Alþýðublaðið - 09.08.1962, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 09.08.1962, Blaðsíða 9
-x Útsala Útsala Útsala hefst í dag. Kjólar — Pils — Blússur — Peysur. AIls konar sportbuxur — Hattar o. fl. Hjá BÁRU Austurstræti 14. ByggingasamvirmuféKag Eögreglu- manna í Reykjavík. hefur til sölu 3ja lierbergja kjallaraíbúð við Skaftahlíð. Félagsmenn sem vilja njóta forkaupsréttar, tali við stjórn ina fyrir 20. þ. m. Stjórnin. Hafnarfjörður og nágrenni HEILSÁRSKÁPUR — TERELVXEKÁPUR — DRAGTIR — STÖK PILS. Einnig úrval af alls konar kvenundirfatnaði og smá- barnafatnaði. Leitið ekki langt yfir skammt. ánægju- írir börn . Tryggva snnari á sjón með þeim og ir þeirra. sumar 8 i og um- lið bezta slegt frá imartím- tekið á i á Jaðri i hverju )tum við ir í tvð i dvalizt naði hér kefni fyr leilbrigða efur ótal kki síður, ekki um hægt er inum og imkvæmd i því leyt :ki dýpra etta er á að voða, leð þeim. nð upp /atnið, — gerð kom ögunnar, rn flot- S þessari ?að varð r smíðað mar far- :i reynst sssi fleki Jaðri. Enda er það svo að hann kemur sjaldan í höfn, ,,hafið“ heillar, — bæði stúlkur og drengi. Hraunið í kringum sjálft húsið að Jaðri er einkar skemmtilegt, — þar er Para dís þeirra sem vilja fara í feluieik eða einhvern slikan. Það er ekki amalegt að geta horft á leitarmennina án þess að sjást ssjálfur, ég íala nú ekki um ef einhver kennar- anna er ’ann. Svo uppi í Borgunum er risin af grunni borg mikil, — og svo nýtízkuleg er þessi nær óþekkta borg, að þegar er þar komið flókið stjórnmála- kerfi og skriffinnska í sandinn mikil. Þar ræður ríkjum borgar- stjóri — ekki samt Geir Hall grímsson — og borgarráð, og hefur það framkvæmdavald, dómsvald, og löggjafarvald á hendi, og hefur því vel tek izt, þótt ekki séu að vísu götur breiðar né reisn mikil: ham- ingja íbúanna er fyrir öllu, og þarna í borgunum er hún vissulega mikill heimagangur. — Er ekki mikill vandi að halda aga á öllum þessum frísku börnum á jafn stóru svæði sem þessu? — Jú, það má segja það, en við höfum þann háttinn á að við látum börnin annast hvort annað að dálitlu leyti sjálf, embætti hafa mörg skapazt og sum hin virðulegustu. Þessum embættismönnum er ætlað stórt hlutverk: að ráða lögum og reglu á staðnum, t.d. eru vissir skipaðir í embætti íleka varðar, — geysilega viröulegt embætti — aðrir eru í borgar- ráði, enn aðrir herbergjastjór ar, dyraverðir og þar íram eft ir götunum. Okkur hefur gef izt þessi háttur ágætlega, börnin eru hlýðin félögum sin um, og þroskast mjög við þær þjóðfélagsvenjur sem bíða þeirra á komandi árum. — Hverr.ig líður dagurinn hjá börnunum aila jafnan, er hann ekki skipulagður? — Við höfum alltaf skipu- lag á hverjum degi vissa tíma fyrir viss verkefni, — annars færi margt i handaskolum hjá okkur, börnin yrðu líka óstillt ari og óviðráðanlegri. Elztu krakkarnir dútla við blóm og garðrækt hluta af deginum, en hin sem minni eru og lítt vinnuhæf leika sér á einum af þessum þrem stöð um sem eru svo vinsælir sem raun hefur borið vitni. Við höfum sæmilegan fót- boltavöll, lítinn að vísu, en við hæfi þeirra litlu, — og þar eíu haldnir kappleikir miklir og æft af kappi. Ég hef haft umsjón sérstak lega með knattspyrnunni hjá drengjunum og skipt þeim i tvö lið: Jaðarsliðið, sem hefur sérstaka búninga og svo pressu sérstaka búninga og svo pressuliðið. — Þessir leikir eru oft einkar skemmti legir og hefur stundum komið hiti í leikinn, menn íekið upp einleik með boltann eins og algengt er þegar samvinnan virðist ekki duga vel til sig- urs. — Hafið þið ekki orðið að sjá sjálfir um hirðingu her- bergjanna hjá svo ungu fólki sem þessu, er það fært íil að hirða sjálft um sig? — Jú, það hefur verið okk ar reynsla, þau geta sjálf tek ið til í herbergjum sínum, þvegið þar og bónað, að vísu undir leiðsögu kennaraVið höf um í þessu sambandi komið á samkeppni meðal barnanna hver hafi bezta herbergið. Við hádegisverðinn er svo tilkynnt um hvaða herbergi hefur orðið hlutskarpast: einkunnir gefnar fyrir fráganginn, og þær eink unnir hafa oftast verið ágætar, mjög góðar. Strákarnir virtust alveg eins geta verið hreinlegir eins og telpurnar, t.d. var eitt þrifa- legasta herbergi allan tímann setið af piltum, það hét Ing- ólfshöfði. Þar dvöldust sömu piltarnir í allt sumar og voru alltaf jafn þrifalegir og indæl- ir. Herbergin hétu öll vissum nöfnum sem þeim voru gefin af íbúunum, þar kenndi margra grasa: Sólheimar, Jað ar, Gullfoss og Geysir og ýmis staðarnöfn önnur. Til staðfestingar á því að börnin fá ágætis fæði bauð Stefán okkur kaffi, og að því loknu skoðuðum við umhverf ið, — og hver veit nema að þið fáið eitthvað að heyra þaðan frá á næstunni, Stefán sýndi okkur dálítinn blett sem er vel umtals verður. Svo kveðjum við Stefán og þökkum honum fyrir gestrisn ina og höldum af stað frá fólki, sem svo dyggilega gætir æskunnar sem þeir hafa undir höndum og falin er til varð- veizlu. — Brandur. ★ Verzlun SIGRÚN Strandgötu 31 — Sími 50038. Svona, svona, ungfrú góð. Ekki svona mikið í einu! Sjáðu bara hvernig mamma fer að: Lítið á einu sinni oft- ar. En þú hefur rétt fyrir þér - maður byrjar aldrei of snemma á réttri húð- snyrtingu. Mamma þín hefir líka frá æsku haft þessa reglu: Nivea daglega. Goít er að til er NIVEA! Nivea inniheldur Euce- rit — efni skylt húðfit- unni — frá því stafa hin góðu áhrif þess. ALÞVÐUBLAÐIÐ - 1962 9. ágúst 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.