Alþýðublaðið - 06.03.1963, Qupperneq 7
BÆKUR
GAMLAR
! CM þessar mundir stendur sfir í
Leningrad sýning, sem haldin er
í tilefni þess, að nú eru 650 ár
liðin frá fæðingu hins fræga ítalska
rithöfundar Giovanni Bocaccio. Á
sýningunni eru til sýnis ýmis af
verkum hans, sem gefin voru út
á Ítalíu á fimmtándu öld. Þar á
meSal er feneyska útgáfan af bók-
inni „Um fjöll, skóga og læki“,
sem kom út árið 1473, Ameto, sem
i kom út fjórum árum síðar, Ætt-
1 fræði guðanna, frá 1487 og meist-
araverkið, sem aflað hefur honum
mestrar frægðar, Decamerone,- sem
kom út 1498.
Á sýningunni eru einnig nokkur
af verkum hans í rússneskum þýð-
ingum, og sömuleiðis verk rúss-
nesfcra fræðimanna um þennan
ítalsfca skáldjöfur.
MISTÖK
ÞAÐ vildi nýlega til í Prag, aff
járnbrautarvagn hlaðinn jarðar-
berjasafa var tengdur rangri lest
viff tékknesku landamærin. í staff
þess að fara til sultuverksmiðju í
Berlín lenti vagninn hjá rafleiðslu
verksmiðju i Tékkóslóvakíu.
Verkamennirnir þar athuguff
ekkert nánar, — töldu
sjálfsagt að í honum væri ein-
angrunarefni utan um rafleiðsl-
umar. Innihaldi vagnsins var þvi
hellt í sjóðandi olfu eins og venja
um það efni sem átti að
vera í vagninum. Kommúnista-
sem gefið er út í þessum
verksmiðjubæ, hefur nú sett of-
aní við verkamennina, sem ekki
athuguðu hvað stóð á vagninum.
í blaðinu stóð: „Á það ber að
leggja áherzlu, að æt(ð verður
að fylgja hinni sósíalisku afstöðu
viff vinnuna“ þá vitum við það.
Helgi Hjörvar mun sennilega kunnastur útvarpsmaður allra
núlifandi íslendinga. Undanfarið hefur Helgi lesið útvarps-
sögu barnanna, Vistaskipti, eftir Einar H. Kvaran. í kvöld
klukkan 18.00 er fjórði lestur sögunnar og sögulok.
STARFSMENN flugfélagsins !
virtust ekkert kippa sér upp við
það þátt handtaska Gene Bank
fyndist ekki. Gene Bank belð í
tvær klukkustundir á flugvellin-
tim í San Fransisco og allt kom fyr
ir ekki, það bólaði ekkert á hinni
týndu tösku. Að tveim klukkustund
«m liðum komu starfsmenn flug-
félagsins meff sérstat eyðublaff,
Nú er þa!f svart mamma.
Pabbi er farinn tii Washington
og hefur tekið skóSatöskuna
mína í misgripum fyrtr skjala-
töskuna sína.
fyrir týndan farangur, sem hann
skyldi útfylla.
Hann útfyllti eyffublaðiff í ró-
legheitum, en nokkrum mínútum
eftir að hann hafði fyllt þaff út
kom taskan í leitirnar. En nú var
annað svipur á starfsmönnum flug
félagsins og nú var lögreglan kom
in í máliff.
Þar sem skýrt skyldi frá inni-
haldi töskunnar á eyffublaðinu
hafði Bank skrifað: Fjögur pund
af heróin, 6 marijuana vindling-
ar, 8 rakettur og rauður innislopp
ur.
Allir voru fullir eftirvæntingar,
þegar taksan skyldi opnuð. í
henni reynist aðeins vera einn
rauður innisloppur.
— Ég beið í tvær klukkustund-
ir, sagði Bank, og ekkert var gert.
Ég vildi bara koma svolitlu fjörl
í leitina, — og það tókst.
Einn af þeim sem önnuffust
leytina sagði: Ég skil þetta vel.
Hann gerðist ekki brotlegur viff
nein lög, þótt hann færi svona aff
þessu. Ég hef sjálfur lent f því
að týna tösku á þennan hátt, og
hann á samúð mína óskipta.
ÞRJÁR NÝJAR
KVIKMYNDit
MiCHAEL Cacoyannis tilkynnti
nýlega að hann byggðist á næst-
unni gera þrjár kvikmyndir í
Grikklandi. Vonast hann, að sjálf-
sögffu til, að þessum kvikmyndum
verði jafnvel tekið og „Elektru".
Þessar kvikmyndir verffa:
„Grikkinn Zorba“ meff Antony
Quinn í aðalhlutverkinu, „Iphing-
ene “ Evrípídesar með Elli Lam-
betti og „Captain Mihalis", en í
þeirri mynd mun Burt Lancaster
Ieika aðalhlutverkið.
FJÓRIR tilvonandi amerískir geim
farar munu innan skamms verða
lokaðir inni í einu herbergi, — og
þar verða þeir að dúsa hvorki meira
né minna en hálft ár. Er þetta einn
liffur í þjálfun þeirra til undirbún-
ings ferðalögum tii fjarlægra
hnatta.
u.
-SMÆLKI-SMÆLKI-SMÆLK
- Hvers konar náungi er Siggi
að þínum dómi?
— Hann flýtir sér alltaf a3 þrífa
stólinn ef þarf aS flytja píanó. I
★
Hún: í hvert skipti, sem ég lít
á þið verður mér hugsað til eins
af mikilmennum sögunnar.
Hann. Hver er það?
Hún: Darvvin.
★
— Kalli var að koma heim og
hafði fengið sér einum of mikið. j
— Ef þetta væri í fyrsta skipti, ■
sem þú kemur fullur heim, sagði
frúin, þá gæti ég fyrir gefið þér.
En þú komst draugfullur heim einu
sinni í nóvember árið 1916,
★
- Hverig gengur konunni þinni
að grenna sig?
— Alveg prýðilega. Hún hvarf í
fyrradag.
★
Jóna: Svo þið Tom ætlið að fara
að gifta ykkur. Ég hélt þetta væri
bara daður hjá ykkur.
Jóna: Það hélt nú Tom líka.^
Læknir víð ríkan sjúkling: Þér
eruð hörmulega á yður kominn.
Ég ráðlegg yður að hætta aö
leika golf um tíma, og hvíla yður
heldur á skrifstofunni.
★
Yfirþjónninn: Vill herrann spánsk
an, ítalskan eða franskan mat?
Viðskiptavinur: Mér er alveg
sama. Ég ætlaði að fá eitt soðiö
egg-
★
Rithöfundurinn: Húrra, ég fékk
fimm hundruð krónur fyrir síðustu
sömma mína.
Vinurinn: Frá hverjum? i
Rithöfundurinn: Frá póststjórn-
inni. Þeir týndu henni nefnilega
fyrir mér.
★
Gesturinm Lekur þakið hjá ykk-
ur alltaf svona?
Hótelhaldarinn: Nei, herra minn-
Aðeins þegar rignir.
★
Heyrið þér mig þjónn. Þessi
flibbahnappur var í súpunni minni.
Þakka yður kærlega fyrir. Ég er
mikið búinn að léita að honum.
Frúin: Hvaða refsing væri réttlát
á mann, sem biður sér konu og
neitar svo að giftast henni? ..
Bóndinn: Nú hvað annað en, að
neyða hann til að giftast henni.
Miffvikudagur 6. marz
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — Morgunleikfimi. — 8.15 Tónl, —•
8.30 Fréttir. — 8.35 Tónl. — 9.10 Vfr. — 9.20 Tónl.).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 „Viff vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum": Annar lestur sögunnar „Gestir" eftiv
Kristínu Sigfúsdóttur.
-15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.00 Vc'ð'-
urfregnir. — Tónleikar. — 17.00 Fréttir. — Tónleíkar).
17.40 - Framburðarkennsla í dönsku og ensku.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Vistaskipti" eftir Einar H. Kvaran; IV.
, (sögulok) (Helgi Hjörvar).
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þingfréttir. — 18.50 Tilkynningar.
19,30 Fréttir.
20.00 Varnaðarorð: Sæmundur Auðunsson skipstjóri talar um örýggl
á sjó. |
20.05 Tónleikar: Lúðrasveit útvarpsins í Leipzig leikur; Otto
Kayser stjórnar.
20.20 Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Ólafs saga helga; XVIII. (Ósfcr
ar Halldórsson cand. mag.). b) Sigurður Jónsson frá Brún fei*
með frumort kvæði.
21.00 Föstuguðsþjónusta í útvarpssal. — Prestur: Séra Sigurður
Pálsson á Selfossi. Organleikari: Jón Þ. Þórarinsson. Stúlkur
úr BaiTiamúsikskólanum syngja.
21.45 íslenzkt mál (Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag.).
22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passíusálmar (21).
22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið“ eftir Fred Iloyle; V. (Örnólfur
Thorlacius).
22.40 Næturhljómleikar: Dr. Róhert Abraham Ottósson stjórnar
tónleikur í Jerúsalem 15. nóv. sl. — 23.25 Dðgskráriok.
HIN SfÐAN
ALÞÝÐUBLAÐI0 - 6. marz 1963 £