Alþýðublaðið - 03.07.1962, Blaðsíða 4
KVIKMYNDIN er clauö — lifi
hringmyndin, segir hinn bjart-
sýni Adalbert Baltes. Á efri mynd
iuni sést hann með hina nýju
myndavél, sem gerir kleyft að
taka 360 gráðu myndir. Sú upp-
finning á að öllum líkindum eftir
að valda straumhvörfum í sýning-
artækni kvikmynda.
Á neðri myndinni sést hug-
mynd teiknarans að sýningarhúsi,
sein gerir fært að sýna hring-
myndir, slíkt hús mun væntan-
lef*a rísa innan skamms í ílani-
borg. Iȇ munu menn geta noi-
ið, „hinnar fullkomnu blekking-
ar“.
albert Baltes fengið hugmynd,
um hið fullkoman liringsýningar-
kerfi, tilkomna við athugun á
hinum gljáandi kúlum jóia-
trjánna.
Kerfið byggist á því að liálf-
kúla, sem gefur spegilmynd frá
sér, 360 gráður að ummáli, gefur
hana í fullkomlega réttum litum
og ljósstyrk, þó að hún að ö#ru
leiti sé afbökuð.
Sé þessi kúlulaga spegilmynd
mynduð með myndavél sem
stendur lóðrétt bcint undir kúl-
unni, þá næst 360 gráðu mynd
á filmuna. Sé myndinni síðan
varpað lóðrétt neðanfrá á spegil-
kúlu undir lofti salar, sem er
hringlaga, þá verður myndin aft-
ur eðlileg og kemur eðlilega fram
á tjaldi allt umhverfis salinn.
Áhrif slíkrar sýningar eru stór-
kostleg, þegar þeirri tækni er
líka beitt að láta hljóð þau, sem
fylgja sýningunni koma jafnt úr
öllum áttum. Lífið sjálf er flutt
inn í sýningarsalinn.
Sé bíll á hraðri ferð yfir tjald-
ið finnst áhorfendanum hann ó-
hjákvæmilega vera staddur í hon-
um, og landslagið líður hjá og
hverfur að baki hans, ef hann
snýr sér við í sætinu.
Komi Ijón stökkvandi að honum,
að því er honum virðist, þá gctur
hann mcð því að snúa sér eld-
snöggt við fylgst með því er ljón-
ið kemur niður að baki honum.
Með þessari sýningartækni er
hinni fullkomnu blekkingu náð.
Allt frá hernskudögum kvik-
myndanna, áður en menn fundu
upp á því að láta tal og tóna
fylgja myndræmunni reyndu þeir
að stækka myndina sem mcst.
Allar tegundir breiðtjaldasýning-
artækni, sem við þekkjum í dag
eru aðcins afbrigði af tækni sem
var fundin upp fyrir fimmtíu
árum.
Tveir þýzkir vísindamcnn,
Ernst Abbe og Dr. Rudolf fundu
upp hina svokölluðu hypergonar-
linsu um sama lcyti og fyrsta
kvikmyndahúsið var opnaö í Ber-
lín.
Árið 1937 kom Frakkinn Chré-
tin fram á heimssýningunni f
París með Jbrciðtjald, sem vakti
óhemju athygli. Myndirnar voru
sýndar á tíu metra háu og sextíu
metra breiðu tjaldi og tvær vélar
beindu myndinni þannig á tjaldið
að úr varð ein risamynd.
Fyrst sextán árum síðar tóku
amerískir kvikmyndajöfrar upp
þessa tækni og breiðtjaldsmyndin
hóf göngu sína um heiminn.
Um hina nýjustu tækni við
sýningar er hið sama að segja og
breiðtjaldstæknina, að hún er
ekki ný af nálinni með öllu Á
heimssýningunni í París árið 1900
kom fram svokallað cinecosmor-
ama. Tólf kastarar beindu mynd-
inni á tjald, sem náði allt um-
hverfis salinn. þetta vakti gífur-
lega athygli og náði nokkurri út-
breiðslu áður en slökkviliðið
komst í spilið og bannaði sýning-
ar með þessari aðferð.
Walt. Disney'sýndi á heimssýn-
ingunni í Brussel árið 1958 kvik-
myndir með svipaðri tækni.
Tveim árum fyrir heimss.vn-
inguna hafði þýzkur maður, Ad-
4 8. júlí 1962 - ALÞVÐUBLftÐiÐ