Alþýðublaðið - 06.03.1963, Page 13
ÚTBOÐ
Þeir, sem gera vilja tilboS lun að byggja vatnsgeymi á
Öskjuhlíð (Golfskálahæð), vitji uppdrátta og útboðslýsingar
í skrifstofu vorri, Tjarnagötu 12, III. hæð, gegn 3.000,00
króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar
Tiíboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir, er verSa sýndar í Rauðarárporti
fimmtudaginn 7. þ. m. kl. 1 til 3.
Tilboðin verða opuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd vamarliðseigna
5f
m
MYNDIN sýnir baðströnd
á Kanaríeyjum, en þang
að er ferSinni heitiS
mc-Sai annars f páska-
för Ferðaskrifstofunnar
Sunnu.
jií
Páskaferð til
mín er flutt á Skóiavörðustíg 3A, miðhæð.
Jón Bjarnason
hæstaréttarlögmaður. — Sími 11344.
óskast strax hálfan eða allan daginn.
Prentsmiðjan HÓLAR H.F.
Þingholtsstræti 27
ÞAKJÁRN
5—11 fet.
Garðar Gíslason h.f.
v Hverfisgötu 4. — Sími 11500«
ASE:
Vil taka að mér hreinritun á handritum eða aðra vélritun
I aukavinnu. Einnig þýðingar á smósögum eða öðru. —
Tilboð, merkt „Aukavir na“, sendist á afgreiðslu Alþýðubl.
ÚTSÖLUNNI
lýkur á laugardag.
Ferðaskrifstofan Sunna efnir
um páskana til skemmtiferðar til
Kanarieyja og Mallorka. Páskaferð
ir SUNNU hafa verið farnar ár-
lega til Suðurlanda við miklar vin-
sældir, allt frá því að skrifstofan
tók til starfa. Hefir jafnan verið
fullskipað í þessar ferðir og venju
lega færri komizt en vildu. Hefir
samtals um 500 manns tekið þátt
í páskaferðum SUNNU. Eru ferðir
þessar líka tiltölulega ódýrustu
utanlandsferðir sem völ er á til
Suðurlanda, vegna þess að heilar
flugvélar er leigðar til ferðarinnar
og þær látnar bíða farþeganna á
Mallorka tog Kanarieyjum. Auk
þess, sem allt að því helmings af-
sláttur fæst á beztu hótelunum,
þegar samið er um dvöl fyrir
stóra hópa til margra daga dvalar.
í fyrra var páskaferð SUNNU í
fyrsta sinn til Kanarieyja og tóku
þátt í ferðinni um 80 manns. Hef-
ir talsverður hluti þessa hóps þeg-
ar pantað far í næstu ferð og er
þegar búið að ráðstafa nærri helm-
ing sætanna í næstu ferð áður en
hún er auglýst. Tekur talsverður
hópur íólks þátt í Páskaferðunum
ár eftir ár til þess að fá sér
skemmtilegan sumarauka í sól-
ríkum. Suðurlöndum, meðan svalt
er á Norðurslóðum, en hins vegar
margir frídagar, sem mörgum
verður annars lítið úr.
Beztu hótel sem fáanleg eru.
Að þessu sinni verður Páskaferð-
in 13 dagar, eða einum degi leng-
ur en í fyrra. Verður flogið með
íslenzkri flugvél til Kanarieyja
með viðkomu, á írlandi eða Lissa-
bon og þaðan beint til Kanarieyja.
Dvalið verður á stænstu eynni,
Tenerife,, þar sem gróður og nátt-
úrufegurð er mest. Verður búið á
glæsilegustu hótelum, sem þar eru
til, Valle-Mar og Tenerife Playa,
sem hefir einkasundlaug fyrir gest-
ina, en hefir auk þess lálið nú
breyta klettóttri strönd í baðstað
með hvítum sandi, auk þess sem
stórar sjólaugaf eru fyrir þá, sem
ekki vilja synda í Atlantshafinu.
Þar er dvalið í viku.
Síðan flýgur vélin til Mallorka,
þar sem dvalið verður í f jórar næt-
ur á Hotel Bahia Place, sem er eitt
bezta liótelið í Palma, höfuðborg
Mallorka, stendur alveg við ,sjó-
inn í miðborginni en hefir auk
þess einkasundlaug. Þaðan er svo
flogið til London, þar sem dvalið
er einn sólarhring, áður en flogið
er til Reykjavíkur.
Hvlldar- og skemmtiferðir.
SUNNA hefir valið þessi glæsi-
legu hótel til dvalar, vegna þess
að árleg viðskipti skrifstofunnar
við þau fyrir stóra hópa gera það
að verkum að tiltölulega ódýrt er
fyrir SUNNUFARÞEGA að búa á
þessum lúxushótelum, sem annars
eru fokdýr, eins og margir vita.
Meðan dvalið er á Kanarieyjum
og Mallorka getur fólkið notið
sólar, sjóbaða og hvíldar að vild,
milli _þess, sem það tekur þátt í
skemmtiferðum á landi, sem skrif-
; stofan gengst fyrir. Er margt fag-
urt og skemmtilegt að sjá á þessum
Paradísareyjum Suðurlanda.
Fólk er þó alveg frjálst ferða
sinna meðan dvalið er á Kanari-
eyjum, Mallorka og Landon. En
geta hins vegar notið aðstoðar og
leiðsagnar hins íslenzka fararstjóra
ef það vill og tekið þátt í ferðum
þeim sem skipulagðar eru .
Vika á Kanarieyjum,
4 nætur á Mallorka.
Farið vcrður frá Reykjavík að
morgni skírdags 11. apríl, og kom-
ið til Kanarieyja að kvöldi sama
dags. Komið er aftur til Reykja-
víkur árdegis 23. apríl, sem er
þriðjudagur. Þannig er ekki nema
um fimm fulla vinnudaga að ræða,
sem fólk missir í þessari 13 daga
ferð, vegna þess hve margir frí-
dagar falla til um þetta leyti.
Að fenginni fyrri reynslu um
vinsældir páskaferða SUNNU má
gera ráð fyrir að þessi ferð verði
fljótt fullskipuð og því vissara fyr-
ir þá sem ætla að taka þátt í henni
að panta timanlega. íslenzkir far-
ar6tjórar eru að sjálfsögðu með
í öllum páskaferðum SUNNU, svo
að þátttakendur þurfa ekki frem-
ur en þeir vilja að tala annað en
íslenzku alla ferðina á enda.
Gera má ráð fyrir því, að á Kan
arieyjum verði hitinn um 30 stig.
Þessar fögru eyjar veðursældar
árið um kring var þegar á dögum
Forn-Rómverja gefið nafnið „Para«
dísareyjan" og mun flestum þykja
það sannmæli, sem þeim hefir
kynnst, og alla, sem þangað komf
ast einu sinni langar þangað afturi
Vegna þess hve eyjarnar eri.
skammt fyrir norðan Miðjarðarlíni t
undan ströndum Vestur-Afríki;
er hiti svipaður allan ársins hrinc
og vetur óþekkt fyrirbæri í rík.
náttúrunnar.
Á Mallorka-er hins vegar ekk
nema 24-28 stiga hiti, en þó ei
sumarið örugglega komið þangaf
á þessum tíma síðari hluta apríl.
|
Islenzk flugvél alla leið lækkar
ferðakostnaðinn um helming. |
Eins og í fyrri páskaferðumi
SUNNU er flogið með milliianda-
flugvél frá Flugfélagi íslands, og
bíður hún eftir farþegunum á stöð-
unum. Með því móti flýgur véliri
aldrei neitt tóm og því um fuli-
komna sætanýtingu að ræða, sem
gerir það að verkum. að ferðin öll
er um helmingi ódýrari er vera
myndi ef flogið væri með áætlun-
arvélum og hver einstaklingur
greiddi sinn hótelreikning sjálfur.
Fargjaldið eitt á þeirri leið sem
flogið er, kostar um 18.500 eftir
hækkunina 1. apríl, en Páskaferð-
^ Frh. á 14. síðu. Í
wwwtwwwwwwww
„Dimmuborgir"
ÞJÓBLEIKHÚSIÐ sýnir um
þessar mundir nýtt íslenzkt
leikrit, sem heitir Dimmu-
borgir og er eftir Sigurð Bó-
bertsson. Verkið hefur vakið
verðskuldaða athygli, eins og
ný islenzk leikrit gera að ölln
jöfnu.
Næsta sýning er í kvöld. —
Myndin er af Vali Gíslasyni og
Ævari Kvaran í hlutverkum.
ALÞÝÐUBLADIÐ - 6. marz 1963 |,$