Alþýðublaðið - 22.05.1962, Blaðsíða 8
ÁR 1962,-laugardaginn 19. maí
var sakadómur Reykjavíkur sett-
ur í skrifstofu dómsins að Frí-
kirkjuvegi 11 og haldinn af Loga
Einarssyni, yfirsakadómara, með
undirrituðum vottum.
Fyrir var tekið:
Að halda rannsókn vegna ætlaðs
brots gegn 93. gr. almennra hegn
ingarlaga nr. 19. 1940.
Dómari ákvað með tilvísun til
16. gr. 1. 82. 1961, að rannsókn
máls þessa skuli fara fram fyrir
luktum dyrum.
Dómarinn leggur fram nr. 1
bréf saksóknara ríkisins dagsett í
dag, nr. 2 bréf dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins dagsett í dag
og nr. 3 frásögn, einnig dagsett í
dag.
Skjölin eru svohljóðandi:
Nr. 1.
Saksóknari ríkisins
VS/SJ.
Reykjavík, 19. maí 1962.
Jafnframt því að senda yður,
herra yfirsakadómari, bréf dóms
málaráðuneytisins, dagsett í dag,
ásamt skýrslu utanríkisráðuneyt-
isins, einnig dagsettri í dag, varð
andi skýrslu Sigurðar Ólafssonar,
flugmanns, Hamrahlíð 21, um til
mæli útlends manns um, að hann
tæki að sér njósnarstörf fyrir er-
lent ríki, er hérmeð fyrir yður
lagt að taka mál þetta til rann-
sóknar þegar í stað.
Valdimar Stefánsson.
Til yfirsakadómarans í Reykja-
vík.
Lagt fram í sakadómi Reykjavík
ur 19. maí 1962.
Logi Einarsson.
Nr. 2.
Dóms og kirkjumálaráðuneytið
Reykjavík, 19. maí 1962.
BM/AB.
Jafnframt því hér með að senda
yður, herra saksókari, meðfylgj-
andi frásögn utanríkisráðuneytis-
ins, dags. í dag, varðandi skýrslu
Sigurðar Ólafssonar flugmanns,
Hamrahlíð 21, um tilmæli útlends
manns um að hann tæki að sér
njósnarstörf fyrir erlent ríki, er
yður falið að hlutast til um að
mál þetta verði tekið til rannsókn
ar þegar í stað.
F. h. r.
Baldur Möller.
Til sakdóknara ríkisins.
Lagt fram í sakadómi Reykja-
víkur, 19. maí 1962.
Logi Einarsson.
Nr. 3.
Frásögn:
Sigurður Ólafsson flugmaður,
kom hér í ráðuneytið í dag og
greindi frá því, að árið 1954 hefði
hann keypt tékkneska flugvél.
Vél þessi hefði reynzt hin mesti
gallagripur og hefði hann átt stöð
ugar viðræðnr um kvartanir á vél-
inni við tékkneska sendiráðið hér
í Reykjavík og eins mun viðskipta
málaráðuneytið hafa tekið málið
upp við tékknesk stjórnvöld.
Nú í vetur hefði hann á ný rætt
málrð við tékkneska sendiráðið og
liefði það tjáð honum, að um miðj
an maí væri væntanlegur til ís-
lands sérfræðingur frá Motokov
í Prag, sem mundi ræða við hann
um málið.
Sérfræðingur þessi reyndist
vera Vlastimil Stochl, er var
starfsmaður í tékkneska sendiráð-
inu hér á árunum 1956 til 1961.
Stochl tók Sigurði Ólafssyni mjög
vinsamlega, enda var hann hon-
um kunnugur frá fyrri dvöl hér.
Bauð hann Sigurði að borða með
sér hádegisverð á Hótel Borg og
ræddu þeir þar um möguleika á
því að Sigurði yrði bætt tjón það,
sem hann hefði orðið fyrir vegna
galla á tékknesku flugvélinni. Á-
kveðið var, að Stochl skyldi koma
heim til Sigurðar að Hamrahlíð
21 til þess að ræða málið nánar
og kom hann þangaö um miðja
þessa viku. Stochl kom gangandi
og einn til heimilis Sigurðar og
þar gerði hann honum það tilboð,
að tékknesk yfirvöld skyldu láta
Sigurð fá nýja flugvél tékkneska
í skiptum fyrir þá gömlu gegn því,
að hann léti Tékkum í té nákvæm
SIGURÐUR Ólafsson er 47 ára gamall. Hann stuudaði flugnám
r s
í Kanada og kom heim að loknu prófi 1943. Arið 1944 var hann einn
af stofnendum Loftleiða. Hann hefur flogið fyrir bæði íslenzku flug-
félögin, en eignaðist sína eigin flugvél ‘59 og hefur undanfarin þrjú
ár stundað síldarleit Þá hefur hann fengist nokkuð við flugkennslu
og annast leiguflug. Hann er kvæntur og á tvö börn. Alþýðublaðið tók
meðfylgjandi mynd heima hjá Sigurði um ellefuleytið í gærkvöldi.
ar upplýsingar um gerðir og flug
vélategundir varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, sérstaklega ef
um breytingar væri að ræða á flug
vélagerðum þar. Átti Sigurður að
skrifa þessar upplýsingar á þunn
an pappír og mundi hann fá nán
ari fyrirmæli, hvert ætti að koma
upplýsingunum, en Stochl sýndi
honum holan blýant, sem ætlaður
væri til þess að flytja upplýsing-
ar á milli.
Stochl tók fram við Sigurð, að
þetta tilboð hans væri gert án
þess að starfsfólk tékkneska sendi
ráðsins hér vissi nokkuð um mál
ið og væri það því sendiráðinu al
gerlega óviðkomandi. Sigurður tók
sér umhugsunarfrest um málið
og ræddi um það við Svein Sæ-
21 hér í borg, fæddur 15. septem
ber 1914 í Reykjavík.
Vitninu er kunngert tilefni yf-
irheyrslunnnar, og það er brýnt
á vitnaskyldunni.
Vitnið kveðst vera í fríkirkj-
unni og segist trúa á guð. Eftír
löglegan undirbúning vann vitn
ið eið að væntanlegum framburði
sínum.
Vitnið skýrir svo frá að á árinn
1954 hafi það fest kaup á tékk-
neskri flugvél, og í desember það
ár fór það utan, til að sækja flug
vélina. Dvaldist vitnið í Kaup-
mannahöfn meðan það beið eftir
að fá vegabréfaáritun til Tékkó-
slóvakíu, en þangað hélt það svo
í janúarmánuði 1955. í lok janúar
1955 tók það við flugvélinni og i
mundsson, lögregluþjón, sem ráð
Iagði honum að hafna tilboðinu
eindregið og tilkynnti Sigurður
síðan Stochl, að hann hefði ekki
áhuga á viðskiptum á þessum
grundvelli. Ilins vegar væri hann
til viðræðu um og hefði áhuga á
að fá bætt úr tjóni sínu, m. a. með
því að skipta á flugvél gegn milli
greiðslu, eða tékkesk stjórnvöld
keyptu gömlu flugvélina og tækju
einhvern þátt í tjóni hans. Stochl
sem býr á Hótel Borg til 21. þ. m.,
bað Sigurð að hafa samband við
sig, ef hann breytti um skoðun á
þessu máli, eða skrifaði sér um
það, ef hann væri áfram til við-
ræðu á fyrrnefndum grundvelli.
Reykjavík, 19. maí 1962.
N. P. S.
Lagt fram í sakadómi Reykja-
víkur, 19. maí 1962.
Logi Einarsson.
Kl. 14,45 mættir í dóminum
sem vitni, Sigurður Ólafsson, flug
maður, til heimilis í Hamrahlíð
febrúarmánuði það ár flaug það
henni svo hingað til íslands.
Komu þegar fram gallar í vélinni
og varð vitnið að nauðlenda henni
í Skotlandi, en báðir hreyflar
hennar, en vélin er tveggja
hreyfla, stöðvuðust á flugi vegna
óhreininda í blöndungum hreyfl-
anna. Segist vitnið fyrst hafa tal
ið að hreyflarnir hafi stöðvast
vegna ísingar, er það kom hreyfl
unum á stað aftur á fluginu, en
öðrum þó ekki ncma um stund-
arkorn. Eftir að vitnið hafði kom
ið flugvélinni hingað til lands,
kom fram, að óhreinindi voru í
benzíntönkum flugvélarinnar.
Vitnið skrifaði út til fyrirtæk-
is þess „Motokov“ í Prag, sem
það hafði keypt flugvélina hjá og
kvartaði yfir göllunum. Fyrirtæk
ið skrifaði aftur, og taldi sig ekki
lengur bera ábyrgð á vélinni. Seg
ist vitnið hafa orðið fyrir óhappi
á vélinni í lendingu á Hellissandl
í marz 1955 og þá komizt að raun
PT—wwim niMirjn hm ■
8 22. maí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ