Alþýðublaðið - 15.04.1962, Qupperneq 7
GLÆSILEGAR \
NÝJAR BIFREIÐAR
FORD u'mboðið
ZEPHYR 4
ZEPHYR 6
ZODIAC
Kynnum ZEPHYR 4 í dag kl. 1Ö—17 á ióð
okkar að Suðurlandsbraut 2
Kr. Kristjánsson h.f.
Hvað gerðist í Bonn?
Þ A Ð hefur verið ?agt, að mað-
ur sem einu sinni hefur verið
blaðamaður, verði alltaf blaða-
maður. Þetta er augljóslega rétt
um hinn gamla góðvin okkar á
Alþýðublaðinu, Finnboga Rút
Valdimarsson. Enda þótt langt sé
síðan hann setti líf og f jör í for-
síður blaðsins okkar, hefur hann
enn tilfinningu fyrir ævintýra-
legri frásögn. Gallinn er aðeins
sá, að honum hættir til að geta í
eyðurnar og búa til þær fréttir,
sem hann langar til að segja —
og vesalings sannleikurinn verð-
ur stundum fyrir áföllum, þegar
Finnbogi beitir sér nú á dögum.
Þannig var um ræðu þá, sem
hann flutti í útvarpsumræðun-
um, en hún fjallaði um afstöðu
íslendinga til Efnahagsbandalags
Evrópu.
Finnbogi hefur frétt af við-
burðum, sem honum finnst frétta
matur. Tveir íslenzkir ráðherrar
fóru til höfuðborgar Vestur-
Þýzkaiands. Þeir óku í fínum
bílum til viðskiptamálaráðuneyt-
is dr. Erhards í úthverfi borgar-
innar og sátu þar á leynifundum.
Þetta veit Finnbogi og svo býr
hann til það, sem honum finnst
á vanta. Hann hefur um árabil
verið í illum félagsskap komm-
anna, og framhaldið getur aðeins
verið eitt: Ráðherrarnir voru að
svíkja þjóðina, selja landið.
Alþýðublaðið vill nú bjarga
hinum gamla vini sínum úr þess-
um ógöngum og segja honum
sannleikann. Til þess verður að
rekja örlítið gang móla varðandi
efnahagssamvinnu í Evrópu, en
sú saga teygir sig allt aftur til
ára vinstri stjórnarinnar.
EBE (Efnahagsbandalag Evr-
ópu) byrjaði 1956 eins og vinsiri
stjórnin okkar. Þá urðu miklar
umræður um þessi mál á vegum
Efnahagssamvinnustofnunar Evr
ópu (OEEC) í París, en ráðherra
þeirra mála var þá þegar Gylfi
Þ. Gíslason, sem hefur haft með
þau að gera æ slðan. Gylfi fylgd
ist nákvæmlega með öllu þessu,
svo og umræðum um hugsanlega
stofnun allsherjar bandalags,
sem þá fóru fram í París. Þá sat
vinstri stjórnin að völdum og
gerðu ráðherrar hinna flokk-
anna enga athugasemd við það.
Kommar voru þannig samábyrg-
ir og hefðu orðið það, ef nýtt
bandalag hefði verið stofnað,
eins og til stóð.
Nú tókst ekki að sameina álf-
una þá, en upp risu tvö banda-
lög, sem kennd eru við tölu þátt-
tökuríkja, Sex eða Sjö. íslend-
ingar stóðu utan við bæði um
sinn, en augljóst var, að fyrr eða
síðar yrðum við að móta ákveðna
afstöðu til þeirra. Gylfi hafði
nefnd embættismanna í þessu
alla tíð, og fylgdust þeir með
öllu. athuguðu nákvæmlega af-
stöðu íslendinga og létu ríkis-
stjórnina vita, hvað var að ger-
ast.
Árið 1960 gerðust á þessu
sviði mikil tíðindi. Var augljóst,
að breytingar mundu framund-
an, og þótti nú Gylfa óstæða lil
að undirhúa menn hér heima. —
Hann myndaði þá fjölmenna
nefnd, sem í áttu sæti fulltrúar
frá öllum helztu útflutnings- og
innflutningsaðilum, svo og frá
helztu stéttasamtökum í landinu,
og voru þeir settir inn í málið.
Skömmu síðar gaf Gylfi utan-
ríkismálanefnd skýrslu um mál-
'ið, en þó frétti Finnbogi Rútur
um það — og hefur gert það að
tilefni til ótrúlegustu imyndana.
Þetta sumar ákváðu Bretar að
sækja um upptöku í EBE og
Danir fylgdu þegar í fótspor
þeirra. Þetta gerbreytti málinu
og hlutu íslendingar nú að at-
huga sinn gang vel. Gylfi kallaði
saman stóru nefndina og spurði
hana: Telja menn rétt að ríkis-
stjórnin athugi, með hvaða skil-
yrðum íslendingar gætu tengst
stækkuðu efnahagsbandalagi?
Þessu svöruðu allir játandi,
nema fulltrúi Alþýðusambands-
ins. Það var augljóst, að komm-
únistar þurftu ekki einu sinni
að kynna sér málið frá íslenzku
sjónarmiði. Þeir voru búnir að
fá línuna.
Finnbogi talaði mikið um
kommúnista í þessu sambandi.
Auðvitað geta menn verið með
eða móti þátttöku Islands í öllu
þessu án þess að vera kommún-
istar. En Finnbogi var ekki að-
eins á móti þátttöku ísiands,
hann var á móti sjálfu Efnahags-
bandalaginu. Þá afstöðu geta að-
eins kommúnistar haft, sem
hugsa málin út frá sjónarmiði
Rússa til heimsmálanna. Þess
vegna kom Finnbogi fram eins
og hreinræktaður kommúnisti í
málinu.
Nú þurfti ríkisstjórn okkar að
kanna þessi mál og fá að vita,
hvort hugsanleg væri aðild ís-
lands með þeim skilyrðum, sem
allir hafa verið sammála um liér
á landi. Þegar menn vilja kanna
þingmál hér á landi, tala þeir við
alþingismenn eða pólitísku
flokkana, sem eru aðilar á þingi
— en ekki við skrifstofu Alþing-
is. Á sama hátt var augljóst, að
stjórnin átti að tala við aðila
Sexveldanna en ekki við skrif-
stofu EBE í Briissel. Ríkin eru
þessi: Ítalía, Frakkland, Holland,
Þýzkaland, Luxemburg og Belgía.
Er augljóst, að af þessum ríkjum
hafa Þjóðverjar mest kynni af
íslandi og eru líklegastir til að
skilja aðstöðu okkar. Þess vegna
var ákveðið að tala sérstaklega
við þá sem fulltrúa sexveldanna,
til að kanna, hvers konar sam-
band ísland gæti hugsanlega haft
við EBE til að tryggja hina stór-
felldu markaði sina í Evrópu.
Þeir Gylfi Þ. Gíslason og
Gunnar Thoroddsen fóru síðast-
liðið haust til Vínar á árlegan
fund Alþjóða bankans og Gjald-
eyrissjóðsins. Var þá skrifað til
dr. Erhards, efnahagsráðherra
Þjóðverja, og beðið um fund
með honum í Vín til að ræða
málin. Vegna þýzku kosning-
anna og stjórnarmyndunar eftir
þær gat dr. Erhard ekki farið á
Vinarfundinn, en hann stakk upp
á, að íslenzku ráðherrarnir
kæmu við í Bonn á heimleiðinni
til að ræða málin.
Þeir- Gylfi, Gunnar og Jónas'
Haralz fóru nú til Bonn og ræddu
þar við Þjóðverja um hugsanlegt
sem hér heima hefur verið ræíb
um. Þjóðverjar gáfu nýjar upp-
lýsingar á móti og loíuðu að
veita frekari tæknilegar upplýs-
ingar um málið. Annað gerðist
þarna ekki, og frásagnir Finn-
boga Rúts um að íslenzka ríkis-
stjórnin hafði þarna verið að því
komin að ganga í Efnahagsbanda
lagið, eru hrein vitleyka.
Hér er um að ræða sjólfsagða
aðferð til að halda sem bezt á
hagsmunamálum- þjóðarinnar —
fá allar upplýsingar og skýra öðr
um aðilum frá afstöðu okkar.
Ríkisstjórnin hefur enn aldrei
tekið neina ákvörðun um endan-
lega afstöðu okkar til bandalaga
ins og allt tal um að hún sé at>
gana út í einhver ævintýr eri»
fásinna. Hér hefur verið haldið
á stórmáli af hinni mestu ábyrgO
og endanleg afstaða verður ek'kl
tekin, fyrr en fyrir liggur, eftir
samninga Breta, Dana og Norð-
manna við bandalagið, hvaða
kosta er völ, meðal annars ur»
fisksölumálin.
Það eru aðeins öfgamenn, sem
hafa þegar myndað sér afdrótt-
arlausa skoðun um þetta mál. 3s-
lendingar vita ekki í dag, hvaða
spil verða á hendinni í þessw
máli, og segja þvi ekkert
fyrr en þeir sjá spilin. Kommarn
ir taka ekki sjólfstæða afstöðu
—og það gerir Finnbogi Rútur
ekki heldur. Þeir segja pass fyr-
irfram — af því að Rússar vilja
það.
Hafnarf]örður
Smurt brauð — Snittur
samband íslendinga við EBE. ■—
Þeir ræddu við Erhard, en aðal
viðæðurnar voru við ráðuneytis-
stjóra hans prófessor Miiller Ar-
mack og ráðuneytisstjóra utan-
ríkisráðuneytisins Dr. Lahr. Þar
lögðu íslenzku ráðherrarnir fram
upplýsingar um afstöðu íslend-
inga, þar á meðal algera sér-
stöðu varðandi ýms þau atriði,
Heitur matur — Kaffi —
Öl.
Brauðstofan
Eeykjavíkurvegi 6
Sími 50810
ALÞÝ0UBLAOIÐ' 35. apríl 1962 ^
tJiOAJöLIUYM l.\ - : ,tt