Alþýðublaðið - 22.05.1962, Blaðsíða 1
N j ósna-
málið
Og
myndir í Opnu
úr landi. — í sömu andrá seni Gísli smeilti af, varð gæziumaður Stochlsvar við Ijósmyndarann og^ dró tjöldin fvrir grlujrgann í skynding-u.
FYRRVERANDI starfsmannl
við tékkneska sendiráðið í
Reykjavík hefur verið vísað úr
landi fyrir tilraun til njósna.
Maðurinn heitir V. Stochl — og
starfaði við sendiráðið fram á
síðastliðið haust. Eftir þeim npp
lýsingum, sem blaðinu tókst að
afla sér seint í gærkvöldi, var
í ráði að koma horium í flugvél
frá Flugfélagi íslands, sem sam
kvæmt áætlun átti að fara til
Glasgow og Kaupmannahafnar
kl. átta árdegis í dag. Tveir af
starfsmönnum útlendingaeftir-
litsins áttu þá að færa liann út á
flugvöll og fylgja lionum í flug
vélina. í gærkvöldi var hann í
stofufangelsi á herbergi sínu
nr. 404 að Hótel Borg. Hann
var þar í gæzlu Árna Sigur-
jönssonar frá útleridingaeftir-
litinu, og hafði hann um það
ströng fyririnæli frá yfirboður-
um sínum, að hindra að Tékk-
inn hefði samband við menn —
íslenzka sem tékkneska.
í fréttatilkynningu frá dóms-
málaráðuneytinu segir frá aðrag-
anda þessa njósnamáls og fram
vindu þess. Tiikynningin fer hér
á eftir, en á OPNU í blaðinu í
dag birtum við endurrit dóms-
rannsóknarinnar, sem lyktaði með
því að ákveðið var að vísa liinum
tékkneska „gesti“ tafarlaust úr
landi.
Fréttatilkynning dómsmálaráðu
neytisins hljóðar svo:
„Hinn 19. þ. m. skýrði Sigurð-
ur Ólafsson, flugmaður, Hamra-
hlíð 21 hér í bæ, frá því í utan-
ríkisráðuneytinu, að V. Stochl,
tékkneskur borgari, sem hér starf
aöi á vegum tékkneska sendiráðs
ins á árunum 1956 — 1961, en nú
kom hingað til landsins 13. þ. m.,
að því er hann scgir i viðskipta
Framh. á 15. síðu
MAÐURINN Á HER-
BERGI NR. 404