Alþýðublaðið - 03.07.1962, Blaðsíða 2
ílRI
é
Hitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentaniðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
8—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri; Ásgeir Jóhannesson.
ÉNDURSKOÐUN
LOFTFERÐASAMNINGS
EINS og skýrt var frá í Alþýðublaðinu síðast-
liðinn sunnudag, hefur ríkisstjórnin í Washington
borið fram tihnæli um endurskoðun á gildandi
loftferðasamningi milli íslands og Bandaríkjanna.
Viðræður urn málið munu hefjast í september.
næstkomandi, ivæntanlega vestra.
Loftleiðir, sem hér eiga mikilla hagsmuna að
gæta, munu að sjálfsögðu fylgjast nákvæmlega
með þessum viðræðum. En Loftleiðamenn verða
ekki einir. íslendingar allir munu gægjast yfir öxl
samningamanna, ef svo mætti að orði komast, og
fylgjast af áhuga með því sem fram fer við samn-
ingaborðið.
Því að íslendingum er það vitanlega meir en
lítið kappsmál, að ekki verði lagður steinn í götu
• flugfélaga þeirra ~ sízt af vinveittum þjóðum.
Ætla má að Bandaríkjastjórn taki á málinu af
. skilniíigi. Bandaríkjamenn eru hörðustu meðmæl
• endur „frjálsa framtaksins“, og er það ekki nema
' að vonum, svo blómlegt sem um er að litast í
þeirra kapítaliska þjóðfélagi. Það kæmi því úr
hörðustu átt — og mundi jafnvel teljast til skop-
leika — ef þeir færu nú að amast við einstaklings
framtaki fámennrar þjóðar, sem af lofsverðri at-
orku hefur komið sér upp flugflota, sem á hverju
ári skilar íslendingum dýrmætum gjaldeyris-
sjóðum.
Bandaríkjamenn hafa þráfaldlega látið í ljós þá
ósk við vinaþjóðir sínar, að þær beittu hugviti
sínu og kunnáttu og dugnaði í þá átt að ‘hlúa að
efnalegu sjálfstæði sínu.
Flugið er snar þátt í þeirri viðleitni íslendinga.
— Og má ætla að Bandaríkjamenn með sínum
stórhug og sínu stórframkvæmdaviti hafi fyrir
löngu komið auga á þá staðreynd.
Sexfugur / dag:
Eyjóifur Eyjólfsson
skósmíðameistari
EYJÓLFUR EYJÓLFSSON skó-
smíðameistari, Týsgötu 7, er sex-
tugur i dag. Hann fæddist að
Hraunsh.iáleigu í Ölfusi, sonur
hjónanna Guðrúnar Ó. Guð-
mundsdóttur og Eyjólfs Eyjólfs-
sonar, en fluttist með þeim að
Bakkárholti í sömu syeit, þar
sem þau hjónin bjuggu langan
aldur við mikinn myndarskap og
fyrirhyggju. Ættir Eyjólfs standa
um Ölfus og víðar í Árnessýslu,
allt hefur það fóllt verið myndar-
fólk að allri gerð, fyrirhyggju-
samt og dugmikið og ekki talið
eftir sér að vinna og vinna vel
sér sjálfu og öðmi til hagsældar
og umbóta.
Eyjólfur veiktist í æsku og átti
við. mikið heilsuleysi að stríða,
enda ber hann menjar þessara
veikinda, og þau gerðu það.óhjá-
kvæmilegt að liann leitaði sér
framtíðaratvinnu utan sveitar
sinnar, enda ófær til allra erfið-
isverka. Að öðru leyti fékk hann
þó fulla bót meina sinna. Hann
fór til Reykjavíkur og lærði skó-
smíði hjá Guðmundi Jónssyni, á-
gætum manni, sem margir Reyk-
víkingar kannast við, en Guð-
mundur hafði þá skósmíðavinnu-
stofu sína á Bergstaðastíg. Að
afloknu námi fór Eyjólfur til
Vestmannaeyja og stundaði skó-
NÝTI HEFTI AF
SAMVINNUNNI
BLAÐINU hefur borizt maí-
júní hefti Samvinnunnar. Er sér-
staklega vandað til þessa heftis
vegna 60 ára afmælis Sambands
íslenzkra samvinnufélaga. Rit-
stjóri Samvinnunnar er Guð-
mundur Sveinsson.
Maí-júní hefti Samvinnunnar
er rúmar áttatíu blaðsíður að
stærð og er frágangur þess aliur
mjög til fyrirmyndar. Fjölmargar
fróðlegar greinar eru í heftir.u
og einnig er þar mikið af línurit-
um. Örlygur Hálfdánarson réði
útliti og umbroti blaðsins.
HÖFUM FLUTT
skrifstofur okkar og vörugeymslui- úr Hafnarstræti 1.
að Sætúni 8 (gegnt Höfða)
Óbreytt símanúmer 2 4 0 0 0
O. JOHNSON Sr KAABER H. F.
smíði þar um fimm ára skeið. Eft
ir það kom hann aftur til Reykja-
víkur og vann með Kristjáni Guð
mundssyni um skeið í vinnustofu
hans á Týsgötu 7, en keypti síðan
Eyjólfur Eyjólfsson
af honum og hefur rekið skóvinnu
stofu sína á sama stað.
Eyjólfur er kvæntur Sigur-
björgu Guðmundsdóttur, frá
Haukadal í Dýrafirði og eiga þau
fimm börn.
Eyjólfur Eyjólfsson er ágætur
félagi, góður félagsmaður í stétt-
arfélagi sínu og áhugamikill um
málefni stéttar sinnar. Hann er
fyrirhyggjusamur og gætinn, en
framfaramaður og ljær þeim mál-
efnum óskiptan stuðning, sem
hann telur muni geta orðið til
hjálpar og hagsbóta íyrir alþýðu
landsins. Hann er víðsýnn og
bjartsýnn, en rasar þó aldrei um
ráð fram.
Það er alltaf gott að koma í
vinnustofu Eyjólfs Eyjólfssonar.
Hann er áreiðanlegur í viðskipt-
um og þægilegur viðmóts, enda
nýtur hann óskiptra vinsælda
allra hinna mörgu, sem hafa
kynnst lionum.
Hann mun því fá margar hug-
heilar hamingjuóskir á þessum
afmælisdegi sinum.
ALLT A SAMA STAÐ
Nýjar vörur fyrir skoöun
<
s
w
» Þ4
t"
>
CJ
w
H
H
„ &
I ^
5'
s
RAFKERFIÐ
STEFNULJÓS
FRAMLUKTIR
SAMLOKUR
HÁSPENNUKEFLI
STRAUMROFAR
PLATÍNUR
STARTARAR
DYNAMÓAR
VÉLAHLUTAR
STIMPLAR
STIMPILHRINGIR
LEGUR
VENTLAR o. fl.
CARTER
BLÖNDUN GAR
BENZÍNDÆLUR
TIIOMPSON
SPINDILBOLTAR
SLITBOLTAR
STÝRISENDAR
GORMAR
o. fl. o. fl.
FERODO-bremsuborðar
HJÓLADÆLUR
HÖFUÐDÆLUR
BREMSUBAKKAR
BREMSUROFAR
PAYEN
PAKNINGAR
og DÓSIR
TIMKEN-LEGUR
Það er yður og
bifreiðinni í hag
að verzla hjá Agli.
EGILL VILHJÁLMSSON H.F.
Laugavegi 118, sími 2-22-40.
Áskriftarsíminn er 14901
2 3. júlí 1962 - ALÞÝÐUBLAÖIfl