Alþýðublaðið - 29.09.1962, Síða 1
Hassan, prins heldur til Jemen:
STYRJOLD
ADEN og LONDON',
28. september.
HASSAN PRINS, sem kveðst
hafa erft konungrdóm í Jemen
eftir fráfall Imam Muhammed,
sem féll í árás á höll hans í cær,
kom við í London í dag frá New
York á leið sinni til Jemen, þar
sem hann hyggst taka við vöidum
þrátt fyrir aðvaranir uppreisnar-
manna.
Seint í kvöid kom prinsinn til
Khartoum, höfuðborgar Súdan.
Skipuð hefur verið ríkisstjórn
18 manna og 5 manna ráðherra-
nefnd eða byltingarráð í hinu nýja
lýðveldi. Árnaðaróskir streyma til
stjórnarinnar, en Bretar og Vest-
ur-Þjóðverjar munu styðja Hass-
an prins.
Samkvæmt fregnum í kvöld
streyma stríðsmenn ættarhöfðingja
til höfuðborgarinnar.
Hinn nýi forsætisráðherra Je-
men, sem jafnframt er yfirhers-
höfðingi er Abdullah Salaal of-|
ursti. Sýnt þykir, að hann hafi
skipulagt og stjórnað byltingunni
í landinu. Hann er lítt þekktur
en var fyrir vikn skipaður yfirmað
ur lífvarðar konungs^
Lítið annað er vitað um ofurst-
ann en það, að hann var þjálfaður
í írak, sat um sjö ára skeið í
fangelsi vegna hlutdeildar í ann-
arri byltingu og var grunaður um
að hafa verið viðriðinn misheppn-
að banatilræði, sem hinum látna
Imam Ahmed I. var sýnt í hafn-
arbænum Hodeida í fyrra. |
Allir ráðherrarnir í hinni nýju1
stjórn lýðveldisins Jemen eru
borgarar nema forsætisráðherr-.
ann, landvarnaráðherrann og inn- j
anríkisráðherrann.
Hlutverk hinnar fimm manna
ráðherranefndar eða byltingar-
ráðs virðist eiga að vera það, að
sjá til þess, að mannréttindi
verði í heiðri höfð, að koma í veg
fyrir valdabrölt og að snúið verði
til — lýðræðislegra stjórnarhátta.
Framhald á 4. síðu.
Blaðið hefur hlerað
„AÐEINS, ef við hefðum
þrjá daga til viðbótar,“ sagði
frú Anna Borg Reumert í við-
tali við fréttamenn’ í gærdag.
Eins og flestum mun kunnugt,
eru þau hjónin hingáð komin í
boði Norræna félagsins, — og
munu þau lesa upp á fjörutíu
ára afmæli félagsins í kvöld.
Þau hjónin eiga son, sem bú-
settur er í Ilafnarfirði, og Paul
Reumert sagði, að hánn þættist
hafa jafnað sakirnar við ísland.
Hann hefði að visu rænt ís-
lenzkri konu, en hann hefði gef-
ið íslandi son í staðinn.
— Finnst yður ekki, frú
Anna, að Danmörk sé orðin
yðar annað fósturland?
— Jú.
— Hafið þér aldrei haft heim-
þrá til íslands?
— Jú, fyrstu árin, þegar ég
var mjög ung og þekkti engan í
Danmörku. Eg botnaði ekkert í
þessum Dönum. En ég gerði -
mér ljóst, að ég yrði að laga
mig eftir þeim, en þeir ekki
eftir mér, og að ég yrði að læra .
lýtalausa dönsku.
— Og var það ekki erfitt.
— Jú, það var erfitt. Eg man
alltaf eftir því, að ég æfði mig
heilan dag á því að segja ej á
réttan hátt. íslendingar halda,
Framh. á 11. stðu
AÐ upplag Fálkans hafi tvö-
faldast frá síðustu áramót-
um og sé enn í aukningu.
T ogveið-
ar fiieð
jb yrlu
FJÓRIR hugvitsmenn í Yorks-
shire í Englendi hafa gert teikn
ingu af þyrilvængju, sem þeir
ætla að megi nota til togveiöa.
Stærð þyrlunnar er 400 rúmlest
ir og á hún að geta flogið 3
m. ofan við sjávarmál. Áætlað-
ur hraði að og frá fiskimiðum
er 100 mílur á klst. og fiugþol
ið um 3500 mílur. Smíðakostn-
aður muni verða um 120 mill-
jónir króna.
Fréttir frá SÍS.
BLAÐIÐ hefur fregnað, að nú,
hafi verið ráðnir þrír nýir fram-
kvæmdastjórar hjá Sölumiðstöö
hraðfrystihúsanna. Mennnnir eru
Björn Ilalldórsson, Eyjólfur ísfeíd
Eyjólfsson og Einar G. Kvaran
Skipta þeir þannig með sér verk-
um, að Björn annast sölumál, Eyj
ólfur fjármál og Einar framleiðslu
mál.
Eins og skýrt var frá í blaöinu
fyrir nokkru, hefur siaðið yfir mik
il endurskipulagning í starfsejni.
samtakanna, en hafizt var handa
ettir aoaitunauui a sí. vori þai* |
, sem Jón Gunnarsson sagði af sér i
störfum hjá S.H. Var ehdurskipu- I
lagningin liafin með tilliti til nauð
synjar á frekari v.erkaskiptingu, og ,
.þarfa vegna hinnar öru stækkun-'!
ar samtakanna og brevttra að- 1
stæðna í markaðslöndúnum, sem
krafðist meira starfsliðs.
Blaðið hafði spurnir af miklum
stjórnarfundum, sem haldnir hafa
verið nær daglega og mun fornt-
Iega hafa verið ákveðið um ráðn- j
ingu nýju framkvæmdastjóranna á
fundi í fyrradag. Var ákveðið aö
þeir skiptu með sér verkum, þann
ig að einn annaðist sölumál, annar
j ijaiíiítu v>0 iiuuak'tujjiuiúui.
Eftir því sem blaðið hefur kom-
izt næst verður verkaskiptingin
þannig: Björn Halldórsson mun
taka að sér sölumálin. Hann var
áður framkvæmdastjóri fram-
Iciðsluntála hjá samtökunum. Eyj-
ólfur ísfeld Eyjólfsson verður
framkvæmdastjóri fjármála, en
hann hefur um árabil verið endur-
skoðandi S.H. Þá verður Einar G.
Kvaran framkvæmdastjóri fram-
Iciðslumála, en hann hefur vcrið
skrifstofustjóri hjá S.H.
Þetta munu vera aðal-skipulags
breytingarnar en ákvaröauir hafa
verið teknar um ýmsar aðrar breyt
ingar. Má segja að með ráðningu
þessara þriggja manna hafi stjórn
samtakanna komið í veg fyrir þá
möguleika að einvaldsfyrirkomu-
lag það sem áður var, geti kom-
izt á.