Alþýðublaðið - 29.09.1962, Side 16
[ Skipstjórar á síldveiðibátun
; um, sem voru við veiðar I sum
í ar, héldu skemmtun í Lídó í
j gærkvöldi. Vár hún haldin til
; heiðurs Jakobi Jakobssyni fisk
! fræðingr osr skipstjórunum á
r
í síldarleitarskipunum. Hátt á
; annað hundrað skipstjórar voru
*
; þar ásámt kónum smum. Eggert
bátnum, Víði II. gat ekki kom
ið sökum lasleika.
Jakob ávarpaði samkomuna
og þakkaði gestgjöfunum. Hann
sagði að hann vildi hjá engum
fremur vera gestur því að þetta
væru mennirnir, sem hann starf
aði með, og konur þeirra, sem
biðu heima og gættu bús og
barna. Hann sagði, að ef krakk
arnir líktust feðrum sínum, þá
væru þau ugglaust óstýrilát og
ærið verk að gæta þeirra.
Á myndinni sést Jakob fyrir
miðju ásamt konu sinni. Ti
vinstri er Jón Einarsson, sem
var skipstjóri á Pétri Thor-
steinssyni, en hann var áöur
með Fanney. Kona hans sést
ekki á myndinni. Til hægri við
Jakob er Benedikt Cuðmunds-
son, sem ?ar skiþstjóvi á Fann
ey Við hlið honum er kona Iians
Gíslason, skipstjóri á afíahæsta
[mMD
43. árg. Laugardagur 29. sept. 1962 - 214. tbl.
Borunin í Ólafsfirði gengur vel
Borholan gefur
6 sekúntulítra
HEITT VATN kom í borholuna,
sem Norðurlandsborinn er að bora
í Óiafsfirði, aðfaranótt fimmtu-
dags eða á fimmtudagsmorgun.
Vatnsmagnlð var þá 4 sekúndu-
lítrar, en þegar blaðið átti í gær
tal við ísleif Jónsson, verkfræðing
hjá RaforkumáTaskrifstofunni, sem
hefur umsjón með þessum borun-
um, sagði hann að í morgun hefði
vatnsmagnið aukizt um 2 sekúndu-
lítra. Hitastigið er óbreytt, rétt
undir 50 gráðum. ísleifur sagði, j
að ekki væri ósennilegt að hitinn :
myndi aukast citthvað, þegar vatn
ið hefur runnió nokkra stund, og
einnig kólnaði það talsvert á upp-
leiðinni.
Daglega dýpkar holan um 15-20
metra og er nú orðin um 250 m.
á dýpt. ísleifur taldi að boraö yrði
fram yfir helgina, og þá hætt, svo
framarlega sem vatnsmagnið héldi
ekki áfram að aukast, því þá væri
ekki ástæða til að hætta.
Borunin nyrðra hefur gengið að
I óskum. Við borinn vinna tíu menn
' flestir þeirra eru héðan að sunnan.