Alþýðublaðið - 29.09.1962, Side 7
r:
Betri íþróttaa&stöðu
vantar í Ólafsvík
AÐSTAÐA til íþróttaiðkana er
eitt af því, sem asskuna í Ólafsvík.
vanhagar mest um, sagði Bjarni
Andrésson skólastjóri í viðtali við
Alþýðublaðið í gær. Börnin og
unglingarnir eru mjög gó.ður efni-
viður, og þau hafa sýnt mikinn
áhuga á íþróttum, enda þótt þau
hafi mátt skapa sér sjálf þá litlu
aðstöðu, sem þau hafa til dæmis
til knattspyrnu á sumrin, hélt
Bjarni áfram.
Bjarni kvað nú vera í barna-
og unglingadeildum skólans í Ól-
afsvík um 160 nemendur. Kvað
hann mikilsvert, ef unnt yrði að
koma upp einhvers konar tóm-
stundastarfi, og kvaðst hann hafa
áhuga á að skólinn reyndi að
verða að liði á því sviði, þótt hús-
næði hans sníði þröngan stakk í
þeim efnum. Tvær sjoppur hafa
nýlega verið settar upp í Ólafs-
vík og kvað Bjarni nauðsynlegt
að setja reglur um afgreiðslu
barna á kvöldin.
Bjarni kvað það mjög veiga-
mikið fyrir æskulýð landsins, að
honum verði kennt að nota frí-
sturídir betur en hann gerir. Börn-
in kunni ekki með að fara þau
fjárráð, sem þau hafa nú á dög-
um, og fá raunar mjsiafnt for-
dæmi hjá fuliorðnum í þeim efn-
ÞESSI litla stúlka heitir
Guðrún Bára Gunnarsdóttir
og er níu ára gömul. Hún var
söluhæst í sölukeppni Sjálfs-
bjargar, sem hafði merkja-
og blaffsölu síðastl. sunnu-
dag. Guðrún Bára seldi
hvorki meira né minna en 70
blöð og 48 merki. Andvirði
þess var 1550 krónur, og sá,
sem komst næst henni í söl-
unni seldi fyrir á áttunda
hundrað. í verðlaun fyrir
þessa ágætu frammistöðu
fékk hún 500 króna verðlaun
og þar fyrir utan 150 krón-
ur í sölulaun.
Guðrún Bára ætlar nú að'
fara að selja happdrættis-
miða Sjálfsbjargar og kveðst
hún vona, að fólkið taki eins
vel á móti sér þá, eins og
það gerði í vonda veðrinu
sl. sunnudag. Á myndinni
heldur hún á eintaki af blað-
inu Sjálfsbjörg.
FIMIWTUDAGINN 27. septem-
ber kl. 14 var útrunninn frestur'
til aff skila listum um kjör full-1
trúa Landssambands vörubifreiða-
stjóra á 28. þing Alþýðusambands
íslands. Aðeins einn listi var lagff-
ur fram, listi stjómar og trún-
aðarmannaráðs og er hann því
sjálfkjörinn. Samkvæmt því eru
eftirtaldir menn aðal- og varafull-
trúar L. V. á næsta þing ASÍ:
Aðalfulltrúar:
Einar Ögmundsson, Rvík.
Pétur Guðfinnsson, Rvík.
JON ÞORLAKSSON
LANDAR
60 TONNUM
BV. JÓN ÞORLÁKSSON kom
til Reykjavíkur í gærmorgun með
um 60 tonn af fiski. Aflinn var
mestmegnis ýsa af heimamiðum.
■ Asgrímur Gíslason, Rvík.
Magnús Þ. Helgason, Keflavík.
Haraldur Bogason, Akureyri.
Sig. Ingvarsson, Eýrarbakka.
Kristinn B. Gíslason, Stkh.
Hrafn Sveinbjarnarson, Hall-
ormsstað.
Ólafur B. Þórarinsson, Patr.f.
Varafulltrúar :
Sveinbjörn Guðlaugsson, Rv.
Stefán Hannesson, Rvík.
Guðm. Jósefsson, Rvík.
Þorst. Kristinsson, Höfnum.
Guðm. Snorrason, Akureyri.
Þorst. Runólfsson, Hellu.
Arnb. Stefánsson, Borgarnesi.
Jón Jóhannsson, Sauðárkróki.
Sig. Lárusson, Dalasýslu.
SÍÐASTLIÐINN miðvikudag
fór fram kjör fulltrúa á Alþýðu-
sambandsþing í Bakarasveinafé-
lagi íslands. Aðeins eitt framboð
kom fram og varð því sjálfkjörið.
Kjörnir voru: Guðmundur Hers-
ir og til vara Herbert Sigurjóns-
son.
um. En tómstundastarfið gerii.t
ekki af sjálfu sér og krefst mik-
illar vinnu, alúðar og nokkurrar
aðstöðu.
Hin nýkjörna hreppsnefnd í Ól-
afsvík hefur oft haft samráð viði
Þorstein Einarsson íþróttafulltrúa
um íþróttamálin, og er talið rétti
að vinna að vallarmálum í þrem
áföngum. Hefur verið veitt fé ,til
hins fyrsta, en það er leikvöliur
við skólann.
Næsta framkvæmd við barna-
skólann í Ólafsvík, sem Bjairni
taldi mjög aðkallandi, er bygging
íþróttahúss, en það er ekkert til í
bænum. Hefur íþróttafulltrúi
mælt með þeirri skipan, að relst
verði sundlaug og leikfimihús í
einni byggingu, þannig, að góif
fimleikasalur yrði sett yfir la|tg“
ina. Eru líkindi til verulegs spárn
aðar með því móti, ef miðað er
við að reisa laug og fimleikáhús
hvort í sínu lagi. Hingað til hafa
börn í Ólafsvík verið flutt á vörn
bíl undir Enni til sundnáms á
Sandi, en slíkir flutningar geta
verið varhugaveríðir og er þvl
knýjandi nauðsyn að fá lau^: i
Ólafsvík. . -
MMMWMMMUMMMHHMM
SLYS
ÍESJU
ÞAÐ slys vildi til í gærdag um
fjögurleytiff, að stúlka slasaðist
allalvarlega á hendi í Kexverk-
smiðjunni Esju. Nánari tildrög
slyssins voru þau, að stúlkan var
að laga deig • á færibandi fyrir
neðan svokallaðan „stans“, sem
þrýstist niður og mótar kexið og
munstrar þaff. Deigiff hafði lagzt
í fellingar og meffan stúlkan var
að laga þaff, var „stansinn" sett-
ur af staff og lenti á vinstri hönd
hennar.
Blaðinu er ekki kunnugt um
hversu alvarleg meiffsl hennar
voru, en hún var flutt á Slysa-
varffstofuna, þar sem blöðumun
eru ekki gefnar upplýsingar um
líðan eða meiðsl á fólki. '
Bragi Ás-
geirsson
sýnir í
Snorrasal
BRAGI Ásgeirsson, lisunál-
ari, opnar listaverkasýningu í
Snorrasal að Laugavegi 18 kl.
14 í dag. Sýningin verður opin
frá kl. 14-22 næstu tíu daga
effa svo. Samtímis sýningunni
verffa ýmis konar myndir eftir
Braga sýndar á Mokkakaffi við
Skólavörffustíg.
Bragi nefnir sýningu sína í
Snorrasal, Brot úr Grafik í 10
ár. Á sýningunni eru tréristur,
sáldþrykk, litografíur, Rader-
ingar, agvatint og teikningar.
Verkin á sýningunni eru yf-
ir fimmtíu aff tölu, og eru þau
öll til sölu.
Bragi hefur tekið þátt í mörg-
um sýningum bæöi innanlands
og utan. Um þessar mundir eru
sex verk eftir hann á sýningu
i Þýzkalandi. Sýning þessi var
síffast í Kiel en verffur sýnd
víffar í Þýzkalandi.
Allar sex myndir Braga á
þessari sýningu eru seldar og
keypti þær einn og sami maff-
urinn.
Sýningin í Snorrasal verður’
eins og áður er sagt opnuff kl.
14 á morgun.
Á myndinni sést listamaður-
inn hjá nokkrum verka sinna.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29- sept. 1962 J