svo að hann bráðnaði
miklu fyrr en ella.
Enn háir snjór samgöngum víða
um land, en þó er nú fært til Ak-
ureyrar. Húsavíkurleiðin verður
opnuð stórum bílum á morgun. —
Útnesvegur er fær stórum bílum,
og fært er í Dali.
Svínadalsleið í Dalasýslu og leið
in fyrir Gilsfjörð verður rudd á
mánudag og þriðjudag. Ekkert hef
ur frétzt af samgöngum á Aust-
fjörðum, en þó má telja víst að
færð þar hafi batnað, vegna leys-
inganna.
edy forscti því unnið skjótan og
glæsilegan sigur með aðgerðum
sínum gegn stáliðjuverunum, en
verðhækkunin olli mikilli ólgu og
óánægju í Bandaríkjunum,
Skömmu eftir að verðhækkunin
hafði verið tilkynnt, fordæmdi
Kennedy liana harðlega á fundi
með blaðamönnum. Sagði hann, að
forstöðumenn stáliðjuveranna
væru gersamlega skeytingarlausir
um þjóðarhag, en hugsuðu einung-
is um cigin górða. Verðhækkunin
væri óréttlætanleg.
Samtímis fól Robert Kennedy,
dómsmálaráðlierra, dómstói cinum
í New York fylki, að rannsaka,
hvort verðhækkunin bryti ekki í
bága við löggjöf um auðhringa.
Þá tilkynnti McNamara, land-
varnaráðherra, að gerðir yrðu nýj-
ir samningar um kaup á stáli til
hernaðarþarfa og myndu þeir samn
ingar gerðir við þau fyrirtæki,
sem ekki liefðu hækkað stálverðið.
Verkalýðsleiðtogar og stjórn-
málamenn í Bandaríkjunum réðust
liarðlcga í ræðu og riti gegu for-
ustumönnum stáliðjuveranna og
sömuleiðis flest dagblaðanna.
í fyrradag tilkynntu svo ýmis
smærri stáliðjuver, að þau myndu
I ekki hækka verðið og síðan til-
! kynnti stórfyrirtækið Betlehem
1 Steel að það hefði hætt við verð'
hækkunina. Gerðu þá önnur stór-
fyrirtæki slíkt hið sama vegna
„breyttrar samkeppnisaðstöðu",
eins og þau orðuðu það.
Þykir þetta einn mesti stjórn-
málasigur sem stjórn Kennedya
hefur unnið og eru Demokratar
ofsakátir yfir úrslitum málsins.
Fellf aS fjölga
Á FUNDI bæjarstjórnar
Keflavíkur sl. fimmtudag
báru fulltrúar Alþýðuflokks-
ins fram tillögu þess efnis,
að bæjarfulltrúum í Kefla-
víkurkaupstað yrði fjölgað
úr 7 í 9.
Tillagan var felld með 4
atkvæðum íhaldsmeirihlut-
ans gegn 3 atkvæðum Al-
þýðuflokksmanna og Fram-
sóknarmannsins.
Keflavík er þvi eini stóri
kaupstaðurinn, sem enn hef
ur aðeins sjö bæjarfulltrúa.
MMMMMMMMMMMIMMUM
flo.kkurinn
REYKJAVÍK
★ HVERFISSTJÓRAR Al-
þýðuflokksins í Reykjavík
eru minntir á fundinn ann-
að kvöld, mánudag, klukkan
8,30 í Alþýðuliúsinu, niðri. —
Mjög áríðandi að mætt sé vel
og stundvíslega.
AKRANES
★ ALÞÝÐUFLOKKSFÓLK Akra-
nesi! Áríðandi fundur á sunnudag
kl. 5, í Stúkuheimilinu. Fundar-
efni: Gengið frá framboðslista tll
bæjarstjórnarkosninga. — Alþýðu-
flokksfélögin.
KEFLAVÍK
FULLTRÚARÁÐ Alþýðuflokksins
í Keflavík heldur fund mánudag-
inn 16. apríl kl. 8 síðdegis í Ung-
mennafélagshúsinu.
★ ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖGIN
I KEFLAVÍK:
Að I o k n u m fundi Full-
trúaráðsins kl. 9 síðdegis verður
sameiginlegur fundur Alþýðu-
flokksfélaganna á samá stað, og
verður þar tekin fullnaðarákvörð-
un um framboð flokksins til bæj-
arstjórnarkosninganna.
1. maí nefndin
1. maí-nefnd verkalýðsfélaganna f
Reykjavík heldur fund í dag kl.
10-30 f. h. I Alþýöuliúsinu við
Hverfisgötu.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. apríl 1962 3