Alþýðublaðið - 29.09.1962, Síða 11
Kom til oð
syngja Grieg
NORSKÍ söngvarinn Olav Erik-1 Ijósmyndari Alþýðublaðsins hittu
sen syngur á afmælishátíð norræna I herra Eriksen snöggvast að máli
félagsins í kvöld. Blaðamaður og í gærkvöldi. Hann sagði, að hann
hefði lengi dreymt um að koma til
Olav Eriksen
Islands, en þótt hann hefði ferð-
azt um Evrópu þvera og endilanga
hefði hann aldrei haft tækifæri til
að koma til íslands fyrr en nú.
Hann hefur sungið í ýmsum söng
höllum hér og þar um álfuna.
Fram undan er strangt prógramm
segir hann, en fyrir viku var
hringt til hans og hann beðinn að
koma hingað. Hann hélt fyrst, að
hann myndi ekki koma því við,
en sá svo, að hann gat komið og
dvalið hér þrjá daga.
Hann syngur lög eftir Grieg á
afmælishátíðinni í kvöld og á
morgun mun verða upptaka á söng
hans hjá Ríkisútvarpinu. Árni
Kristjánsson leikur undir.
Hr. Eriksen sagðist vonast til
að geta farið til Þingvalla á morg-
| un og séð sig svolítið um, áður
en hann- fer aftur til Noregs á
mánudaginn. Og það er aldrei að
vita, hvenær aftur gefst tækifæri
til að koma til íslands.
//
Framh. af 1. sfðn
a» danska sé lint mál, en ís-
lenzkan hörð. Það er þveröfugt.
— Og nú hafa margir sagt
við mig, segir Panl Reumert,
að konan mín tali fegurri
dönsku en nokkur Öani. Það er
eitthvað í röddinni, eitthvað í
talsmáta hennar, sem gefur
máli hennar sérstæða fegurð,
sem þó er að fullu dönsk.
— Eigiff þið barnabörn á Ts-
landi?
— Já, við eigum sonardóttur
sem heitir Áslaug. Hún talar
dönsku og segir farfar en ekki
afi! Hún kom fram í sjónvarpi
á 50 ára Ieikafmæli Pauls.
— Og stal senunni frá mér,
segir Paul Reumert og hlær
Þetta var ákaflega hátíðlegt,
sendiráðherra Svía var að halda
alvarlega ræðu, þá kom Áslaug
inn og togaði í buxnaskálmina
mína. Seinna kom hún aftur
hlaupandi inn á sviðið og beint
að vélunum. Það var sannar-
lega vel heppnað atriði.
— Hún kom að sækja mig í
óperuna, segir frú Anna, þegar
ég var að æfa Rigoletto. Hún
hljóp fram á sviðið, og þegar
hún var tekin burt þaðan, —
hrópaði hún : Nei, nei, ég vil
fara inn í lætin,.aftur !
— Hún verður kannski ein-
hvern tíma góff gamanleikkona,
segir afi hennar.
— Og þið mynduð ekki setja
ykkur upp á móti því?
— Nei, alls ekki, en til bess
að verða góð leikkona, þá þarf
hún í fyrsta lagi, að hafa hæfi-
leika, I öðru lagi að hafa sterka
löngun til að verða leikkona
og í þriðja lagi þolinmæði til
að verða það. En þetta þrennt
• •
er reyndar nauðsynlegt í hvaða
starfi sem er.
— Þið ætlið að lesa saman
síðasta þátt Fjalla-Eyvindar í
kvöld. Hafið þið leikið i því
leikriti í Danmörku?
— Já, en Danir skilja það
ekki, segir Paul Reumert. Það
er eitthvað, sem er alveg sam-
gróið íslandi og sem ekki nær
til annarra þjóða, sem er und-
irtónn sögunnar um Fjalla-
Eyvind. Þessi einmanaleiki,
þessi frumstæða menning. . . .
— Eg lék í Fjalla-Eyvindi,
þegar það var sýnt hér árið
1913, segir frú Anna. Eg lék
Tótu, en frú Guðrún Indriða-
dóttir var Halla. Eg man það
ehn eins og það hefði gerzt í
gær. Eg sé fyrir mér, hvernig
hún var, hvar hún stóð og
hvernig hún hélt mér í fangi
sér. Það var yndislegt. Eg man
að ég hugsaði með mér, aff nú
ætti ég að láta sem ég svæfi,
en sofna samt ekki alveg. Það
er til marks um það, Iivað frú
Guðrún lék vel, hvað þetta sit-
ur í mér. Þetta var víst í íyrsta
sinni, sem ég kom fram á leik-
sviði.
— Hvenær komuð þér hing-
að til íslands í fyrsta sinni,
herra Reumert?
— Eg kom hingað fyrst árið
1929. Síffan höfum við alltaf
komið, þegar við höfum átt
þess nokkurn kost, því að hér
eigum við stóra fjölskyldu.
— Þér hafið leikið í 50 ár?
— Já, og næst, þegar ég
verð eitthvaff, ef ég verð það,
þá verð ég 80 ára. Það er hár
aldur. Eg verð senn að fara
að liugsa um eftirmálann.
H.
Kirkjukaffi
KVENFÉLAG Hallgrímskirkju
heldur kaffisölu á morgun í Silf-
urtunglinu kl. 3.00. Safnaðarkonur
hafa gefið allt kaffibrauð, sem á
boðstólum verður, og sjálfar
munu þær ganga um beina. Allur
ágóði af kaffisölunni rennur til
byggingar Hallgrímskirkju. Það
finnst ekki öllum, að þeir þurfi
að fara í kirkju, en öllum finnst
þeir þurfa að fá sér kaffi, og með
því að fá sér kirkjukaffi styrkja
þeir gott málefni. >
12000 VÍNNINGAR Á ÁRl!
30 KRÓNUR MlÐiNM
★ Fasteignasala
★ Bátasala
★ Sklpasala
★ Verðbréfa-
viðskipti.
Jón 6. Hjörleifsson,
viðskiptafræðingur.
Fasteignasala. — Umboðssala.
Trygvagötu 8, 3. hæð.
Viðtalstími kl. 11 — 12 f. h.
og 5 - 6 e. h. Sími 20616.
Heimasími 32869.
.;HELGflSOM/.
S.ÍIBflRVOC 20 /flf/ UKAiN I ■
leqstemaK oq
J plö-tur ð
a
■i
li
EIPSPYTUR
ERU EKKl
BARNALEIKFÖNC!
FLOKKURINN
AKRANES:
Alþýffuflokksfélögin á Akranesi
halda spilakvöld í félagsheimili
sínu á sunnudagskvöld. Er
þetta fyrsta félagsvist félaganna
á þessu hausti og hefst kl. 9.
HÉseigendafélag ReykjavlKor
hendi sleppa.
Sigurgeir Sigurjónsscn
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa
Austurstræti 10 A. Sími 1104ÍL
Umboðsmenn Happ-
drættis Alþýðublaðs-
ins á Vestfjörðum og
Vesturlandi.
SÚÐAVÍK: Bjarni Guðna-
son, Dalbæ.
ÍSAFIRÐI: Bókaverzlun
Jónasar Tómassonar, ísa-
firði.
HNÍFSDAL: Jens Hjörleifs-
son, sjómaffur.
BOLUNGARVÍK: Elías H.
Guffmundsson, símstjóri.
SUÐUREYRI, Súgandafirði:
Eyjóifur Bjarnason, sjó-
raaður.
FLATEYRI: Kolbeinn Guð-
mundsson, verkamaffur.
ÞINGEYRI: Steinþór Benja-
mínsson, skipstjóri.
PATREKSFIRÐI: Ágúst H.
Pétursson, sveitarstjóri.
BÚÐARDAL: Magnús Rögn-
valdsson, verkstjóri.
STYKKISHÓLMI: Ásgeir
Ágústsson, vélsmíðam.
GRAFARNESI: Stefán
Helgason, trésmiður.
ÓLAFSVÍK: Gylfi Magnús-
son, sjómaður.
HELLISSANDI: Guðmund-
ur Gíslason, sjómaður.
BORGARNESI: Jóhann Ingi
mundarson, fulltnii.
AKRANESI: Sveinbjörn
Oddsson, bókavörður og
Theódór Einarsson, verka-
maður.
Dregið verður næst
7. október um Volks-
wagen-fólksbifreið
árgerð 1963, að verð-
mæti 120 þús. kr.
Aðeins 5000 númer.
Endurnýjun stendur
yfir.
Látið ekki HAB úr
SKIPAUTGCRÐ RIKISiNS
M.s. Hekla
fer vestur um land í hringferU
3. okt. Vörumóttaka á mánudag
til Patreksfjarðar, Sveinseyrar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrai^
Suðureyrar, ísafjarðar, Siglt*-
fjarðar, Dalvíkur, Akureyrcr,
Húsavíkur og Raufarhafnar. Far
seðlar sendir á þriðjudag.
Skjaldbreiö
fer 4. okt. til Ólafsvíkur,
Grundarfjarðar, Stykkishólms cg
Flateyjar. Vörumóttaka á mární*
dag. Farseðlar seldir á þriðju*
dag.
Til sölu:
íbúðarhæð í steinhúsi í GcrðR*
hreppi rétt við Hafnarfjarðaab
veg.
Efrihæð, 105, ferm. 4. herb. <gf
eldhús, svalir, tvöfalt gler, sðf
inngangur. Eignarlóð, girt Uj
ræktuð. Bílskúrsréttindi.
Fyrsti veðréttur laus. Hag.
stæðir samningar.
Hermann G. Jónsson, hdl. !
Lögfræðiskrifstofa 1
Fasteignasala
Skjólbraut 1, Kópavogi. 1
Sími 10031 kl. 2-7. . ’
Heima 51245.
T
Bíla og
búvélasalan
Selur Opel Caravan ‘00 og ,81
Opel Rekford ‘61, fjögra dyra,
Fiat 1200 ’59.
Mercedes Benz 119 ’57.
Volkswagen ‘55 — ‘61.
Ford '55 — ‘57.
Chervolet ‘53 — ‘59.
Opel Copilon ’56 — ’60.
Ford Zephyr ‘55 — ‘58.
Skoda ‘55 — ’61.
Taunus ‘62, Station.
Vörubílar:
Volvo ’47 — '55 — ‘57.
Mercedes Benze ‘55 — ‘61. ]
Ford ‘55 og ‘57. j
Chervolet ‘53- ‘55 - ‘59 - ‘61.
Scania ‘57. j
Chervolet ‘47.
Jeppar af öllum gerðum.
Gjörið svo vel að líta vlð.
Bíla- &
búvélasafaq
við Miklatorg, sími 2-31-36.
IMHHMMMMMWMWWIHH' I
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29- sept. 1962