Alþýðublaðið - 06.02.1963, Page 1
œoÉmo)
44. árg. — MiSvikudagur 6. febrúar 1963 - 30. tbi.
ÍSKÖNNUNARFLUG:
Sigling fyrir Horn
—Pi^MtiikOTfwiTafám lli IH ■IHIiWUH—MBW—BMHBB—BBBBBBia—
hættuleg f myrkri
STARFSMENN Landhelgis-
íræzlunnar fóru í gær f ís-
könnunarflug'. Var flogið
vestur og austur með landi.
Varð vart við talsverðan ís.
sem víðar var Iandfastur. í
fréttatilkynningu, sem blað-
inu barst frá Landhelgisgæzl
unni í gær, er þess getið, að
sigling fyrir Horn f myrkri
geti verið hættuleg. Þessl
mynd var tekin í gær út af
Galtarvita.
(Ljósm.:
Landhelgisgæzlan),
LEIGUFLUGVÉL á veg-
um Landhelgisgæzlunnar undir
stjórn Garðars Pálssonar fór í ís-
könnum til Vestfjarðamiða í morg-
un.
Flogið var norður með Vest-
fjörðum í 5—6 mílna fjarlægð frá
TOGARAR
TEFJAST
Á ÚTLEIÐ
ÞRÍR togarar Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur lentu I nokkr
um erflðleikum í fyrrinótt á
leið sinni til Englands með
gfld tíl söln á markaði þar.
Veðrið milli Færeyja og ís-
lands var með afbrigðum
vont, og gat Skúli Magnús-
son ekki einu sinni lensað
fyrir stórsjó. Enginn áföll
urðu þó, hvorki á skipum né
skipverjum. En Skúli Magn-
ússon tafðist um sólarhring
i ‘ illviðrum, og getur þess
vegna ekki selt afla sinn fyrr
en á mánudaginn, en áætlað
ur söludagur var föstudagur
inn næsti.
Röðull, Jón Þorláksson
og Surprize eru einnig allir
á leið til Englands með síld ,
en þeir voru um sólarhring
á undan Skúla, svo að líklegt
er að þeir hafi ekki orðið
fyrir eins miklum töfum.
Ofsarok og stórsjór var fyrir
írlandi í gær, og einnig
lentu skip í hrakningum á
Norðursjónum, en þar var
veðrið engu bctra.
annesjum. Á móts við Galtarvita
sáust fyrst dreifðir smájakar. —
Jakastangl þetta náði inn að
mynni ísafjarðardjúps, að stefnu-
Iínu milli Galtar og Rits. Flogið
var til norðvesturs um 14 sjómílur
frá Galtarvita yfir ísbreiðu, og var
þá komið f auðan sjó að kalla. í
ísbreiðunni var um helmingur
sjávar þaldnn fs að meðaltali.
V
Þá var haldíð éfram norður með
landi og hélzt jakastrjálningur
norður á móts við Rit, var lítill út
af Aðalvík, en þéttist nokkuð út af
Straumnesl. Þar var líka ískurl í
fjörunni. En norðan og austan
Kögurs var íslaust og hreinn sjór.
Var flogið lengst austur aö vitan-
um í Látravífc • ■
Framh. á 14. sfðu
F.í. hefur
sótt um far-
gjaldalækkun
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur það
eftir áreiðanlegum heimild-
ámi að Flugfélajg Sslands
hafi nú sótt um Ieyfi tíl fs-
Ienzkra stjórnarvalda um að
fá að Iækka fargjöld á flug-
leiðum mllli íslands og Evr-
ópu. Hefur félagið tryggt sér
heimíld IATA fyrlr þessu
flugi, en bíður nú svars frá
islenzkum flugyfirvöldum.
Umsókn þelrra hefur enn
ekki verið tekin fyrlr, að því
er Agnar Kofoed Hansen,
flugmálastjóri, tjáði blaðinu
í gær.
Blaðið bar þessa frétt und
ir Birgi Þórhallsson hjá
Flugfélagi íslands. Staðfesti
hann, að þetta væri rétt, e»
vildl ekkert nm málið segja
á þessu stigi. Hann sagði þó,
að þarna væri um að ræða
lækkun, sem félagið vildi
fá á fargjöld á vorin og haust
in. Hann sagði, aff lækkasðr
þessar væru mjög mismon-
andi, og ekkert hægt frá
þeim að segja.
Útflufningsuppbætufnar komnar út i öfgar:
87% UPPBÆTU
ÞAÐ vorn flutt út 650 tonn af und-
anrennudufti s.l. ár fyrir 2,9 millj.
króna. Bændnr fengu 8,4 millj. kr.
uppbætur vegna þessa útflutnings.
Við flytjum því út undanrennu-
duft fyrir fjórðung þess verð, er
bændur fá greitt fyrir það. íslenzk
ir skattgreiðendur verða að borga
þrjá fjórðu.
Þessar stórmerku upplýsingar
komu fram í ræðu, er Gylfti Þ.
Gíslason, viðskiptamálaráðherra,
flutti á Alþingi í gær, er til um-
ræðu var frumvarp Björns Jóns-
sonar (F) um breytingar á lögum
um Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins.
Gylfi sagði, að útflutningsupp-
bætur á íslenzkar landbúnaðaraf-
utðir væru komnar út í hreinar
öfgar. í rauninni mætti segja, að
við gæfurn íslenzkar afurðir úr
landi.
Gylfti sagði, að íslendingar
hefðu flutt út undanrennuduft til
nokkurra landa á s.l. ári fyrir mis-
jafnlega hátt verð. í Vestur-Þýzka-
landi fengust 5,54 kr. é kg., en út-
flutningsuppbætur námu 12,61 kr.
pr. kg. í Ungverjalandi var verðið
4,72 kr., en útflutningsuppbætur
námu 13,01 — 13,53 kr., i Sviss var
verðið 3,63 kr., en útflutningsupp-
bætur námu 12,30. Til jafnaðar
nema útflutningsuppbæturnar
287% álagi á það verð, er fæst
fyrir undanrennuduftið ytra. —
Kvaðst Gylfi telja þessar háú út-
fJutningsuppbætur hreint hneyksli
og tímabært að taka ákvæðin un
þau til endurskoðunar. Beindi hann
því til þingnefndar þeirrar, er
fengi frumvarp Bjöms Pálssöuar
til athugunar, að taka það atriði
til meðferðar.
Sjá þingfrétt á 5. síðu.
114 4 4 ÞETTA ER BILUNN!
sem við drögnm um í HAB á morgun. Við vekjum enn athygli á
því, að það eru AÐEINS 5.000 NÚMER í HAB. — HAB-vinn-
ingurinn á morgun er Taunus M12, CARDINAL (sjá mynd), og
aðalumboðið á Hverfisgötu 4 (sími 17458) er opið til kl. 8 í kvöld.
LÁTIÐ EKKI HAB ÚR HENDI SLEPPA!