Alþýðublaðið - 09.08.1962, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 09.08.1962, Blaðsíða 16
I 43. árg. — Fimmtudagur 9. ágúst 1982 - 179. tbl. urlands- or við Kaldá UM SÍÐUSTU hélgi varS aðeins eitt slys á vegunum. Varö það skammt írá Laug- >: arvatui, en þar fór bifreið út af. Mýndin sýnir hvernig bifreiðin fór. Fólkið slapp nær ómeitt en bifreiðin h skcmmdist talsvert. NORÐURLANDSBORINN svo- kallaði hefur nú verið fluttur að Kaldá fyrir ofan Hafnarfjörð og er verið að reyna hann þar, áður en hann verður sendur norður til Ólafsfjarðar síðar í þessum mán- uði. Gunnar Böðvarsson, hjá Raf- orkumálaskrifstofunni, skýrði blað inu svo frá í gær að ekki hefðu neinir gallar komið í Ijós á born um. Borinn stendur skammt það MMMHMMMMIMMMMMMW BINDINDISMÓTIÐ í HRÚTAFIRÐI SINS og áður liefur verið skýrt frá efndu bindindismenn til móts að Keykjum í- Hrútafirði um verzl- unarmannahelgina. Mót þetta sóttu «ro 500 manns, viða af landinu, og var ungt fólk i meiri hluta. Á laugardags og sunnudags- kvöld voru kvöldvökur og á eftir dansað. Eftir hádegi á sunnudag var farin hópferð um Vatnsnes og var þá m. a. komið í Borgarvirki. Á sunnudagsmorgun var guðsþjón usta. Séra Gísli Kolbeins.. á Mel- Stað prédikaði. Á mánudagsmorgun var fundur f stórstúkunni og flutti Eiríkur Sig urðsson þar erindi um reglumál. Mótinu var slitið um hádegi á mánudag. Taugaveikibróðir rakinn til andabús Búið lagt niður og fuglunum eytt Prófritgerð um Island -BANDARÍSKUR major, sem er giftur íslenzkri konu, hefur lokið prófi við Flugháskólann í heima- Jandi sínu og ritað prófritgerð um „Iceland — its Geopolitics and Issues 1950—62”. Majorinn heitir ttobert D. Fraser og starfar nú í aðalstöðvum NATO í Suður-Evr- ópu í Neapel á Ítalíu. Samkvæmt tfréttatilkynningu þaðan er eigin- fkona majorsins Kristjánsdóttir, en ekki er þess getið hvort hann hef- ur dvalizt hér á landi. TEKIZT hefur að rækta í ný- klöktum andarungum samkonar sýkil og þann sem valdið hefur taugaveikibróðurnum svokallaða sem herjað hefur hér undanfarn- ar vikur. Sýkilinn tókst að rækta í and- arungum frá andabúi í Minni- Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd. Þetta andabú verður nú lagt nið- ur og öllum fuglum þar eytt. Eins og segir í eftirfarandi tilkynningu frá borgarlækni hafa víðtækar rannsóknir ekki leitt í Ijós að sýk ingarhætta stafi af hænueggjum. j Því var haldið fram . fyrir skömmu af Matthíasi Einarssyni, Teigi, Mosfellssveit í þætti Hann esar á liorninu, hér í blaðinu, að áreiðanlega mætti fremur rekja orsakir þessa faraldurs til andar- eggja fremur en hænueggja. Það hefur nú sýnt sig að vera satt. Blaðinu barst eftirfarandi frétta tilkynning frá borgarlækni í gær- dag: Eins og frá hefur verið skýrt, uppruna faraldurs þess, sem geng ið hefur hér að undanförnu og al hefur sleitulaust veríð leitað að mennt er kallaður taugaveikibróð ir. Við rannsókn á sýnishornum, sem Tilrauastöðin að Keldum og Rannsóknarstofa Háskólans hafa unnið að í sameiningu, hefur rækt ast frá nýklöktum andarungum úr andabúi í Minni-Vatnsleysu, Vatns I leysuströnd, sams konar sýkill, Salmonella typhi murium, og sá, er valdið hefur faraldrinum. Má með nokkurn veginn öruggri vissu fullyrða, að hér sé fengin skýring á uppruna veikinnar, að því ér varðar flest sjúkdómstilfell in, en smitunarleiðir eru þó ekki full kannaðar enn. Fuglum í andabúi því, er hér í hlut á, verður öllum eytt, og anda búið lagt niður. Er þar með tekið fyrir þessa uppsprettu veikinnar. Mjög víðtækar rannsóknir hafa verið gerðar á hænsnabúum og hænueggjum, en þær hafa ekki leitt í ljós, að sýkingarhætta stafi af þeim. K'ánari tilkynning um gang máls ins verður birt síðar. Kvikmyndun 79 af an sem neyzluvatn Hafnfirðinga er tekið. Ekki er þó ætlunin að bora þarna djúpa holu. Heldur verður aðeins borað 40—50 metra niður og hitinn mældur, en aðal tilgangurinn var eins og áður er sagt að reyna borinn áður en hann verður sendur norður til Ólafsfjarð ar 15. til 20. þ. m. Ástæðan til þess, að þessi stað ur var valinn til að reyna borinn, kvað Gunnar vera, að þetta væri nálægt Reykjavík, og auk þess hefði þótt fróðlegt að fá nokkrar upplýsingar um jarðhita þarna. Borinn á að geta borað allt að 250 metra djúpar holur, en ekki kvað Gunnar sennilegt að svo djúpt yrði borað með honum. Borinn er sænskur og töluverf: afkastaminni en borinn, sem ríki og borg eiga í sameiningu, enda allmiklu minni. Borinn, sem ríki og borg eiga í sameiningu er nú við Fúlutjörn. Bora á allmargar holur hér i bæjarlandinu, en næsta vor verð ur borinn fluttur að Reykjum i Mosfellssveit. Isleifur Arnason 10. SfÐAN ER IÞROTTASÍÐAN KVIKMYNDUN sögunnar 79 af stöðinni lauk í fyrradag og héldu Balling leikstjóri og aðstoðarmenn hans frá Nordisk Film heim í gær- morgun eftir aö liafa tekið um 12 kílómetra af filmu. Liggur nú næst fyrir að klippa filmuna og verður hún um 2600 metrar að lengd, þeg ■ ar því veröur lokið. Fagnað var þeim áfanga, sem r.ú er lokið í framleiðslu myndarinn- ar, í Glaumbæ í fyrrakvöld. Þakk- aði Guðlaugur Rósinkranz, pjóð- leikhússtjóri og formaður Edda- film, sem framleiðir myndina, Bal- ling og félögum hans fyrir ágæt störf. Balling mælti örfá orð og kvað enga ástæðu til að vera að þakka sérsíaklega, þeir og leik- ararnir hefðu gert sitt bezta og þannig ætti það að vera. í viðtali við fréttamann Alþýðu- blaðsins kvaðst Balling hrifinn af því hve gott hefði verið að vinna með íslenzku leikurunum. Lauk hann miklu lofsorði á leikarana, þeir væru af hinni nýju „tradisjón” í listinni og sérlega' vel „afslapp- aðir“, svo að það væri þeim eins og eðlilegt að leika frammi fyrir myndatökuvél, þó að það væri í fyrsta sinn. Búizt er við, að klippingu mynd- arinnar verði lokið og hún tilbúin til sýningar í október. Má búast við frumsýningu á henni skömmu síðar. Frumsýningin verður í Reykjavík og verður sennilega í tveim kvikmyndahúsum, Háskóla- bíói og Austurbæjarbíói. ÍSLEIFUR Arnason fyrrverandi prófessor er látinn. Hann anda,- ist síðdegis í fyrradag á heilsu- verndarstöðinni. Hann var 62 ára gamall. Þessa ágæta manns verðup minnst hér í blaðinu síðar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.