Breiðablik - 01.06.1907, Blaðsíða 8
8
BREIÐABLIK.
Á Hofmannaflöt.
12,
Gllðm. Hannesson. f afturelding. Nokkurar greinir
um landsmál. Akureyri 1906.
Þessi litla bók er þeg'ar fræg orðin og' meira
um hana talað en margfar stærri bækur. Hún
fl ytur skýrt og- ljóst og skipuleg'a hugsanir höf.
út af sambandi Islands og' Danmerkur og kemst
hann að þeirri niðurstöðu að lslendingar ætti að
vera sjálfstæð þjóð. Hann veltir fyrir sér flest-
öllum mótbárum, sem fram eru færðar gegn því
og sýnir fram á, hægt og stillilega, að í raun
réttri hafi þær mjög lítið við að styðjast. Vér
ráðum sem flestum til að lesa hana, því þó lengi
sé búið að rita um stjórnmála-viðskifti Islands
og Danmerkur,eru þó margar þokukendar hugs-
anir á ferðum í þeim efnum manna á milli. Ekki
efumst vér um, að stefna sú, sem haldið er fram
í bókinni—fullkominn aðskilnaður—verði framtíð-
ar stefna ísl. stjórnmála, svo framarlega sem
Danirtaka ekki.sjálfstæðis kröfum Isleudinga nú
í sumar þeim mun betur. En til þess eru fremur
litlar líkur.
Bjarni Jónsson frá Vogi. Sjálfstæði fslands.
Fyriríestur. Rvík 1906.
Erindi þetta flutti höfundurinn á 10 stöðum í
Noregi í nóv. og des. 1905. Frá ísl. stiórnar-
baráttu segir hér í fám orðum og álítur höf. þar,
að bezta sambandið milli Danmerkur og fslands
sé jafnréttissamband, þar sem báðum þjóðernum
sé gert jafn-hátt undir höfði. Bendir hann á, að
Danir sé mentaðir menn, fullir mannúðar, og sé
það trygging þess, að Islendingar hafi mál sitt
fram. „Munu þeir áður langur tími líði bjóða oss
það, er vér höfum ekki mátt sækja í hendur
þeim. Þ>ví sú skoðan mun sigra, að þjóðernið
veitir rétt til sjálfstæðis en ekki fjöldinn. Mun
dæmi Noregs stuðla til þess eigi allítið. “—Ná-
kvæmlega það sama og vér héldum fram í blaði
voru í vetur.
2. Þjóðin ofr þinprofið. Ræða haldin á stúdentafé-
lagsfundi 29. des. 1906.
Hér er það brýnt fyrir ísl. þjóð, að vera hygg-
inn og röggsamur húsbóndi á heimili sínu og
ráða sér ný hjú (þing og stjórn), ef þeim er eigi
að treysta, sem nú eru. “Og þótt þeim (hjúun-
um) verði nú eitthvert Grettisslysið, mun enn
verða tekið til spiltra málanna og aldrei létt fyrr
en landið hefir náð aftur drottinvaldi sínu. “
Hinar Hjörleifsson. Frjálst sambandsland. Rvík
1907. 88 bls.
Þetta er síðasta ritið, er oss hefir borist um
sjálfstæðismál Islands,og í rauninni hið rækileg-
asta. Hér er saga ísl. stjórnarbaráttu rakin frá
rótum alla leið niður til vorra tíma. Fjárhags-
kröfur Islendinga Dönum til handa eru hér rakt-
ar eftir hinum einkar-rækilegu og stórmerku rit-
gjörðum Jóns Sigurðssonar. Öll meðferð Dana
á Islendingum, öll sú kúgan, rangsleitni og
brigðmælgi, sem vér höfum orðið fyrir af þeirra
hendi, er hér sýnd, svo sú raunasaga stígur fram
í huga þess, er les, með skýrum dráttum ogljós-
um. Hver maður, sem kunna vill sambandssögu
Islands og Danmerkur, þarf að lesa bækling
þenna rækilega. Svo hlutdrægnislaust er hann
ritaður, að stjórnarblöðin (Lögrétta) lúka jafn-
vel á hann hinu mesta lofsorði. Niðurlag ritsins
höfuin vér prentað á öðrum stað, til þess að sýna,
hve orðin eru þung, en þó stillileg. Aldrei hefir
eins verið reynt að koma við hjartað í Dönum
og reynt er með þessari bók, sem líka mun koma
út á dönsku.
ÞÖglar ástir. Eftir Musæus.
Undina. Eftir M. Fouque. Winnipegf 1907. Prentstniðja
Lög-bergs.
Þessar gömlu smásögur, sem fyrír löngu voru
þýddar af Steingr. Thorsteinsson og eldri kyn-
slóð Islendinga sérlega kærar, hafa verið endur-
prentaðar hér fyrir vestan og eru til sölu í bók-
verzlan Halldórs Bárdal. Það eru sérlega vel
valdar barnabækur, og frágangur laglegur, svo
búast má við þær verði keyptar. Málið ísl. á
þeim er með snildar ummerkjum þýðandans, svo
það útaf fyrir siger ekki lítið meðmæli. Úndina
kostar 30 cents, Þöglar ástir 20.